Bjarmi - 01.11.1997, Blaðsíða 17
Þrjár úr hópnum við moldarhús.
fremst múslimar. Þegar kristniboðar
byrjuðu með starf á þessu svæði varð
lengi vel enginn árangur, Flestir
íbúarnir teljast til múslima og margir
þeirra hafa verið mótfallnir kristilegu
starfi og því hefur starfið bæði verið
umst mjög fljótlega að því að kristni-
boðar njóta líka þeirra fáu fria sem þeir
fá á hveiju ári þama en þessi strönd var
einmitt einn af þeim sumarleyfisstöðum
sem era hvað vinsælastir meðal kristni-
boðanna í Kenýu. Hótelið frábært, í
paradísarstíl (notaðu imyndunaraflið),
þjónustan íyrsta flokks, maturinn ólýsan-
legur, menningin öðmvisi og við lærðum
að prútta á ströndinni við Indlandshaf.
Útvarpskristniboð í
þjóðgarði
Að þessari viku lokinni, sem var fyrst og
fremst tileinkuð algjörri hvíld, þá fómm
við á næsta áfangastað sem var kristni-
boðsstöð á landssvæði sem heitir Voi.
Þessi tiltekna kristniboðsstöð er girt af
vegna öryggisástæðna en að henni liggja
þorp úr annarri átt, sem er kannski ekki
svo mikill ógnvaldur, en hinn nágrann-
inn er mun illskeyttari ef í harðbakka
slær, en það er einn helsti þjóðgarður
landsins sem liggur að hinni hliðinni. í
örfá skipti hafa varasöm villidýr af ýms-
um stærðum farið í gegnum girðinguna
en ef maður fer að öllu með gát og fylgir
helstu öryggisreglum þá fer allt vel - að
lokum.
Hópurinn gisti eina nótt í Voi og dag-
inn eftir var farið í þjóðgarðinn þar sem
við gerðum heiðarlega tilraun til að sjá
ljón. Það tókst ekki en hinsvegar sáum
við nóg af fílum og antilópum fyrir
lífstíð. Útsýnið yfir sléttuna í þessum
þjóðgarði er alveg þrælmagnað og fyrir
þá sem hafa séð „Lion king“ þá er
nokkuð ljóst að þessi slétta á Voi er
fyrirmyndin. Ástæðan fyrir ferðinni til
Voi var aftur á móti sú að kynna okkur
það útvarpskristniboð sem þar er
stundað.
Á kristniboðsstöðinni búa norsk hjón,
sem reka þessa stöð í samráði við nokkra
Starfið er ekki einungis erfitt fyrir kristniboðana
heldur ekki síður fyrir pd kristnu sem hafa snúið
baki við múslimskri trú pví samfélagið er á móti
peim, peim er hafnað af fjölskyldum sínum, auk pess
leggja margir seiðmenn bölvun á pennan söfnuð.
mjög erfitt og niðurdrepandi. Hjólin fóru
fyrst að snúast þegar fyrstu tveir músl-
imarnir snerust til kristinnar trúar en
mjög hægt þó. Starfið er ekki einungis
erfitt fyrir kristniboðana heldur ekki
síður fyrir þá kristnu sem hafa snúið
baki við múslimskri trú þvi samfélagið
er á móti þeim, þeim er hafnað af
fjölskyldum sínum auk þess leggja
margir seiðmenn bölvun á þennan
söfnuð. Lauslega áætlað er einn seið-
maður á hverjar fimm fjölskyldur.
Aðeins um 50 manns eru í söfnuðinum
sem við heimsóttum við ströndina.
Besta vika í heimi
Fyrsta vikan fór fyrst og fremst í af-
slöppun þar sem við nýttum stærsta
hluta hennar við ströndina. Við kom-
Kirkjan, sem gefin var af Margréti Hjálmtýsdóttur.