Heima er bezt - 01.02.1957, Page 5

Heima er bezt - 01.02.1957, Page 5
um. En jafnframt því sem hann sjálfur iðkaði íþróttir af kappi í skóla, var hann forystumaður í íþróttafélagi skólans og formaður þess síðasta skólaár sitt. Varði hann miklum tíma til starfa fyrir félagið, enda stóð hagur þess þá með mildum blóma. I Ameríku hefir Vilhjálmur einnig tekið drjúgan þátt í íþróttum í háskóla sínum, og einkum æft þar lang- stökk og kúluvarp. Hefir hann verið í fremstu röð íþróttamanna í kappleikum milli háskóla þar vestra. Er íslendingar háðu landskeppni við Hollendinga í frjálsufti íþróttum árið 1955, setti Vilhjálmur þar ís- landsmet í þrístökki, stökk hann þar 15,19 m. Þegar svo umræða hófst um þátttöku íslands í Olympíuleik- unum í Melbourne s. 1. haust, var Vilhjálmur, sakir fyrri afreka sinna og framkomu, sjálfkjörinn í hina fámennu sveit, er þangað var send. Þar hlaut hann, sem kunnugt er, silfurmerki leikanna, eða önnur verðlaun, og var um skeið mjög nærri því að ná sjálfu gullmerk- inu, 1. verðlaunum, í sérgrein sinni, þrístökkinu. Stökk hann þar 16,25 m. „Velgengni mín í Melbourne olli því, að mér fannst mér skylt að láta íslenzkri æsku í té eitthvað af reynslu minni sem íþróttamanns,“ segir hann sjálfur. Því tók hann feginshendi boði Sambands bindindisfélaga í skól- um um að gerast erindreki þess í framhaldsskólum lands- ins. Starfar hann að þeim málum um þessar mundir. Vafasamt er, hvort nokkru sinni hefir fengizt betri erindreki til þessa starfa. Boðskapur Vilhjálms er ekki hið neikvæða: „Þú skalt ekki“ heldur hin jákvæða eggjun: „Þú skalt“. Þú skalt velja þér hugðarefni, sem taka hug þinn, þjálfa líkama þinn og styrkja skaphöfn þína, og þá er þér sigurinn vís á vettvangi lífsins. Enda þótt þetta séu ekki bein orð hans, er það meginefni þess, sem hann flytur íslenzkri æsku, og það sem áhrifa mest er í þeim boðskap, er dæmi hans sjálfs. Um það verður ekki villzt. Allir góðir íslendingar óska Vilhjálmi til hamingju með sigur hans, og árna honum góðrar framtíðar og hamingju, hvort sem er á sviði íþrótta eða öðrum vett- vangi. í nær þúsund ár hafa þær lifað, sagnirnar um bónda- soninn íslenzka, sem þreytti íþróttir við sjálfan Nor- egskonung, Olaf Tryggvason, sem ágætastur var talinn í þeim sökum um öll Norðurlönd, og reyndist honum jafnsnjall. Það er trúa mín, að lengi muni íslenzk æska minnast stúdentsins, sem fyrstur íslendinga sótti góð- málminn til Ólympíuleikanna yfir á hina hlið hnattar- ins. En jafnframt skulu íslenzkir æskumenn minnast þess, að giftusamleg endalok þeirrar ferðar voru afleið- ing þrotlausrar vinnu, sem studd var markvísum huga og styrkri, drengilegri skaphöfn. St. Std. Siguruegararnir í þristökki á Ólyrn- piu-leikunum 1956: Frá vinstri: Vitold Kreer, Rússl., nr. 3, Da Silva, Braziliu, nr. 1 og Vilhjálmur Einarsson, nr. 2. Heima er hezt 49

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.