Bjarmi - 01.11.1997, Síða 28
höfðu orðið fyrir ranglæti komu upp á
sviðið, og lýstu þvi fyrir hönd síns fólks
að þeir fyrirgæfu ódæðismönnunum.
Síðan leiddu þeir alla i bæn með beiðni
um fyrirgefningu og að ríki Guðs mætti
koma. Fólkið, sem bað um fyrirgefn-
ingu, og þeir sem veittu hana héldu
utan um hvert annað meðan á bæninni
stóð. Síðan féllust allir i faðma að henni
lokinni.
Gamalt hatur og tortryggni á milli
kynþátta og þjóða nær viða inn í kirkj-
urnar. Til að geta starfað heilshugar
saman þarf uppgjör sem þetta að fara
fram.
Þetta er með því stórkostlegasta sem
ég hef nokkum tíma orðið vitni að. Það
sannfærði mig enn frekar um að aðeins
kærleikur Jesú Krists getur slitið bönd
aldalangs haturs og skapað frið og kær-
leika þar sem það er ekki á mannlegu
valdi. Mér komu í hug orðin í 1. Jóh.
5,4: „Trú vor er siguraflið, sem hefir
sigrað heiminn."
Mætti þessi kærleikur verða virkur á
meðal okkar á íslandi. Mætti þráin til að
ná til þeirra samlanda okkar sem þekkja
hann ekki og einnig annarra þjóða
aukast á meðal okkar.
Heimildir
• Douglas, J. D. 1975 Let ihe Earth Hear
His Voice, Minneapolis: World Wide
Publications.
• Douglas, J.D. 1989 Proclaim Christ Until
He Comes, Minneapolis: World Wide
Publications.
• Ýmis skjöl af heimasíðu AD 2000 and
Beyond.
• 1981 Biblían, heilög ritning.
Dagana 30. október - 2. nóvember sl. fékk KFUK á íslandi
merkilega heimsókn. Hér var á ferð Anita Anderson,
forseti Heimssambands KFUK. Undir það heyra yfir 100
lönd og 25 milljónir kvenna.
Hún átti hér stutta viðdvöl fyrir ári og þá voru lögð drög að þessari
heimsókn. Undirbúningur hófst og úr varð dagskrá sem höfðaði til
yngri sem eldri kvenna. Boðið var til pizzusamveru í Loftstofu KFUM
og K í Austurstræti 20. Þangað mættu um 40 stúlkur sem Anita tók á
móti með hógværð og hlýju. Þar sagði hún m.a. frá starfi KFUK í
Ameríku og E1 Salvador. i Ameriku stóðu KFUK-konur fyrir átaki sem
vakti gífurlega athygli og mikla umfjöllun í fjölmiðlum en það var
„vika án ofbeldis". Með átakinu opnaðist umræða um allt það ofbeldi
sem á sér stað innan heimilis og utan og oft er það konan eða
í heimsólcn
Um 40 konur tóku þátt í fundinum „KFUK-konur í brennidepli“.
stúlkubamið sem er þolandinn. Anita sagði líka frá starfi KFUK í E1
Salvador þar sem fátæktin er mikil og algengt er að stúlkum sé
nauðgað eða yfirgefnar af bamsföðurnum. KFUK-konan kemur til
þeirra og kennir þeim að vera sjálfum sér nógar. Þeim er t.d. kennt að
búa til vörur sem þær geta selt og KFUK stofnaði banka þar sem
stúlkumar gátu fengið lán til að geta framleitt meira. Þannig lærðu
þær að standa í skilum og verða sjálfstæðar og færari um að sjá sér
og bami sínu farborða. Auk þess fá þær kynlífsfræðslu og hvatningu
til að gæta réttar síns.
Á laugardeginum var haldinn opinn fundur undir yfirskriftinni:
„KFUK-konur i brennidepli". Hann var í KFUM og K húsinu við
Holtaveg og stóð frá kl. 10.00-15.00. Um 40 konur tóku þátt í
fundinum.