Bjarmi - 01.11.1997, Side 3
it æ n a t a ©
Stundum er því haldið fram að nútíminn einkennist af útlitsdýrkun. Tísku- og
auglýsingaheimurinn leggur mikla áherslu á ytra útlit og glæsileika.
Auglýsingamar draga fram réttu málin og línumar, eilífa æsku og fegurð og
réttan stíl og klæðnað í samræmi við það. Þetta hefur áhrif á okkur og við
sækjumst eftir því sem auglýsingarnar boða.
Nú er í sjálfu sér allt gott um fegurð og glæsileika að segja. Sköpun Guðs býr yfir
stórbrotinni og óviðjafnanlegri fegurð bæði i stóm og smáu. Við getum notið útlits
og fegurðar á margvíslegan hátt. Og sköpunarþörf mansins birtist m.a. í þvi að
geta skapað það sem er fallegt, líka í útliti og klæðnaði. En þegar auglýsingamar
dynja stöðugt á okkur og íyrirmyndirnar í tísku- og poppheiminum blasa sífellt við
þá er auðvelt að verða þræll ytra útlits og yfirborðsmennsku. Við eigum á hættu að
verða svo upptekin af ytri verðmætum að hin innri gleymast. Kaldur vemleikinn er
hins vegar sá að hin ytri verðmæti em skammvinn og forgengileg. Tískan breytist
og það sem við klæddumst í gær pass-
ar ekki í dag. Við eldumst og stönd-
umst ekki stöðluð mál draumsins um
eilífa æsku. Og ekkert af ytri veraldar-
gæðum tökum við með okkur þegar
við kveðjum þennan heim.
Þegar við hittum fólk tökum við að sjálfsögðu eftir ytra útliti þess og það hefur
áhrif á okkur. En við látum okkur ekki nægja að horfa einugis á það ef við ætlum
að kynnast viðkomandi. Persónuleikinn og hinn innri maður skiptir þá máli.
Þannig ættum við einnig að hugsa um okkur sjálf andspænis heimi tískunnar og
auglýsinganna. Það skiptir okkur auðvitað máli hvemig við lítum út í hinu ytra en
það ætti að skipta okkur enn meira máli hvernig okkar innri maður er. Við
leggjum ýmislegt á okkur íyrir ytra útlit en ættum að leggja enn meira á okkur til
að rækta okkar innri mann.
Staðreyndin er sú að okkar ytri maður hrömar en okkar innri maður á að geta
endurnýjast dag frá degi (2. Kor. 4:16). Það gerist í trúnni og samfélaginu við Jesú
Krist. í honum erum við ný sköpun sem er óháð forgengileika. Þegar við lifum lífi
okkar í trú á hann endumýjumst við daglega hið innra og helgumst í samfélaginu
við hann. Það hefur síðan áhrif á ytri breytni okkar þannig að það sést að við
tilheyrum honum. Það er það ytra útlit sem við eigum öðru fremur að sækjast
eftir. Orð Jesú í Matteusarguðspjalli eiga hér við: „Annaðhvort er tréð gott og
ávöxturinn góður eða tréð vont og ávöxturinn vondur. Því af ávextinum þekkist
tréð“ (12:33). „Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði, en vondur maður ber
vont fram úr vondum sjóði" (12:35). Fallegt útlit nær ekki að hylja spillt hjarta.
Við emm sköpuð í Guðs mynd til að þjóna honum. Það gefur okkur bæði fegurð
og glæsileika sem hrömar ekki. Þegar við höfum áhyggjur af ytra útliti okkar er
gott að minnast þess. Látum það jafnframt hvetja okkur til að leggja rækt við
samfélagið við Guð þannig að okkar innri maður endumýist dag frá degi.
/(^vWVNOA/i
Kristilegt tímarit
Úlgefendur: Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK og
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
Ritnefnd: Guðmundur Karl Brynjarsson,
Henning Emil Magnússon og Kjartan
Jónsson.
Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,
pósthólf 4060,124 Reykjavík,
sími 588 8899, bréfsími 588 8840.
Árgjald: Kr. 2.700,- innanlands,
kr. 3.200,-til útlanda. Gjalddagi 1. mars.
Verð í lausasölu kr. 500,-.
Umbrot og útlit: Áhrif ehf - Kringlunni 6.
Ljósmyndir: Kristján Einar Einarsson o.fl.
Prenlun: Borgarprent.
Efni:
Staldrað við:
Útlitið .............................. 3
Guðmundur Karl Brynjarsson:
Af vörumerkjunum
skuluð þér þekkja þá.................. 4
Hólmfríður Karlsdóttir:
Fyrirsætubransinn gaf mér
ekkert nema aura...................... 5
Henning Emil Magnússon:
Ritningin rammar lúkkið inn........... 7
Tómas Torfason:
Lúkkið er upplýsingamiðlun............ 8
GunnarJ. Gunnarsson:
U2 - Týndist hugsjónin í umbúðum?...10
Sigurgeir Gíslason:
Á leið til Afríku.......................16
Jóhanna S. Erludóttir:
Boðunarferð í Sina......................19
Salóme H. Garðarsdóttir:
Ég hef augu mín til fjallanna...........20
Margrét Jóhannesdóttir:
Rabbloft í miðbæ Reykjavíkur...........21
Kjartan Jónsson:
Alþjóðleg ráðstefna um kristniboð
GCOWE '97...............................24
Þórdís K. Ágústsdóttir:
Forseti Heimssambands KFUK
í heimsókn á íslandi....................28
Benedikt Jasonarson:
Uppáhalds Davíðssálmurinn
30