Heima er bezt - 01.02.1957, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.02.1957, Qupperneq 4
£ Pað fór fagnaðaralda um allt ísland í desember sl., er það fréttist, að íslendingur hefði hlotið silfur- verðlaun á Ólympíuleikunum í Melbourne.Aldr- ei fyrr höfðu íþróttamenn vorir nálgazt slíkan heiður, þótt vaskir menn hefðu verið sendir til leika, og sumar sendiferðir íþróttamanna vorra höfðu jafnvel fengið raunalegan endi. I sjálfu sér er það ekki undar- legt, þó jafnfámenn þjóð og vér erum, fái ekki haldið til jafns við stórþjóðir, þar sem ekkert þarf til að spara, og unnt er að veita keppendunum hin beztu skilyrði til þjálfunar og kunnáttu. En ekki má þó gleyma því, þótt kunnáttan sé mikils- virði, og þótt allir þeir hlutir, sem við fé verða keyptir séu mikilvægir, til þess að lyfta undir íþróttamennina og tryggja þeim góðan árangur, er þó maðurinn sjálfur meginatriðið. „Allt hefðarstand er mótuð mynt, en maðurinn gullið, þrátt fyrir allt,“ segir skáldið. Ef til vill er það hvergi áþreifanlegri sannleikur, en þegar kemur til úrslita á leikvanginum. Þar kemur ekki ein- ungis til greina líkamlegt atgjörvi og kunnátta, heldur ekki síður styrk skaphöfn og andlegur þroski. Og þeim, sem þekkja fyrsta íslenzka Olympíusigurvegarann, Vilhjálm Einarsson, mun ekki hafa komið það á óvart, að það skyldi einmitt verða hann, sem fyrstur manna - færði þjóð sinni heim hinn dýra málm frá vettvangi Olympíuleikanna, og varp um leið frægðarljóma á þjóð- ina sjálfa. Því að svo er fyrir að þakka, að slík afrek eru ekki einungis persónulegur sigur þess, sem þau 48 Heima er bezt VILHJALMUR EINARSSON vinnur, heldur einnig fagur vitnisburður þeirri þjóð, sem afreksmanninn hefir alið. Vilhjálmur Einarsson fæddist að Elafranesi við Reyð- arfjörð 5. júní 1934. Foreldrar hans eru Sigríður Vil- hjálmsdóttir frá Hánefsstöðum og Einar Stefánsson, nú byggingarfulltrúi Austurlands. Vilhjálmur ólst upp með foreldrum sínum á ýmsum stöðum þar eystra, meðal annars tvö ár á skólasetrinu Eiðum, en nú síðustu árin hefir heimili hans verið í Egilsstaðaþorpi, þótt hann að vísu hafi dvalizt langdvölum við nám fjarri heimili sínu og æskustöðvum. Vilhjálmur hóf nám í unglingaskóla á Seyðisfirði og síðan á Eiðum, en kom vorið 1951 í Menntaskólann á Akureyri, hafði hann þá loldð landsprófi, en tók nú próf upp úr 3. bekk utanskóla. Stúdentsprófi lauk hann vorið 1954 með hárri 1. einkunn. Haustið eftir hóf hann nám við Dartmouth-háskóla í New-Hampshire í Bandaríkjunum. Lagði hann þar stund á frjálsar listir, og er húsagerðarlist aðalgrein hans. Lauk hann B.A.- prófi í þessum fræðum vorið 1956. Hyggst hann halda áfram námi í húsagerðarlist, þótt óvíst sé enn, hvort það verður austan hafs eða vestan, en mjög mun hug- ur hans standa til framhaldsnáms í Svíþjóð. Þegar Vilhjálmur kom fyrst í Menntaskólann á Akur- eyri vakti hinn vasklegi, sviphreini sveinn þegar at- hygli. Nám sitt stundaði hann kappsamlega, en vann jafnframt ótrauður að félagsmálum innan skólans. Má löngum marka mannsefni af því, hvernig félagsleg við- horf þeirra eru á skólabekk, ekki síður en af náms- afrekum þeirra. íþróttir hafði hann ekki stundað að nokkru ráði fyrr en í Menntaskólanum, en þar var hann þegar í fremstu röð. Á landsmóti íþróttamanna á Eiðum vann hann mikið afrek í þrístökki 1952, og telur hann, að sá árangur, er hann náði þar, hafi markað sér þá braut, að kjósa þrístökk sem aðalgrein í íþrótt-

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.