Bjarmi - 01.11.1997, Side 15
sjónir, bæði vegna þess að lífsstíll þeirra
hefur breyst, umbúðirnar um tónlist
þeirra og tónleikahald eru fyrirferðar-
miklar og þess að textamir á Pop taka
þrátt fyrir það enn á stóru málunum
þótt það sé meira í formi spumar og efa
en fyrr á ferlinum. Bono og The Edge
hafa báðir lagt áherslu á að þeir séu
trúaðir. Bono segist sannfærður um að
að baki heiminum sé kærleikur og
rökleg hugsun en telur jafnframt að
þegar trúin er orðin að trúarbrögðum
(religion) þá yfirgefi Guð bygginguna.
Trúarbrögðin séu í raun óvinur Guðs
vegna þess að þau afneiti oft beinni
verkan Andans og í þvi sambandi vitnar
hann til Jóh. 3:8. Hann sér engin rök
fyrir þvi að textar hans feli allir í sér
hamingju og gleði og minnir á að Davíðs-
sálmarnir endurspegli bæði trega og
þjáningu. Hann segist ekki finna sig í
kirkjusókn og telur að það umhverfi sem
hann ólst upp í hafi þar áhrif. Nefnir þó
í því sambandi dæmi um kirkju í San
Francisco sem hann gæti hugsað sér að
sækja en það er kirkja sem leggur áherslu
á að mæta þörfum þeirra sem eru
utangarðs í samfélaginu.
The Edge tekur á vissan hátt í svipað-
an streng. Hann telur trúarathafnir geta
haft sitt gildi en til að brúa bilið þurfi
persónulegt samband. Þegar hann er
síðan spurður að því hvort hann biðji
bænir svara hann þvi játandi en bætir
við að ef unnt væri að útskýra trú til
hlitar væri það ekki lengur trú.
Það er ljóst að liðsmenn U2 eru ekki
sömu krossfarar og þeir vom í upphafi.
Trú þeirra og lífsstíll hefur þróast og
breyst. Umbúðirnar um það sem þeir
vilja koma á framfæri eru auk þess
orðnar slíkar að vissulega má spyrja sig
hvort hugsjónin sé að drukkna í þeim og
hvort hljómsvetin sé komin of langt frá
uppruna sínum til að geta talist trú-
verðug. Hitt er þó jafnljóst að textamir á
Pop sýna að sömu málefni eru þeim
hugleikin og þeir vilja koma þeim á
framfæri. Aðferðirnar eru aðrar en í
upphafi ferils hljómsveitarinnar og
nálgunin önnur. Bono mun hafa sagt
þegar umgjörðin um PopMart tónleikana
barst í tal að þann sem kominn er úr
bílskúmum langi ekkert þangað aftur og
að þeir vilji með þessu leggja leikvang-
ana undir sig í stað þess að hverfa í
mannhaflnu.
Gagnrýnin á ástandið í heiminum,
þráin eftir friði og spurningin um Guð í
allri ringulreiðinni er áberandi rauður
þráður á Pop. Þegar öllu er á botninn
hvolft er það ef til vill styrkur U2 að
þeim tekst að boða fagnaðarerindið á
jarðbundinn hátt með aðferðum sem ná
til ungs nútímafólks. Þeir hafna yfir-
borðsmennskunni og ódým lausnunum
og þora að horfast í augu við glímuna
við efann og þá staðreynd að það er ekki
alltaf auðvelt að trúa á Guð. En þeir
afneita honum ekki og benda á hrokann
sem felst í því að kenna honum um það
sem aflaga fer hjá okkur. Þeir viður-
kenna eirðarleysi sitt í biðinni eftir því
að ástandið í heiminum lagist og eitt-
hvað gerist í réttlætis- og friðarmálum.
Um leið viðurkenna þeir eirðarleysið í
biðinni eftir að tími guðsríkisins renni
upp því ...they still haven’t found what
they're looking for.
Wake Up
Dead Man
Jesus, Jesus, help me
I’m alone in this world
And a fucked up world it is too
Tell me, tell me the story
The one about etemity
And the way it’s all gonna be
Wake up, wake up dead man
Wake up, wake up dead man
Jesus, I’m waiting here boss
I know you’re looking out for us
But maby your hands aren’t free
Your father, He made
the world in seven
He’s in charge of heaven
Will you put in a word for me
Wake up, wake up dead man
Wake up, wake up dead man
Listen to your words they’ll tell
you what to do
Listen over the rhythm
that’s confusing you
Listen to the reed in the saxophone
Listen over the hum of the radio
Listen over sounds of blades
in rotation
Listen through the traffic
and circulation
Listen as the hope and peace
tiy to rhyme
Listen over marching bands
playing out their time
Wake up, wake up dead man
Wake up, wake up dead man
Jesus, were you just around
the comer?
Did you think to try and wam her?
Or are you working
on something new?
If there’s an order in all
of this disorder
Is it like a tape recorder?
Can we rewind it just once more?
Wake up, wake up dead man
Wake up, wake up dead man