Heima er bezt - 01.06.1952, Blaðsíða 2
162
Heima er bezt
Nr, 6
SKÓGAFOSS
Fossarnir eru höfuðprýði hinnar íslenzku náttúru.
Skáldin hafa vegsamað fegurð þeirra í ljóðum og
látið sig dreyma stóra drauma um það reginafl, sem
í þeim býr. Framtíð íslands er að mörgu leyti bund-
in við vatnsaflið, þennan reginkraft, sem getur veitt
ijósi og yl inn í hýbýli mannanna og búið þjóðinni
þægindi, sem stinga mjög í stúf við þau kjör, sem
hún hefur átt við að búa á umliðnum öldum. En
um leið og fossaaflið er ómetanlegur auður, eru
fossarnir eins konar aðalsmerki landsins. Og fegurð-
in er mikils virði, þótt ekki verði hún metin í pen-
ingum. Er það því skylda þeirra, sem hafa þessi
mál með höndum, að haga þannig til, að hægt sé
að nota vatnsaflið, án þess að það verði til þess að
skerða fegurð náttúrunnar.
Skógafoss hefur jafnan verið talinn til fegurstu
fossa á landinu. Hann er höfuðprýði hinnar fögru
og gróðursælu Eyjafjallasveitar. Skammt fyrir aust-
an hann beljar Jökulsá kolmórauð yfir eyðisanda.
Þar eru hlið við hlið einhverjar mestu andstæður
íslenzkrar náttúru — hið tröllaukna og hið fagra.
Og einmitt á þessum stað hafa íbúar nálægari hér-
aða reist héraðsskóla sinn, Skógaskóla. Öll ytri skil-
yrði eru þar til staðar til að móta hugarfar yngri
kynslóðarinnar til skilnings á náttúru landsins, en
á eldri kynslóðinni hvílir sú kvöð að innræta þeim
ungu réttan skilning á sögu og menningarerfðum
þjóðarinnar, svo að hún komizt óskemmd undan
jökulhlaupum annarlegra áhrifa, en þjóðin, landið
og sagan er ein órjúfanleg heild.
Myndirnar
1. Nú er sauðlaust í mörgum
sveitum sunnanlands. Fjár-
skiptin hafa séð fyrir því.
Heimahagarnir eru þögulir og
svipminni. í vor verða engin
lömb, engar smalamennskur,
engar rúningar. Sár söknuður
ríkir hjá ungum sem göml-
um. En einu sinni voru til
falleg lömb á hverjum bæ,
sem auðguðu líf manna af
fegurð og yndisleik, og því
munu ljúfar minningar frá
liðnum árum koma í stað
veruleikans.
2. Góðu æðavarpi fylgir oftast
mikil dúntekja. Dúnninn er
tekinn úr hreiðrunum, þegar
líður á varptímann. Til þess
að gera hann að góðri og
á forsíðu
verðmætri verzlunarvöru þarf
að hreinsa hann vel, en þá
mun verðmæti hans geta
numið allt að kr. 630.00 fyrir
hvert kg. Útsöluverð dúnsins
mun nú vera kr. 670.00 —
720.00 pr. kg. eftir gæðum. —
Myndin sýnir, hvernig dún-
hreinsun hefur lengst af far-
ið fram hér á landi.
3. Skjóni er mikill vinur stúlk-
unnar, sem situr á baki hans.
Hann hefur svifið með hana
á sínu fjaðurmagnaða tölti
lengri og skemmri leiðir og
hlotið að launum gómsætar
gjafir, koss á vanga og lófa-
strok um háls og makka. • —
Myndin sýnir til hvaða ráða
oftast er gripið í sveitinni, ef
hnakkar eru ekki nægjanlega
margir handa öllum, er þátt
taka í vorsmölun heimahag-
anna.
4. Norður í landi hafa fjárskipti
farið fram. Gamli stofninn
rann sitt skeið af völdum
fjárpestar, en nýr stofn kom
í staðinn. Þar er sauðfjár-
ræktin að komast í sitt fyrra
horf. Myndin sýnir á hvern
hátt Norðlendingar rýja fé
sitt.
IIEIMA ER BEZT • Heimilisblað með myndum • Kemur út mánaðarlega • Áskriftagj.
kr. 67.00 • Utgef.: Bókaútgáfan Norðri • Ábyrgðarm.: Albert J. Finnbogason • Ritstjóri:
Jón Björnsson • Heimilisfang blaðsins: Pósthólf 101 Reykjavík • Prentsm. Edda h.f.