Bjarmi - 01.11.1997, Qupperneq 7
Henning Emil Magnússon:
Ritningin
rammar
lúkkið inn!
Allir eiga sér heimsmynd eða
lífssýn. Maðurinn er hugsjóna-
vera. Hann sér ekki eingöngu
með augunum og hvötunum heldur
einnig með huganum. Maðurinn tekur
ákvarðanir og þær eru teknar með
hliðsjón af heimsmynd hans. Heims-
myndin hefur mótandi áhrif á okkur,
beinir okkur í eina átt frekar en aðra.
Hún túlkar heiminn í kringum okkur og
raðar atburðum og viðfangsefnum í
ákveðna forgangsröð.
Sem dæmi um áhrif heimsmyndar má
nefna afstöðu til þjófnaðar. Heims-
myndin eða lífsviðhorfið getur sagt: Þó
að ég vilji hlutinn þá tek ég hann ekki,
þegar annað viðhorf gæti haldið því
fram að það væri réttlætanlegt að stela.
Það sem réttlæti stuldinn gæti verið
eigin fátækt eða annarra. Hér eru strax
komnar þrjár ólíkar skoðanir á sama
hlutnum. Því er eðlilegt að velta því fyrir
sér hvað það er sem hefur áhrif á
heimsmynd hvers og eins.
Heimsmynd
Heimsmynd mótast oft af svörum við
mikilvægum spurningum. Flestir velta
fyrir sér spurningum eins og: Hver er
ég? Hvar er ég? Er líf eftir dauðann?
Hvað er rétt og rangt? Það eru spum-
ingar af þessari gerð sem stýra oft
ákvörðunum. En þó ber að hafa í huga
að sjaldnast mótar einstaklingur sér
heimsmynd meðvitað. Hann tekur ekki
hvem einasta atburð og vegur og metur
út frá grundvallandi spurningum.
Heimsmyndin verður miklu frekar til
ómeðvitað og ef hún er skoðuð náið
koma ef til vill einhveijir gallar í ljós. En
heimsmynd á að vera samstæð og má
ekki vera í mótsögn við sjálfa sig. Það er
ekki heldur hægt að horfa fram hjá þvi
að óskhyggja hefur mikið að segja í
þessum visindum.
Sem dæmi um heimsmynd sem var
smíðuð úr óskhyggju og ófullkomnum
rökum má nefna þá strauma og stefnur
sem réðu rikjum áður en heimsstyijald-
irnar riðu yfir. Víða var mikil trú á
manninum og góðmennsku hans.
Maðurinn var mælikvarði alls, hann gat
slitið sig úr sambandi við allt utanað-
komandi, sjálfur átti hann svör við öllum
lífsins gátum. Mennirnir trúðu á
manninn. En síðan fór maðurinn að
smíða sér vopn og vélar, lííláta og eyða.
Þegar upp var staðið hafði kaldur raun-
veruleikinn afhjúpað heimsmyndina.
Það er mikilvægt að smíða heimsmynd
sína meðvitað. Ekki eingöngu vaða
áfram og „hirða upp af götunni".
„Slökktu á heilanum,
stilltu á Guö!"
Margir halda að til „að stilla sig inn“ á Guð
þá þurfi að slökkva á huganum á meðan.
Þeir gleyma þvi að hugurinn er hluti af
sköpunarverkinu. Það er oft rætt um hlut-
verk hugar og hjarta í trúarlífinu. Menn
vilja stundum líta á þetta sem tvær and-
stæðar fylkingar. Annars vegar þá sem lifa
þurru trúarlífi með huganum og hina sem
eiga lifandi trú með hjartanu. Það er
alvarlegt að aðskilja þessa þætti því að
þeir eru báðir mjög mikilvægir og þeir eiga
að virka saman en ekki sitt í hvoru lagi.
Annað getur ekki staðið án hins.