Bjarmi - 01.02.1997, Síða 22
Það var alltaf gott að eiga hana að -
hún notaði kannski fullmikinn
varalit og vandaði sig lítið í að
velja sér kærasta og átti til að
skvetta illa í sig. Hún var hávær,
en skemmtileg í partýum og fyndin. En þá kom
Hósea spámaður til sögunnar með skilti dingl-
andi bæði framan á og aftan á sér. Á öðru skilt-
inu stóð: HEIMSENDIR í NÁND! en á hinu:
VERIÐ VIÐBÚIN!
í íyrsta skipti sem hann bað hana að giftast sér
hélt hún að hann væri að grínast. Eftir bónorð
númer tvö vissi hún að honum var alvara og áleit
hann klikkaðan. Hann gafst ekki upp og þegar
hann hafði beðið hennar í þriðja sinn sagði hún
já. Hósea var enginn stuðbolti, en hann hafði
góðlegan svip, var örlátur og kannski ekkert mikið
ruglaðri en hver annar. Þar að auki elskaði hann
hana, það gat hver maður séð.
Hún endurgalt ást hans fyrst í stað og þau
eignuðust saman þijú böm sem Hósea gaf skrípa-
nöfn, eins og Farinní Hundana, Náðvana og Ekki-
minn Lýður og gerði þau þar með að athlægi í
hvert sinn sem þau vom lesin upp í skólanum.
Það lá í augum uppi að hjónabandið myndi ekki
endast og það stóð heima.
Þegar Hósea gekk um strætin og auglýsti heim-
sendi gekk Gómer milli karlmanna og var engu
líkara en hún kepptist við að verma eins margar
hvílur og hún mögulega gat. Eftir það var tilviljun
ef börnin, sem hún fæddi, líktust Hósea. Þetta
gekk næstum því frá honum, eins og gefur að
skilja. í hvert skipti sem hann reyndi að taka
hana í gegn endaði það með þvi að hann brast
sjálfur í grát. Þegar hún reyndi að siða hann til
þá endaði hann alltaf á því að biðjast afsökunar.
Nokkrum sinnum sagðist hann myndu læsa
hana úti ef hún væri ekki komin heim kl. 5 að
morgni, en það endaði alltaf með því að hann
opnaði hurðina um leið og hann sá hana og
hjálpaði henni upp í rúm ef hún réð ekki við það
sjálf. Einn daginn kom hún ekki heim.
Hósea sagði þá með sjálfum sér að nú myndi
hann skilja við hana, en auðvitað gerði hann það
ekki. En auðvitað hafði hann ekki fengið nóg.
Þegar hann fann hana loks, hafði hún lognast út
af í mjög sérhæfðu atvinnuhúsnæði sem var
staðsett fyrir ofan verslun sem seldi bækur fyrir
fullorðna. Hann þurfti að borga framkvæmda-
stjóranum háa upphæð til þess að losa hana
undan samningnum hennar. Hún var búin að
missa framtennumar og var öll meira og minna
krambúleruð. En Hósea fékk hana aftur. Það
skipti hann öllu máli.
Hann letraði nýjar áritanir á auglýsingaspjöldin.
„Guð er kærleikur“ stóð á öðm, en á hinu „Mæðu-
dalur er orðinn að Vonarhliðil" Frá götuhominu
heyrðist hann kalla:
Hvemig ætti ég að sleppa hendi afþér. EJraím,
ofurselja þig, ísrael?
Því að ég er Guð, en ekki maður.
Ég hý á meðal yðar sem heilagur Guð
og kem ekki til yðar í bræði.
(Hósea 11:8-9).
Það er erfitt að segja til um hvort hann hafi
snúið mörgum til trúar, en eitt er þó vist, að líflð á
heimili Hósea og Gómer varð aldrei eins eftir það.
Hér eftir vom augu Gómer uppspretta gleðitára.
Byggt á Spádómsbók Hósea 1-3
Höfundur: Frederick Buechner
Þýöing: Guömundur Karl Brynjarsson og
Henning Emil Magnússon