Heima er bezt - 01.02.1957, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.02.1957, Qupperneq 15
Á REKI í 21 Eftir Björn Bl. DÆGUR Jónsson T^ildrög til þess, að ég var með „Ingólfi“ á þess- ari ferð voru þau, er nú skal greina: Ég átti heima hjá foreldrum mínum í Skildinganesi, en þar stóðu tveir bæir í röð. Þeir voru aðgreindir á þann hátt, að annar var kallaður Austurbær en hinn Vesturbær. Átti ég heima í þeim eystri, en suður á hlað- inu beint á móti honum stóð steinhús mikið, er kallað var Sigurðarhús, sennilega vegna þess, að sá hefur Sig- urður heitið, er upphaflega lét byggja það, en meira veit ég ekki um hann. Suðaustur af túnfætinum stóð lítill bær, er Kot var kaUaður, en þar bjó Sigurður, bróðir Erlendar Guðmundssonar, er bjó í Vesturbænum, sem fyrr er nefndur. En í steinhúsinu bjó N. N., skipstjóri og eigandi „Ingólfs“. Ég ætla, að það væri á milli jóla og nýjárs, sem N. N. kom að máli við mig og bað mig að sauma fyrir sig nýtt stórsegl á „Ingólf“ og gera við önnur, er þess þyrftu með, og játti ég því, þar sem ég hafði ekki neitt að starfa þá í augnablikinu, en seglasaumi í Hrólf- skála var lokið rétt fyrir jól, en við það hafði ég starfað þar. Að seglasauminu loknu, tjáði N. N. mér, að nú hefði hann fengið tilboð í að flytja vörur fyrir Ólaf Árna- son kaupmann á Stokkseyri, hvort ég vildi nú ekki gera það fyrir sig að koma til sín sem stýrimaður þennan túr, það tæki ekki langan tíma, viku, ef vel gengi, en í mesta lagi hálfan mánuð. Ég var tregur til, vegna þess að ég vissi, að skipið, reiði allur, ásamt hlaup- andi tógverki og svo segl öll, að undanskildu hinu nýja segli, var allt mjög lélegt og á engan hátt fært til slíkr- ar ferðar um þetta leyti árs. En þar kom þó fyrir sár- beiðni N. N., að ég lét til leiðast, með því skilyrði þó, að skipstjóri sá, er ég var ráðinn Hjá, gæfi sitt sam- þykki til. Gunnsteinn Einarsson átti þá líka heima í Skildinganesi, en hjá honum var ég ráðinn. Varð hon- um að orði: „Ekki lízt mér á þetta ferðalag, en par sem Björn er ekki ráðinn hjá mér fyrr en 1. marz, þá hef ég ekkert um þetta að segja, en til skips á hann að vera kominn 1. marz, sem aðrir mínir menn.“ Niðurstaðan varð svo sú, sem sagan bendir til. Tveir hásetar voru ráðnir í skyndi, þeir Björn Hann- esson, sem oft áður hafði verið með N. N. á slílcum ferðum, og Guðjón Guðmundsson, báðir giftir og nokkuð við aldur, en dugnaðarmenn, vínhneigðir, þó ekki væru þeir drykkjumenn. „Ingólfur“ lá í vetrarlægi suður á Seilu í Skerja- firði, um borð í hann var farið með segl, blokkir, tóg og annað það, er með þurfti, síðan var hann rikk- aður upp, sem kallað er, hengdar upp blokkir, hlaup- andi tógverk og seglum slegið undir. Að því loknu er akkerum létt og siglt til Hafnar- fjarðar, því þar voru þær vörur, er flytja átti til Stokks- eyrar og s. s. „Reykjavík“ hafði snúið aftur með þrisvar sinnum um haustið, en nú í fjórða sinn skyldu þær þó komast á ákvörðunarstað, sem þó að vísu aldrei varð, svo sem nánar verður sagt frá síðar. í þennan mund var ekki hafskipabryggja í Hafnarfirði, en út- og uppskipun fór fram á svokölluðum uppskipunar- bátum. Laugardagskvöldið 3. febrúar var útskipun lokið á þeim vörum, er flytja átti til Stokkseyrar, en það voru: salt, hveiti, rúgmjöl, vatnsfötur, whisky o. fl. Sam- tímis voru þær vörur komnar um borð, er ætlaðar voru skipshöfninni til neyzlu í eina viku, svo sem mat- vara, vatn og kol. Skipið var þá tilbúið til að leggja upp í áðurnefnda ferð. Eins og áður er sagt var „Ingólfur“ lélegt skip, stærð hans var 25 brúttó smálestir. Hann var ruttur, en breiður, brjóstamikill, kolsvartur og illa hirtur, með gafl í aftur-enda og hinn mesti sleði að sigla, svo að ég hef ekki þekkt annan eins, en undan vindi þumlung- aðist hann dálítið áfram. Þrjú forsegl hafði hann, klýfi, stagsegl og stagfokku. Klýfirinn var fasta-klýfir og gerður fastur á bugspjótið, sem venja er til, en stag- seglið á svokölluðu „spruði“, þegar það var gert fast. íbúð háseta var fram í lúkar. íbúð skipstjóra og stýrimanns í káetu, en þar var sérherbergi fyrir skip- stjóra, en á dekki var „ruff“, í því var eldavél, og þar var matur eldaður, eða réttara sagt átti að eldast. Skips- bátur var á hvolfi á „hekkinu“ og bundinn þar niður með tógi. Áður en lengra er farið, verð ég að segja frá draumi, er mig dreymdi nóttina, sem lagt var á stað um morg- uninn, en það var sunnudaginn 4. febrúar árið 1900. Mig dreymdi eina af dætrum Sigurðar í Kotinu, sem Dísa var kölluð. Kom hún til mín og óskaði eftir að fá að vera með í þessari ferð, sagðist hún ætla að sofa í minni koju, ég gæti svo lagzt fyrir framan sig, ef mér sýndist svo, annars gæti ég legið á bekknum. Ég sagði Heima er bezt 59

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.