Bjarmi - 01.11.1997, Síða 11
Þjónustan taki til lífsins alls og þá
skiptir ekki máli hvort fólk vinni í
banka eða sé í rokkhljómsveit. Þetta
vildu þeir gera að veruleika, ekki með
því að verða „gospelhljómsveit“ heldur
með því að láta það sjást að þrír þeirra
væru kristnir rokktónlistarmenn. U2
sýndi þannig fram á að trú, von, kær-
leikur og popp geta átt samleið en einnig
glíman við efann í heimi sem er fullur
ranglætis, kúgunar og ófriðar. Popp-
heimurinn hafði eignast hljómsveit með
hugsjón.
Þetta kemur berlega fram í textum
hljómsveitarinnar sem oftast eru eftir
Bono, bæði á þann hátt að kristinn boð-
skapur er viðfangsefnið og einnig
þannig að ýmislegt í nútíma samfélagi
og atburðum samtímans er tekið til
gagmýninnar umljöllunar í ljósi kristi-
legs siðgæðis og gildismats. í áður-
nefndu viðtali líkir Bono Jesú við
uppreisnarmann sem hafi snúist gegn
ýmsum viðteknum venjum samtímans
og telur að kristnir menn hafi sama
hlutverk nú á dögum og það sé af nógu
að taka. Textar hans fjalla þvi um stríð
og frið, réttlæti og ranglæti, frelsi og
kúgun, líf og dauða, trú, von og kær-
leika og Guð.
Framan af ferli hljómsveitarinnar er
kristinn boðskapur hennar oft mjög
greinilegur. Á ferðinni eru ungir menn,
gripnir af trú sinni og hugsjón, tilbúnir
að leggja sitt af mörkum „til að frelsa
heiminn". Þeir eru lagðir af stað í kross-
ferð með boðskap Krists að vopni gegn
öllu hatri, vonleysi, ranglæti, kúgun og
ófriði. Gott dæmi er af þriðju stórskífu
hljómsveitarinnar, War. í texta lagsins
Sunday, Bloody Sunday, minnast U2-
félagar þess blóðuga sunnudags þegar
breski herinn barði niður
uppreisn á ír-
landi af mik-
miklu meira og beinist gegn hverskyns
ofbeldi og tilgangsleysi þess. í niðurlagi
textans er vísað í sigur Jesú yfir hinu
illa í upprisunni. Hin raunverulega
barátta er rétt byijuð, sú að gera tilkall
til sigursins sem Jesús vann.
Ýmsir hafa skipt ferli U2 í tvennt og
talað um að fyrsti áratugurinn hafl verið
tími krossfararinnar og hins trúarlega
ákafa. Sem dæmi um það og kristinn
boðskap hljómsveitarinnar má nefna tvo
texta á annarri plötu hennar, October.
Textinn Tomorrow lýsir tvenns konar
tilfinningum. Annars vegar söknuði
Bonos eftir móður sína en hún lést
u.þ.b. tveim árum áður en U2 varð til,
og hins vegar ákafri þrá eftir komu Jesú
sem gefur blindum sýn með kærleika
sinum og læknar öll sár. Söknuðurinn
eftir móðurmissinn verður að þrá eftir
þeirri stund þegar ástvinir sameinast á
ný í guðsríki. í textanum er einnig
hvatning til að ljúka upp fyrir Jesú sem
stendur við dyrnar og trúa á hann.
Hitt dæmið af sömu plötu er lagið
Gloria sem er í senn eins konar dýrðar-
söngur (Gloria in Te Domine, Gloria
exultate) og bæn til Guðs um að hann
gefl kraftinn sem þarf til að standa upp
°g syngja lofsönginn og leysl haft
tungunnar svo söngurinn geti hljómað.
Loks er svo heit um að gefa Drottni allt í
eins konar lofgjörðarfóm. Stef úr Davíðs-
sálmum enduróma því á vissan hátt í
þessum texta. í því sambandi má
einnig minna á að U2-menn sömdu lag
við 40. Davíðssálm, v. 2-4. Þar segir
m.a.: „Ég hef sett alla von mína á Drottin,
og hann laut niður að mér og heyrði
kvein mitt. (...] Hann lagði mér ný ljóð í
munn, lofsöng um Guð vom.“ í nokkur
ár var þetta lokalag allra tónleika sveitar-
innar. Fleiri lög og texta mætti nefna
þar sem boðskapur um kærleika, frið og
sátt meðal manna er áberandi.
Margir þekkja t.d. lagið
Pride (In the Name of
Love) af plötunni The
Unforgettable Fire
frá 1984 sem er
samið í minningu
blökkumanna-
leiðtogans
Marteins Lúther
King.
Biðin eftir árangri
Þegar komið er fram á síðari hluta
níunda áratugarins eru liðsmenn U2
enn á krossferð sinni. í textum sínum
draga þeir fram ástandið i heiminum og
minna á ábyrgðina sem við bemm hvert
á öðm sem búum saman á þessari jörð.
Hungursneyð í Eþíópíu og afleiðingar
hennar em t.d. hugleiðingarefni í laginu
Where the Streets Have No Name af
plötunni The Joshua Tree frá árinu
1987. En óþreyjan fer vaxandi. Ástandið
í heiminum breytist lítið og biðin eftir
guðsríkinu dregst á langinn. Texti
lagsins I Still Haven’t Found What I’m
Looking For af sömu plötu var af
sumum túlkaður sem merki um vax-
andi efasemdir hljómsveitarmanna. Þar
er m.a. talað um trúna á komu guðsríkis-
ins og biðina eftir því og um hann sem
braut hlekkina, bar krossinn og skömm
okkar. Játning trúar fylgir („You know I
believe it“) en síðan kemur viðlagið:
„But I still haven’t found what I’m look-
ing for” (Ég hef ekki enn fundið það sem
ég leita). Af samhenginu er ljóst að ekki
em á ferðinni efasemdir um grundvöll
trúarinnar. Efinn og glíman í textanum
lýsir ákveðnu eirðarleysi eða þrá og
beinist að því hvenær við fáum að sjá
guðsríkið koma. Á máli guðfræðinnar
væri sagt að textinn sé „eskatólogískur”.
Hann fjallar um trúna á guðsríkið sem
er þegar raunveruleiki vegna þess sem
Jesús gerði en lýsir jafnframt biðinni og
þránni eftir að fá að sjá sigur þess ná
fram að ganga. Sama lag kemur
fyrir á plötunni Rattle and
Hum og er þar flutt á
tónleikum með
aðstoð kórs.
Gunnar J. Gunnarsson
er iektor við Kennara-
háskóla íslands.