Heima er bezt - 01.03.1952, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.03.1952, Blaðsíða 2
66 Heima er bezt Nr. 3 Séra Jón Þorláksson Ytri-Bœgisá. Séra Jón Þorláksson á Bccgisá var fccddur árið 17J4 og andaðist 1819. Hann var, eins og kunnugt er, höfuðskáld sins tima, enda er hann talinn i röð þjóðskálda. Séra Jón gat verið gletlinn og meinyrtur i kveðskaþ sínum er þvi var að skiþta. Kviðlingar hans út af sálmabók þeirri, sem Magnús Stephensen lét gefa út í Leirárgörðum 1801, urðu viðkunnir á sinum tima, en sálmabók þessi varð heldur ávinsœl i fyrstu. Ýmsar af lausavisum sér Jóns lifa á vörum þjóðarinnar enn þann dag i dag. — F.n mesla bókmenntaafrek séra Jóns Þorlákssonar eru hinar ágcstu þýðingar hans af Paradisarmissi eftir enska skáldið Milton, og Messias eftir þýzka skáldið Klopþstock. Er það eingöngu vegna hins frábccra máls á þýðingum þessuin, þvi að efnið er að miklu leyti fyrnt, en Séra Jóns verður jafnan minnst sem eins þeirra manna, sem mestan þátt átlu í að lyfta islenzkunni upp úr þeirri niðurlcegingu, er hún var kom- in i á siðari helmingi átjándu aldarinnar. — Hér birtist lítið sýnishorn af þýðing- um hans. Blíður er árblær, blíð er dags koma, fylgja henni tónar töfrafullir árvakra fugla, sem er eyrna lyst. Blíður er röðull, þá er breiðir hann austan árgeisla á unaðs foldir, yfir grös, eikur og aldini, sem þá deig glansa fyrir döggfalli. Blíður er sá ilmur, sem upp af jörð eftir regn rakri rauk í blóma; blíö er kvöldkoma í kælu mildri, og hljóðlát gríma, með helgum sér fagurrödduðum fugli þessum. Og með mána þeim, er svo milt lýsir, meður gimsteinum, er glóa svo hvervetna himins á hvelfingu, stjarna fjölfylktu föruneyti. Úr Paradísarmissi, 4. bók., bls. 109. Heima er bezt verður nú við tilmælum margra lesenda um að birta ævintýri og sögur fyrir börn og unglinga, og birtist fyrsta sagan í þessu hefti. Er hún eftir kunnan norskan barnabókahöfund. Mun blaðið gera sér far um að vanda sem bezt valið á öllu efni, sem ætlað er yngstu kynslóðinni. Myndirnar á forsíðu 1. Fátt er meira hressandi fyrir líkama og sál en að ferðast um óbyggðir lands- ins og njóta hins heilnæma fjallalofts, þar sem „hátt er til lofts og vítt tii veggja“, eins og sézt á þessari mynd. 2. Sem betur fer þarf þessi mynd ekki að vekja neinar hrollkenndar tilfinningar, því að hesturinn á mynd- inni þarf ekki að „berja gaddinn“ til að halda i sér lífinu, heldur er hann að viðra sig. 3. Mynd þessi sýnir dreng við höfnina að horfa á skipin, sem koma og fara. Hver veit nema það eigi fyrir honum að liggja að fara út í lönd með einhverju þeirra, þegar hann er orð- inn dálítið stærri? 4. Flestum unglingum þykir sjálfsagt gaman að róa, enda er það í senn gagnleg og holl íþrótt fyrir hvern sem er, og ekki sízt þá, er sitja mikinn hluta ársins á skólabekknum. HEIMA ER BEZT • Heimilisblað með myndum • Kemur út mánaoarlega • Áskriftagj. kr. 67.00 • Útgef.: Bókaútgáfan Norðri • Ábyrgðarm.: Albert J. Finnbogason • Ritstjóri: Jón Björnsson • Heimilisfang blaðsins: Pósthólf 101 Reykjavik • Prentsm. Edda h.f.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.