Bjarmi - 01.11.1997, Side 25
Bræður og samherjar. Frá vinstri: Greinarhöfundur, Luis Bush, aðalframkvæmdastjóri AD
2000 and Beyond, Helge Hoilerud, umsjónarmaður kristniboðs lúthersku fríkirkjunnar í
Noregi, og Torbjörn Lied, aðalframkvæmdastjóri Santalmisjonen í Noregi.
um allan heim 97. Hún var haldin á
vegum stærstu kirkjulegu alþjóða-
hreyfingar samtímans, AD 2000 and
Beyond, Árið 2000 eftir Krist og áfram.
Þetta er hreyfing mótmælenda sem
leggur áherslu á kristna boðun á meðal
þeirra sem ekki þekkja fagnaðarerindi
Jesú Krists, hvarvetna í heiminum, með
sérstakri áherslu á hinum svokallaða
10/40 glugga sem er svæði sem
spannar frá 10° til 40° norðlægrar
breiddar frá Vestur-Afríku í vestri til
Austur-Asíu í austri en þar búa flestar
þeirra þjóða þar sem kristinn vitnis-
burður er lítill eða enginn. Hreyfingin
hvetur einnig kristna menn til að biðja
fyrir þjóðunum á þessu svæði. Þarna
eru heimkynni flestra hindúa,
múhameðstrúr- og búddatrúarmanna
heimsins. Þar er einnig mesta fátækt,
ólæsi og heilsuleysi heimsins. Mörg
landanna eru lokuð erlendum
kristniboðum.
Leiðtogar AD 2000 and Beyond vilja
halda áfram verki Lausannehreyfingar-
innar sem hófst með hinni miklu
ráðstefnu í Lausanne í Sviss árið 1974
og Billy Graham kallaði til. Þar komu
saman 4.000 kirkjuleiðtogar, kristni-
boðar og aðrir frá 157 þjóðlöndum.
Sumir töldu að það hefði verið mesta
ráðstefna kirkjusögunnar fram að þeim
tíma. Þar var m.a. fjallað um hvernig
hægt væri að ná allri heimsbyggðinni
með fagnaðarerindi Jesú Krists. Á henni
var Lausannesáttmálinn ritaður undir
forystu enska prestsins og guðfræðings-
ins Johns Stotts. Orðin úr 6. grein hans
hafa orðið eitt af slagorðum hreyfingar-
innar: „Öll kirkjan er kölluð til að boða
öllu mannkyni allt fagnaðarerindið.“ Sátt-
málinn er mjög mikilvægur á meðal svo-
kallaðra evangelískra kristinna manna
enn þann dag í dag (hann er til í íslenskri
þýðingu). Eftir ráðstefn-
una var Lausanne-
hreyfingin stofnuð.
Hún starfaði af miklum
krafti fram á seinni
hluta 9. áratugsins er
henni var breytt i litlar
landshreyfingar (útibú
hennar er til á íslandi).
Kínverjinn Thomas
Wang, sem kallaður
hafði verið til að vera
leiðtogi hinnar alþjóð-
legu Lausanne hreyf-
ingar, ritaði grein árið
1987 sem bar yfir-
skriftina: „Er Guð að
reyna að segja okkur
eitthvað með ártalinu
2000?" Þetta leiddi til
þess að alþjóðleg ráð-
stefna var kölluð saman
í Singapore í janúar
árið 1989. Hana sóttu
um 300 manns frá 50
löndum. Hún var köll-
uð GCOWE '89. Þar
var fjallað um mfklvægi
þess að auka áhuga, bæn og starf krist-
innar kirkju til að ná heimsbyggðinni
með fagnaðarerindi Jesú Krists. Þá þegar
var ljóst að margar kirkjur og kristni-
boðsfélög höfðu ýmsar áætlanir um
boðun fagnaðarerindisins sem miðuðu að
því að ná hámarki árið 2000. Spakur
maður taldi sig hafa fundið út að þær
væru um 2.000 talsins. Ráðstefnugestir
leituðu leiða til að samhæfa krafta hinna
mörgu aðila til að ná til heimsbyggðar-
innar með fagnaðarerindið fyrir árið 2000
í stað þess að starfa hver í sínu homi.
Að ráðstefnunni lokinni var AD 2000
and Beyond hreyfingin stofnuð til að
vinna að þessari samhæfingu. í ályktun
ráðstefnunnar var meðal annars sagt að
gefa ætti öllum þjóðum heimsins raun-
verulegt tækifæri til að heyra fagnaðar-
erindið á tungumáli sem þær gætu skilið,
koma á fót kristniboðshreyfingu sem
hefði það hlutverk að stofna söfnuði á
meðal allra þeirra þjóða sem enn höfðu
ekki fengið hinn kristna boðskap svo að
allir menn hefðu tækifæri til að kynnast
fagnaðarerindinu.
Reyndar var hugsunin ekki alls kostar
ný af nálinni þvi að á ráðstefnu, sem
Afrískir kirkjuleiðtogar. Panja Baba frá Nígeríu (t.v.) er leiðtogi
kirkju sem sendir 1.100 kristniboða til annarra landa og Samuel
Ndala frá Suður-Afríku. Hans kirkja hefur 1.000 kristniboða í
öðrum löndum. Hann stjórnar starfi hennar í Mósambík.
(L|6sm.: K.J.)