Bjarmi - 01.11.1997, Page 22
Þessi fjögur voru fús að stilla sér upp fyrir Ijósmyndara Bjarma.
hugmynd um hvernig þessi vera er og
telur það útilokað fyrir manninn að
komast að því. Þeir hugleiða síðan þá
spurningu hvort það gæti hugsast að
þessi vitsmunavera gæti talað til okkar.
Hún er ekki meir en fimmtán ára og
er orðin góðkunnug sjálfboðaliðunum.
Óróleiki einkennir fas hennar en hún
brosir oftast. Þegar líður á kvöldið
hangir hún varla uppi lengur. Hún ælir
og kona sest hjá henni, heldur utan um
hana og réttir henni þurrkur. Vinur
hennar hringir heim tll hennar og maður
kemur og sækir hana og virðist ekki
vera brugðið að sjá hana í svona ástandi.
Hún er ekki meir en fimmtán ára og er orðin góðkunnug sjálfboðaliðunum.
Óróleiki einkennirfas hennar en hún brosir oftast. Þegar líður á kvöldið hangir
hún varla uppi lengur. Hún ælir og kona sest hjá henni, heldur utan um hana
og réttir henni purrkur.
Þeim finnst ekki útilokað að hún gæti
sjálf sagt okkur hver hún er og hvemig
heimurinn er. Þeir vilja halda því fram
að þessi vera sé góð en hvers vegna er
þá svona mikið illt í heiminum? Einn
strákanna vill meina að það sé nauð-
synlegt að það sé jafnvægi milli góðs og
ills. Sjálfboðaliðarnir útskýra að Biblían
segi að við lifum í afbrigðilegum heimi
og í upphafi hafi allt verið gott. Þau tala
um Guð sem elskar og um að maðurinn
hafi frjálsan vilja. Tvær stelpur hafa
bæst í umræðurnar og smám saman
verður erfitt að halda þræði því að
skoðanaskiptin hafa þróast í að vera
tæki til að sýnast og samræðan verður
hávær og leysist upp. Strákarnir lýsa
yfir ánægju sinni með spjallið um
heiminn og geiminn og halda síðan út.
Stundum yemjur mikið á í Austurstrætinu, svo sjálfboðaliðar hafa í mörgu að snúast.