Bjarmi - 01.11.1997, Síða 29
Þórdís K. Ágústsdóttir
Anita Anderson ásamt tveimur KFUK-stúlkum. Á kortið eru merkt þau lönd sem KFUK
starfar í.
því að þær geti bjargað sér sjálfar.
Einnig er þar skóli, sem fyrri hluta dags
er fyrir þá sem að hafa efni á að greiða
skólagjöld og seinni hluta dags fyrir þá
fátæku. Námsefnið er það sama. í
Úganda er konum t.d. hjálpað þannig
að ein kona fær kú. Þegar kýrin ber
gefur konan annarri konu kálfinn og
þannig koll af kolli. KFUK í Danmörku
vinnur að félagslegri hjálp meðal
vændisin'enna.
Starfssvið KFUK víða um heim er
víðtækt eins og dæmin hér að framan
scLmbczncls KFUK
i
slcLncii
Anita hélt fyrirlestur sem fjallaði um
það hvort kvennahreyfingar og
kvennaráðstefnur hefðu áhrif og
stuðluðu að betri heimi. Hún rakti
söguna frá 1975, þegar fyrsta
kvennaráðstaefnan var haldin í Mexico,
og fram á okkar tíma, hvemig hún hefði
þróast. T.d. tóku 3 þúsund konur þátt í
Mexico en 20 ámm síðar í Peking vom
þær um 31 þúsund. Með rökum og
dæmum sýndi hún fram á að kvenna-
hreyfingar og kvennaráðstefnur hafa
áhrif og stuðla að betri heimi. Á
fundinum var einnig rætt um ofbeldi
gegn konum og hvernig fátæktin tengist
meira konum og stúlkubörnum en
körlum. í E1 Salvador og Zambíu leggja
KFUK-konur áherslu á að liðsinna
konum með þvi t.d. að fara með þeim til
lögreglu og leggja fram kæm þegar þær
hafa verið beittar ofbeldi. Þannig leita
þær réttar síns og skilja að ofbeldi á
aldrei rétt á sér í neinni mynd.
í Bangladesh, þar sem fátæktin er
mikil, felst starf KFUK m.a. í því að
liðsinna fátækum konum og stuðla að
sýna. Heimssamband KFUK er sjálf-
boðaliðahreyfing kvenna, innblásin af
kristinni trú og kærleika. KFUK-konan
kemur til konunnar þar sem hún er
stödd, setur sig í spor hennar með það
að markmiði að rétta stöðu hennar og
auka manngildi hennar. Allir em jafnir
íyrir Guði.
KFUK á íslandi er trúarlega sterkt
félag. Það á sér nærri 100 ára sögu sem
leikmannahreyfing innan íslensku
þjóðkirkjunnar. Markmið þess hefur frá
upphafi verið að boða ungum stúlkum
og konum fagnaðarerindið um Jesú
Krist. Það felur í sér kærleika sem
kemur fram í umhyggju fyrir allri
manneskunni, þ.e. anda, sál og líkama.
Á þessu stöndum við fast og höfum þvi
margt að gefa inn í alþjóðahreyfingu
KFUK.
Heimsókn Anitu Anderson var okkur
til mikillar ánægju. Hún gaf okkur góða
innsýn í KFUK-starfið um víða veröld.
Eftir situr hvatning til KFUK-kvenna á
íslandi til að halda ótrauðar áfram að
starfa eftir einkunnarorðum félagsins:
„Ekki með valdi né krafti heldur fyrir
anda minn, segir Drottinn hersveit-
anna.“
Anita Anderson á fundi með um 40 stúlkum á Loftstofu KFUM og KFUK.