Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1953, Qupperneq 40

Heima er bezt - 01.12.1953, Qupperneq 40
392 Heima eh bezt Nr. 12 Árið um kring halda skip vor uppi reglubundnum samgöngum á milli hinna dreifðu hafna á landinu, og yfir veturinn eru þetta oft einu samgöngutækin, sem fólk getur treyst til að skila farþegum og farmi heilum og óskemmdum í höfn. Þess á milli eru fjölþættir möguleikar til flutnings, sem fela þó ekki í sér neitt varanlegt öryggi um samgöngur, og er það því hagsmunamál landsbúa sjálfra að beina sem mest viðskiptum til vor. Með þvi styðja þeir og styrkja þjónustustarf vort og stuðla að því, að það geti aukizt og batnað. Taxtar vörir fyrir vöruflutning eru yfirleitt án tillits til vegalengdar, þar eð þjónusta vor miðar að því að jafna nokkuð aðstöðu landsbúa til samgangna, og er þess vænzt, að þeir, sem betur eru settir varðandi samgöngur, skilji þetta og meti. Skip vor eru traust og vel út búin og skipshafnirnar þaulæfðar, og er þetta mikils virði fyrir viðskipta- mennina, enda viðurkennt af vátryggingarfélögunum, sem reikna þeim, er vátryggja, lægsta iðgjald fyrir vörur sendar með skipum vorum. Þetta fyrirtæki er eign stærsta félagsins á landinu, þjóðfélagsins. Sumum finnst það félag svo stórt, að þeir finna vart til skyldleikans eða tengsla við það, en sá hugsunarháttur þarf að breytast. í SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS i i ! Gleðileg jól og farsælt komandi ár j i Búnaðarbanki Islands | Austurstræti 5 — Reykjavík

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.