Bjarmi - 01.11.1997, Side 14
I Still Haven’t
Found What
l’m Looking
For
I have climbed the highest
mountains
I have run through the fields
Only to be with you
Only to be with you
I have run, I have crawled
I have scaled these city walls
Only to be with you
But I still haven’t found what I’m
looking for
But I still haven’t found what I'm
looking for
I have kissed honey lips
Felt the healing in her fingertips
It bumed like fire
This buming desire
I have spoke with the tongue of
angles
I have held the hand of a devil
It was warm in the night
I was cold as a stone
'But I still haven’t found what I’m
looking for
But I still haven’t found what I’m
looking for
I believe in the Kingdom Come
Then all the colors will bleed into
one
But yes I’m still mnning
You broke the bonds
You loosed the Chains
You carried the cross
And my shame
And my shame
You know I believe it
But I still haven’t found what I’m
looking for
But I still haven't found what I’m
looking for
The First Time. Faðir hans gefur honum
lykilinn að ríki sínu. Honum standa til
boða hinar mörgu vistarverur í húsi
hans (sbr. Jóh. 14:2) en hann kýs að
laumast út bakdyramegin og kasta
lyklinum. En það er þá fyrst þegar hann
hefur glatað öllu sem hann átti að hann
uppgötvar að hann er elskaður.
Glíman
Liðsmenn U2 tóku sér aftur nokkurt hlé
eftir ZOO TV og Zooropa og vom hver í
sínu lagi að fást við ýmis verkefni. En í
mars sl. kom Pop út. Enn breyttust
umbúðimar nokkuð. Dans- og hip-hop-
tónlist samtímans setur sitt mark á
plötuna án þess þó að persónueinkenni
U2 hverfi. PopMart tónleikaferðin kom í
beinu framhaldi og enn er haldið áfram
á sömu braut og í ZOO TV. Sjónvarps-
tæknin og skrautsýningin em notuð til
hins ítrasta. Stærsti sjónvarpsskjár í
heimi er settur upp og kostnaðurinn er
eftir því. Enn vaknar spurningin um
trúverðugleika krossfaranna frá Dyflinni.
Hefur hugsjónin nú endanlega dmkknað
í umbúðunum og popp-mennskan tekið
völdin?
Talað hefur verið um að Pop sé
þverstæðukenndasta plata U2. í við-
tölum hafa þeir félagar bent á að þver-
stæðan birtist í því að tiltill plötunnar
og öll umgjörð sé lýsandi fyrir allt það
sem er yfirborðslegt í menningu okkar.
Á sama tíma inniheldur platan texta
sem taka fyrir öll stóru og erfiðu mál-
efnin svo sem Guð, trú, ást, þrá, angist,
efa, mannleg samskipti og hlutskipti
fólks í hrelldum heimi. Liðsmenn U2
tala um að þeir séu sömu hugsjóna-
menn og fyrr þrátt fyrir að hafa pakkað
boðskapnum inn í umbúðir tækni, sjón-
varps og auglýsingagfyss og gert sjálfa
sig þáttakendur í öllu saman. Það sé
hluti af kaldhæninni. Og hún er vissu-
lega enn er til staðar líkt og á Achtung
Baby og Zooropa. í viðtali líkti Bono
þessu við að þeir væru með þessu að
eyðileggja eigin veislu. Þeir vildu draga
upp alvöru mynd af veruleikanum
andspænis allri auglýsingamennskunni.
Og kynslóðin sem ætlunin er að ná til er
sjónvarps-, vídeó- og tölvukynslóðin.
Trúin á Guð og glíman við efann er
áberandi á Pop. Sömuleiðis þráin eftir
friði og sátt í veröldinni. Kærleikurinn er
bæði torveldur og erfiður og oft eitthvað
allt annað en við hugsum okkur (Please)
og því tekst seint að koma á friði. Guð
er vissulega góður en hlustar hann á
bænir um frið og sátt í heiminu (Staring
at the Sun)? Hefur hann e.t.v. tekið
símtólið aí? Og hvað myndum við gera
ef Guð tæki nú upp á því að senda okkur
engil eða tákn? Við sem höfum gert
Jesú að söluvöru og afneitað trúnni,
voninni og kærleikanum þykjumst
tendra á jólatrénu með kærleika en í
hræsni okkar sprengjum við öryggin (If
God Will Send His Angels).
Athyglisverðasti textinn á plötunni er
án efa Wake Up Dead Man. Þar nær
trúarglíman hámarki. Um er að ræða
harmljóð, gremjufulla bæn eða angistar-
hróp til Guðs sem virðist hulinn í vond-
um heimi og ætlar seint að gripa inn í.
Sú reynsla og þær tilfinningar sem
textinn lýsir eru sameign þeirra sem
hafa þurft að glíma við Guð andspænis
áföllum lífsins og þeirri staðreynd að
veruleikinn er kaldur og hrjúfur og
illskan og hremmingamar leika lausum
hala. Hvar er Guð, hann sem skapaði
heiminn á sjö dögum, í slíkum aðstæð-
um? Af hverju leyfir hann öll þessi áföll
og þjáningu? Bæn Bonos er: „Jesús,
Jesús, hjálpa þú mér. Ég er einn í
þessum heimi og hann er auk þess eitt
allsheijar klúður. Segðu mér söguna af
eilífðinni, af því hvernig allt muni
verða.” Hann heldur áfram og segist vita
að Jesús líti eftir okkur en veltir því fyrir
sér hvort hendur hans séu bundnar.
Síðan biður hann Jesú að tala máli sínu
frammi fyrir föðurnum sem fer með
völdin á himni en hverfur svo aftur að
heimi óreiðunnar og þjáningarinnar í
lokin og spyr hvort Jesús hafi verið rétt
handan við homið þegar sfysið varð eða
hvort hann sé að vinna að einhverju
nýju, hvort það sé einhver regla í allri
óreiðunni og hvort það sé mögulegt að
spóla til baka og byrja upp á nýtt.
Viðlagið er: Wake up, wake up dead
man. Ef til vill er þar í senn bænarhróp
um að Jesús gefi nú gaum að orðum
biðjandans en um leið gæti það einnig
beinst að þeim sem biður, að hann gæti
nú að og hefji sig yfir alla ringulreiðina
og hlusti betur eftir því sem Guð gerir
þrátt fyrir allt.
Hugsjón og umbúðir
í viðtölum sem hafa fylgt í kjölfar
útkomu Pop hafa þeir U2-félagar verið
spurðir töluvert um trú sína og hug-