Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1953, Page 31

Heima er bezt - 01.12.1953, Page 31
:Nr. 12 Heíma er bezt 383 sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs“. Og það er ekki víst, að í kirkjunum hafi verið né sé hlustað betur en ungir og gamlir gerðu, sem á rúmunum sátu, hver og einn í sínum betri fötum og sumar stúlkurnar með sálmabók í hendi sér. Með þess- ari hátíðlegu stund voru jólin komin í gamla bæinn. Menn stóðu því upp og óskuðu hver öðrum gleðilegra jóla. Og þótt þeirri kveðju fylgdu ekki neinar jólagjafir, var hún jafn innileg og hátíðleg fyrir alla. — Auðvitað hafði verið uppi fót- ur og fit á bænum dagana fyrir jólin og þá fyrst og fremst í gamla kafeldhúsinu. Það var líka gott forðabúr. Þar héngu sauða- krofin í röð uppi í rjáfrinu yfir hlóðunum og voru æði lystileg til að sjá. Nú höfðu nokkur þau feitustu fengið að kenna á öx- inni og haldið svo, sem leið ligg- ur, í stóra, svarta pottinn, sem reis upp eins og stór þúst á hlóð- unum. Þau lágu nú soðin í stór- um trogum á búrhillunum og biðu síns hlutverks á jóladags- kvöld. Það hafði líka verið sett- ur upp annar og minni pottur síðar á aðfangadaginn. Frá hon- um lagði sætan ilm um allan bæ- inn. Það hafði einnig snarkað í pönnunni yfir gömlu hlóðunum og eldabuskan hafði ekki við að snúa því, sem þar var, með búr- hnífnum. Hvílík nýjung. Þetta skeði ekki oft á ári. Og svo kom fyrsti jólamaturinn: Ljúffengur rúsínugrautur borinn inn í ösk- um og skálum, og á eftir Ijúf- fengt og hressandi lummukaffi. Sambýlismennirnir litu inn og buðu gleðileg jól. Einnig hjá þeim hafði jólaguðspjallið ver- ið lesið og jólagleðin ljómað í baðstofunni. Það jók á jólagleði okkar að sjá þá, því að þeir voru ekki daglegir gestir, þó að bæ- irnir stæðu svo að segja hlið við hlið. — Úti blikuðu stjörnurnar í sinni óra fjarlægð og Ijósin skinu svo skært á bæjunum með fjallinu og sáust á næstu bæjum í Landeyjum og í Fljótshlíðinni fögru. Alls staðar voru heilög jól. Og hvílík kyrrð í hinu mikla jökla- og stjörnuveldi, sem hér umlauk allt og alla og hélt þög- ulan vörð um hina helgu hátíð ljóssins og gleðinnar í Fjalla- sveitinni og með öllum landsins börnum. Vonandi gleyma íslend- ingar aldrei gömlu baðstofujól- unum sínum, en taka þau með sér í hin nýju og björtu húsa- kynni, sem vér nú búum svo mörg í til sjávar og sveita, og varðveitum þau þar í trú og anda feðra okkar. Þá mun þjóð vor megna að leysa af hendi það mikla hlutverk, sem forsjónin hefur falið henni á þessari jörð: Að varðveita kristna, norræna menningu í landi sínu nú og um allar ókomnar aldir. Svo mikið er það hlutverk, að það ætti að vera stolt hvers íslendings og kenna okkur að leggja rétt mat á sjálfa oss og aðra, og þá án alls ofmats. Á því mati getur líf og framtíð þjóðar vorrar oltið. Því að vitrir menn hafa sagt, að skapgerð einstaklinga og þjóða ráði mestu um líf þeirra, gæfu eða ógæfu. Mætti svo þjóð vor ávallt verða gæfunnar barn. Einnig það er jólaósk allra góðra íslendinga. Ólafsþáttur Framh. af bls. 316. ar að geldast og krakkarnir — þar á meðal hún — hafi verið háifsvöng, sem ekki hafi þó oft komið fyrir. Lax gekk þá 1 Tunguá, og engar hömlur voru þá lagðar á að veiða hann hve- nær sem var, ef hans varð vart í Soginu eða ánni. Þetta haust hafði lítið veiðst. Nógur lax var í ánni, en hann var kominn upp fyrir þá staði, sem vant var að veiða hann í ádráttarnet, og þar sem hann sást í ánni í þetta sinn, var ekki hægt að koma ádrætti við. Þá sagði hún, að Ólafur hefði smíðað laxakistur og sett þær í ána, og með því móti náðist lax- inn. Laxakistur voru svo notað- ar þar að einhverju leyti þar til laxveiðilögin komu. En þá varð að hætta þeirri veiði vegna þess, að lax gengur ekki í Tunguá fyrr en í september. En eftir lög- unum mátti þá ekki veiða lax nema til ágústloka. Hún sagði, að Ólafur hefði ráðið fram úr öllum erfiðleikum. Önnur syst- kini sín talaði hún aldrei um. Ég sá Ólaf tvisvar sinnum, sem ég man eftir. Fyrra sinnið kom hann að Hlíð til foreldra minna. Erindið var að gera eitthvað við klukkuna. Þegar því var lokið og klukkan fór að ganga, man ég, að hann sagði: „Ég set hana eft- ir minni klukku,“ og um leið tek- ur hann upp úr vasa sínum eitt- hvað kringlótt, er hann hafði fest við gylta festi, sem hann hafði um hálsinn og lá svo niður bringuna í tvennu lagi. Þá hugsaði ég: Þetta er líkt því, sem haft er við vettlingana mína, svo að ég týni þeim ekki. Ég hugsaði, en sagði ekkert: „Ætli fleirum sé hætt við að týna en mér?“ Svo var það næsta sunnu- dag. Þá fékk ég að fara til kirkju að Úlfljótsvatni. Kirkjan var al- setin af fólki, en fáa þekkti ég utan míns heimilis, nema Jón Ögmundsson á Bíldsfelli, og milli hans og föður míns sat Ólafur, og þekkti ég hann af festinni, sem hann hafði yfir hálsinn og lá niður bringuna. Ekki man ég að lýsa útliti hans, nema þeg- ar þeir stóðu saman í kirkj - unni, hvor við hliðina á öðrum, var Jón Ögmundusson minni, enda var hann heldur lítill vexti. En faðir minn var stór maður. Það sagði mér Þórður Magnús- son frá Villingavatni, sem mundi Ólaf vel, og var tvítugur, þegar Ólafur fór til Ameríku, að nokk- uð hefði hann þótt vera áber- andi og skera sig úr fjöldanum, t. d. við kirkju eða öðrum mannamótum. Þá var Ólafur eini bóndinn, sem var í vaðstígvél- um og með úr í vasanum. Svo bætti hann því við, að ekki hefði Grafningshreppur þurft að skammast sín fyrir hann út á við. Hann hefði verið til fara eins og meiri háttar prestur. Kona Ólafs hét Elín Stefáns- dóttir. Fólkið sagði, að hún hefði verið prestsdóttir, en þjónustu- stúlka í Hruna hjá séra Jóhanni Briem, áður en hún kom að Tungu. Þau Elín og Ólafur voru gefin saman í Hrunakirkju, sóknarkirkj u brúðurinnar, eins og þá var siður. Það var árið, sem Ólafur tók við búi í Tungu, 1862. Elín fékk gott orð sem hús- móðir, var fáskiptin um hagi Niðurl. d bls. 387.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.