Bjarmi - 01.11.1997, Qupperneq 31
Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn,
lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans.
Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein,
leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir þig náð og miskunn.
Hann mettar þig gæðum, þú yngist upp sem örninn.
Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.
Hann gjörði Móse vegu sína kunna og ísraelsbörnum stórvirki sín.
Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög
gæskuríkur.
Hann þreytir eigi deilur um aldur og er eigi eilíflega reiður.
Hann hefir eigi breytt við oss eftir syndum vorum og eigi goldið oss eftir
misgjörðum vorum, heldur svo hár sem himinninn er yfir jörðunni, svo
voldug er miskunn hans við þá er óttast hann.
Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt aíbrot
vor frá oss.
Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt
miskunn þeim er óttast hann.
Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess að vér erum mold.
Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörkinni,
þegar vindur blæs á hann er hann horfinn, og staður hans þekkir hann
ekki framar.
En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar, og
réttlæti hans nær til barnabarnanna, þeirra er varðveita sáttmála hans
og muna að breyta eftir boðum hans. Drottinn hefir reist hásæti sitt á
himnum, og konungdómur hans drottnar yfir alheimi. Lofið Drottin, þér
englar hans, þér voldugu hetjur, er framkvæmið boð hans, er þér heyrið
hljóminn af orði hans.
Lofið Drottin, allar hersveitir hans, þjónar hans, er framkvæmið vilja
hans.
Lofið Drottin, öll verk hans, á hveijum stað í ríki hans. Lofa þú Drottin,
sála mín.