Heima er bezt - 01.03.1952, Blaðsíða 32
96
Heima er bezt
Nr. 3
Föndur fyrir unglinga:
KULUSPIL
Þeir leikir, þar sem tilviljunin
og útreikningurinn í senn ráða
hinum væntanlega sigri, eru
jafnan mjög eftirsóttir, því að
einmitt í þeim veldur hið' ó-
vænta fyrirbæri öllum spenn-
ingnum.
Þann leik, sem hér um ræðir,
er auðvelt að útbúa. Teiknaðu
meðfylgjandi mynztur á gegn-
sæan pappír og færðu það síðan,
með aðstoð blápappírs, yfir á
tréplötu, sem er a. m. k. 5 mm.
þykk. Fyrirmyndin sýnir þér
greinilega, hvernig hinum ein-
stöku hlutum skuli skeytt sam-
an. Til þess að hafa rammann
og botnplötuna í nákvæmlega
sömu stærð, gætirðu þess að
saga báðar plöturnar samtímis
með því að festa þær saman
með þvingu á meðan. Síðan
tekurðu burtu efri plötuna og
sagar í hana mynztrið sam-
kvæmt uppdrættinum.
Titturinn, sem fær kúlurnar
til að þjóta af stað, er festur við
grópinn með tréþynnu. Tré-
þynna þessi er teiknuð hér
gagnsæ, svo að þú getir áttað
þig fyllilega á því, sem undir
henni er. Málmpinninn, sem
stungið er gegnum titt þenna, á
að sitja fastur í, en að öðru
leyti á titturinn að geta hreyfzt
liðlega í grópinni.
Þunn málmfjöður er sett í
tittinn framanverðan, og er
þeirri fjöður komið örugglega
fyrir með nöglum (sjá teikning-
una vandlega).
Áður en kúluspilið er límt
saman ,er ráðlegt að mála hina
einstöku hluta þess. Málaðu
botnplötuna ljósleita, en hina
hlutana í dökkum lit, sem sker
sig vel úr lit plötunnar.
Gefðu gaum að pinnunum
tveim, sem kúlurnar eiga að
rekast á. Og hvað kúlurnar
snertir, þá ætti að vera vand-
ræðalaust fyrir þig að komast
yfir þær, því svo víða eru til ó-
notaðar kúlur og af hentugri
stærð.