Bjarmi - 01.11.1997, Page 23
Hann fær aðstoð við að styðja stúlkuna
út í bíl. Maðurinn þakkar íyrir hjálpina
og fer með ungu stúlkuna heim.
Það er orðið þröngt um manninn í
Austurstræti. Enda er klukkan orðin
þrjú og skemmtistöðum hefur verið
lokað. Fólk streymir lika út úr Rabb-
loftinu þvi að nú er staðnum lokað og
helgistundin að byija. Það er setið í öll-
um sófunum og á gólfinu og sungið við
gitarundirleik. Að þessu sinni er óvenju-
gott hljóð meðan hugleiðingin er. Það er
bara ein stelpan sem er með framíköll
og á í mesta basli með að halda buxun-
um á réttum stað svo þær séu hvorki
ósiðlega langt niðri né ósiðlega hátt uppi.
Helgistundin er lokapunktur kvöldsins
á Rabbloftinu.
Á döfinni
Margir unglingar láta sjá sig aftur og
aftur á Rabbloftinu og það er ekki sjald-
an að þau taka upp þráðinn þar sem frá
var horflð; „Manstu það sem við töluð-
um um síðast?“ Mjög oft þakka þau
fyrir spjallið og segjast vilja ræða málin
betur seinna. Nokkrir unglingar i Kristi-
legum skólasamtökum hafa í huga að
bjóða fastagestum Rabbloftsins í svo-
kallaða blandaða biblíuleshópa. Það er
hópstarfsemi sem miðar að því að gefa
einstaklingum, sem enn hafa ekki tekið
afstöðu með Kristi, tilboð um að
kynnast Biblíunni og kristinni trú betur.
í þessum hópum er æskilegt að hinir
kristnu séu í minnihluta til þess að hið
kristna samfélag verði ekki yfir-
þyrmandi fyrir þá sem enn eru leitandi.
Markmið hópanna er að allir skilji út frá
lestri biblíutexta hver Jesús er og hvað
hann vill okkur.
Unglingar hafa óskað eftir því að
Rabbloftið sé opnað líka á laugardags-
kvöldum. Þar sem næturvökur tvisvar í
viku verða of krefjandi fyrir sjálfboða-
liðana er ætlunin í staðinn að bjóða upp
á laugardagssamverur með dagskrá fyrr
Gísli Friðgeirsson, einn af leiðtogum
miðbæjarstarfsins, hellir upp á könnuna.
um daginn. Unglingarnir eru hópsálir
og hafa þörf fyrir að hitta jafningja sína
og vonandi geta þessar samverur komið
til móts við þarfir þeirra og jafnframt
verið tilboð sem vekur þá til umhugs-
unar á ýmsum sviðum lífsins.
Horfttil framtíðar
I samtölum við unglinga á Rabbloftinu
kemur það oft í ljós að margir eiga erfltt.
Þau sem stunda miðbæinn mest eru oft
einstaklingar sem gefa til kynna að þeim
líði ekki vel heima. Það er eitthvert vesen
heima. Sumir þeirra eru í fjötrum vímu-
efna. Miðbæjarstarf KFUM og KFUK
miðar að því að mæta einstaklingnum
þar sem hann er staddur. Til þess að
geta komið til móts við þarflr einstakl-
inga verðum við að hafa öfluga söfnuði
með okkur. Sú hugmynd hefur komið
fram að hver söfnuður velji einn aðila
sem á að vera tengiliður við miðbæjar-
starfið. Hlutverk tengiliðsins gæti verið
að miðla bænarefni og þakkarefni til
bænahópa safnaðarins. Einnig gæti
I samtölum við unglinga á Rabbloftinu kemur pað
oft í Ijós að margir eiga erfitt. Þau sem stunda
miðbæinn mest eru oft einstaklingar sem gefa til
kynna að peim líði ekki vel heima. Það er eitthvert
vesen heima.
tengiliðurinn miðlað upplýsingum til
hópa eða einstaklinga í söfnuðunum
sem eru tilbúnir að liðsinna unglingi í
vanda. Þannig starfar kirkjan sem ein
heild, sem líkami Krist.
Söfnuðir þrá kirkjuvöxt og kristileg
samtök vilja vakningu en er öllum ljóst
hvað þeir eru í raun og veru að biðja
um? Eru kristnir menn á íslandi í dag
tilbúnir að láta kollvarpa sínum lífs-
venjum og „kósi" samverum til þess að
sinna fólkinu sem kemur, opna sam-
félagið og heimili sitt? Það gæti hugsast
að þau sem koma séu ekki úr efri mið-
stétt samfélagsins í fínum fötum og með
sæmandi framkomu. Það gæti einhver
komið inn í samfélagið sem er sautján
ára og heimilislaus eða fimmtán ára og
á von á sínu öðru bami. Hvað gera vinir
Krists þá?
Kirkjan er líkami Krist, gefin heimin-
um til þjónustu, í kærleika og sannleika.
Það er ekki velferðarkerfið sem er líkami
Krist, heldur þeir sem tilheyra honum.