Bjarmi - 01.11.1997, Qupperneq 4
Guðmundur Karl Brynjarsson
Af vörumerkinu
skuluð þér þekkja
g trúna
Vara sem á að seljast verður að
líta vel út. Hún verður að
geðjast væntanlegum kaup-
endum. Til að kaupandinn
velji eina tegund af vöru
fremur en aðra þarf hún að vera í
fallegri pakkningum en samkeppnis-
varan og hafa betri ímynd og þokka.
Lúkkið verður að vera í lagi.1
En hvaðan kemur lúkkið? Hver er
umgjörð nútímans á íslandi og farvegur
daglegra þarfa hans? - Ekki verk
Halldórs Laxness, ekki íslendinga-
sögurnar, ekki ijárlögin, ekki fréttirnar
og ekki Biblían, heldur auglýsingarnar.
Það er næstum hvergi hægt að vera án
þess að reka augun í auglýsingar. Þær
eru í biðskýlum, á og í strætó, á bílum, í
gluggum, í hléi í bíó, á húsveggjum, í
blöðum, á búningum íþróttamanna, í
útvarpi og sjónvarpi, á bíómiðum, í
póstkassanum og svo mætti lengi telja.
Alls staðar eru tilboð um hvítari tennur,
bragðminna lýsi, léttari gleraugu og
ódýrari farsíma. Tóm budda er engin
vörn gegn gylliboðunum. Auglýsingarn-
ar gefa tóninn að sinfóníu augnabliks-
ins, hvernig við klæðumst og lyktum,
hvað við drekkum og borðum og hvernig
hár okkar er klippt og greitl hverju
sinni. Við erum flest gangandi auglýs-
ingar um að auglýsingar hafi áhrif,
hvort sem okkur líkar betur eða ver.
Fötin skapa manninn eða
viltu vera púkó?
Hvað veldur því að eitt árið eru bartar
það ilottasta i hártísku karlmanna en
næsta ár eru karlmenn með barta af