Bjarmi - 01.11.1997, Side 21
Margrét Jóhannesdóttir
Rabbloft
ímiðbæ
Reykjavíkm'
Af hverju eruð þið hér? Er
þetta eins konar trúboð? Af
hverju eruð þið að þessu?
Margir unglingar hafa spurt
þessara spurninga og undr-
ast að hópur fólks skuli fara niður í
miðbæ Reykjavíkur um hánótt til að
ræða við unglinga - og það kauplaust.
Það er aðfararnótt laugardags. Við
erum stödd á Rabbloftinu í miðbæ
Reykjavíkur. Við öll borð og í öllum
krókum er verið að spjalla.
í einum sófanum sitja tveir menn
niðursokknir í samræður. Annar þeirra
er á fertugsaldri og er sjálfboðaliði í
miðbæjarstarfi KFUM og KFUK. Hinn er
unglingur sem hafði verið að rölta um
miðbæ Reykjavíkur og frétt af þessu
háalofti í gamla húsinu í Austurstræti.
Umræður þeirra snúast greinilega um
kristna trú þvi að þeir fletta ákaft upp í
Nýja testamentinu og þeir virðast ekki
láta ysinn í kring trufla sig. Strákurinn
ætlar væntanlega að halda áfram að
hugsa málið því að hann þiggur Nýja
testamentið sem maðurinn færir honum
og stingur því í vasann til að taka með
sér heim.
Við eitt af kringlóttu borðunum sitja
tveir strákar önnum kafnir við að dýfa
matarkexi í kakó og sá þriðji sem virðist
vera edrú hristir höfuðið yfir sóðaskap
félaga sinna. Konan, sem þjónar við
„kafflbarinn", sest við borðið til að ná
tali af strákunum en þeir flissa og tauta
eitthvað óskiljanlegt. Það nást engar
samræður við strákana í þetta skipti en
þeir játa að það sé betra að hafa það
aðeins huggulegt í kringum sig. Og eru
fegnir þegar konan þurrkar borðið og
kveikir á kertinu sem var nýbúið að fá
kakóskvettu. Strákarnir stoppa stutt,
skilja bollana eftir háfffulla og staulast
niður bröttu tröppumar út í rigninguna
i Austurstræti.
Við næsta borð sitja tveir ungir menn i
heimspekilegum umræður um Sókrates
og Jesú. Ekki fer frekari sögum af þeim
orðaskiptum.
Hinstu rök tilverunnar
Samræðumar úr rökkrinu í innsta sófa-
króknum eru orðnar frekar háværar.
„Er þetta ekki kristilegur staður? Ætlið
þið ekki að fræða okkur? “ spyr strákur
og sýpur rjúkandi heitt kakó. Spurn-
ingunni er varpað til baka til hans: „Viljið
þið ekki frekar fræða okkur, til dæmis
um hver þið haldið að Guð sé?“ Ungi
maðurinn er ekki seinn að svara: „Hann
er skaparinn." En vinur hans sem situr
við hliðina á honum er ekki á sama máli
og lýsir æstur trú sinni á þróun eins og
lærifaðirinn Darwin kenndi. En þegar
hann hugsar um mikilleik geimsins,
sem X-flles hafa lýst á svo lifandi hátt,
finnst honum það líklegt að einhver
vitsmunavera úti í geimnum standi að
baki þessu öllu. Hann segist ekki hafa