Bjarmi - 01.11.1997, Qupperneq 16
Sigurgeir Gíslason
Ibyrjun ágústmánaðar lagði 12
manna hópur af stað til Afríku,
nánar tiltekið Kenýu. Tilgangur
ferðarinnar var fyrst og fremst
sá að kynnast því starfi sem
íslenskir kristniboðar hafa tekið þátt í, í
þessum heimshluta. Hópurinn saman-
stóð af einum fararstjóra, Kjartani
Jónssyni, kristniboða, einum aðstoðar-
fararstjóra, Sigríði Schram, kennara, og
10 manna hópi. Eftir ævintyralega ferð
og svaðilfarir við miðbauginn þá kom
þessi ferski hópur til landsins í lok
sama mánaðar.
Leiðin út
Það er kuldalegt en engu að síður stað-
reynd að á íslandi telst það vera hita-
bylgja ef hitastigið fer yfir 20°C en á þeim
stað sem við dvöldumst á við strönd
Indlandshafsins á leiðinni á áfangastað
fer hitastigið ekki mikið undir 20° C. Til
gamans má geta að við fórum út í ágúst
sem einmitt er einn kaldasti mánuður-
inn í Kenýu.
Ferðin hófst eins og flestar utanlands-
ferðir á Keflavíkurflugvelli. Eftirvænt-
ingin var mikil en hópurinn hafði tekið
nokkra mánuði í undirbúning og kynnt
sér kenýska menningu og það starf sem
íslenskir kristniboðar hafa tekið þátt í
þar. Núna áttum við að fá að sjá það
sem við höfðum verið að læra um.
Strax og við millilentum í höfuð-
borginni Nairóbí fengum við smjör-
þefinn afafrísku skipulagi. Allt gekk
Á gistiheimíli KFUIVI í Nairóbí. Önnur og þriðja frá hægri á myndinni eru Jóhanna og
Salóme (sjá greinar).
mjög hægt fyrir sig og skipulagið var
síður en svo upp á marga flska, þ.e.a.s.
ef við miðum við það hraða þjóðfélag
sem við búum í. En eins og fararstjór-
inn sagði: „Þó svo að allt klikki þá fer
allt saman vel að lokum." Eftir dágóðan
tíma fengum við landvistarleyfi en þá
tók bara næsta bið við en það var biðin
eftir töskunum. Töskurnar áttu að fara
alla leið til „strandborgarinnar" Mombasa
en hið afríska skipulag klikkaði ekki og
við þurftum að leita töskumar uppi og
koma þeim yfir í næstu flugvél. Þess
má reyndar geta að allir fengu töskum-
ar sínar nema fararstjórinn okkar, hann
Kjartan, þar sem báðar töskumar hans
týndust einhvers staðar í flugkerfinu.
Annars er alveg nauðsynlegt að lenda í
einhverjum svona atburðum því að þeir
eru upplifun útaf fyrir sig og maður
man bara betur eftir því góða fyrir vikið.
Mombasa
Borgin Mombasa liggur að Indlandshafl
en þar em sendnar strendur og mikið af
kóralrifjum sem eru alveg einstakar
náttúruperlur, sérstaklega þó í augum
ferðamanna sem vita varla hvað sumar
og suðurhöf eru. Nokkra kílómetra frá
hótelinu, sem við gistum á fyrstu
víkuna, er ævagömul steinmoska. Við
tókum okkur góðan tíma til að komast
að henni og berja hana augum.
Við ströndina er Digoættbálkurinn
ríkjandi en honum tilheyra fyrst og