Heima er bezt - 01.02.1957, Side 16

Heima er bezt - 01.02.1957, Side 16
henni, að þó að hún væri verðug allra góðra hluta og að óneitanlega væri gaman að sofa hjá fallegri stúlku, |)á kæmi nú samt ekki til mála, að hún fengi að vera með, og í mitt rúm færi hún aldrei. Þá varð Dísa reið, afskaplega reið og rauk út í fússi og sagðist þá gera mér og öðrum það til skammar að fara í lestina. Ég þaut fram úr til þess að aftra henni því, en vaknaði við það, að ég stend á káetugólfinu. í því kom vaktarmaðurinn með kaffið. Eins og venja er til, var hann spurður um veðrið, jú, það var gott, hæglætis norðaustan andvari, ekki skýskaf á lofti og spegilsléttur sjór. Það var ekki úfurinn á. Þegar lokið var við að drekka kaffi með púðursykri í og borða rúgbrauð með smjörlíki á, var farið til dekks, segl losuð, stórsegl og skonnortusegl dregin upp, akkeri var létt, forseglin dregin upp, og „Ingólfur“ sígur á stað, eins og gamall húðarklár undir drápsklyfjum, kl. 8 að morgni þess dags, er áður getur. Þegar komið var út á móts við Njarðvíkurvör, fór að hvessa. \’ar þá klýfirinn halaður niður og gerður fastur. Þegar kom út á móts við Garð, var vindþunginn orðinn svo mikill, að enn þurfti að minnka segl. Var þá tekið eitt rif í stórsegl og skonnortusegl, en svo er framseglið kallað á skipum af þessari gerð. En þegar skonnortuseglið var gefið niður, kræktist önnur pikkfalsblökkin úr, svo að ég varð að fara upp veglínulausan vantinn til þess að krækja henni í aftur og benzla fyrir blokkarkrókinn, svo að það kæmi ekki fyrir í annað sinn, en það hafði gleymzt, þegar blokkin var hengd upp. Þegar hér var komið, vorum við allir komnir í olíu- föt. Þótt veður væri gott og enginn sjór nema vind- bára, þá er það samt svo, að fljótt fer að gefa á hlaðið skip, og þá ekki hvað sízt, þegar mikið frost er. Ég var svo heppinn, að veturinn áður hafði móðir mín saumað mér mjög vönduð olíuföt, kápu og bux- ur, margfalt á sitjanda, hnjám og olnbogum. Hjá for- eldrum mínum var þá roskinn maður, Erlendur að nafni, hann var bróðir Sigríðar, konu Jóns heitins á Bústöð- um, hann annaðist olíuíburð fatanna og þurrkaði þau við sól og sumarvinda, enda héldu þau vindi og vatni, sem kom sér vel, en sjóhatturinn var búinn til af Dansk- inum. Þó nýr væri hann, þá lak hann eins og illa gert hrip. Þegar búið var að minnka seglin, eins og að ofan er sagt, var haldið áfram fyrir Garðskaga og suður með landi, sem leið liggur; þá var farið að dimma og veðrið að harðna. Út af Sandgerði voru segl enn rninnk- uð á þann hátt, að nú var tekið annað rif í bæði segl, en eitt rif í stagsegl og eitt í stagfokku, en við það vorum við aðeins þrír, því að skipstjóri var þá genginn til hvílu fyrir nokkru síðan, enda var hann þann veg á sig kominn, að lítið lið hefði orðið að honum. Að þessu loknu, gekk annar hásetinn til hvílu. Þegar komið var á móts við Hafnaleir, var komið norðaustan rok, og flókabakkar háir sem fjöll voru á lofti og boðuðu ekki neina blíðu, heldur það gagnstæða. Lét ég þá skipstjóra vita og talaði um við hann, hvernig veðri væri nú háttað, og taldi, að bezt mundi vera að leggj- ast á Hafnaleir og sjá, hverju fram yndi með veðrið, því að í Eyrarbakkabugt væri komin sú veðurhæð, að ósiglandi væri. Skipstjóri kvað nei við, án þess að gera sér það ómak að fara upp í káetugatið og líta til veð- urs, en skipaði svo fyrir, að haldið skyldi svo grunnt fyrir Reykjanes, sem unnt væri. A mánudagsmorgun í birtingu vorum við komnir fyrir Reykjanes; þá var komið aftaka veður með frosti miklu og snjóhríð. Kom þá skipstjóri upp, og enn voru segl minnkuð, þriðja rif tekið í stórsegl og skonnortusegl, annað rif í stagsegl og stagfokku. Nú var slagað allan daginn, og vorum við allir uppi, en um átta-leytið um kvöldið vorum við- á útslag og þó sennilega á líkum stað og um morgun- inn, þegar byrjað var að slaga, þó ekki sé hægt að ákveða það með vissu, vegna þess að ekkert sást fyrir byl, en á þessum útslag rifnuðu öll seglin nema stór- seglið, sem var nýtt, eins og áður er sagt, og svo klýfirinn, sem var fastur eins og fram hefur verið tekið. Hinum rifnu seglum var þá hleypt niður og þau gerð föst, en skipinu lagt til upp í sjó og vind með stór- seglinu, enda veðurhæð þá, samfara blindhríð, frosti, stórsjó og náttmyrkri orðin svo mikil, að hverju skipi, sem verið hefði, var ósiglandi. Að þessu loknu gekk skipstjóri til svefnklefa síns, en „Ingólfur“ skundaði brott í suðvestur-átt, undan sjó og vindi. Nú var stór hætta á, að við lentum á Geirfuglaskerjum eða jafnvel sjálfri „Eldey“, og þá hefði þessi saga ekki verið skráð, en við því var ekkert að gera, auðnan varð að ráða. Við þrír komum okkur saman um það, að ég skyldi fara og hvíla mig dálítið, þar sem ég hafði staðið uppi allan tímann, frá því að lagt var á stað frá Hafnarfirði, en þeir hefðu þó hvílt sig til skiptis um nóttina áður. Ég bað þá svo að láta mig vita, ef einhvers þyrfti með, bauð góða nótt, fór ofan og lagði mig á bekkinn, eins og ég kom fyrir, að því undanskildu, að ég tók af mér þann danska hatt. Ekki hafði ég legið lengi, eða það fannst mér að minnsta kosti ekki, þegar annar maðurinn kom ofan og bað mig að koma fljótt upp, því skipið berðist við Eldey. Ég varð reiður, bað manninn að hypja sig sem fyrst, hann hefði ekki þurft að hafa fyrir því að koma með svona sögu, ef svo væri sem hann segði, snéri mér á bekknum og hélt í kojustokkinn, þar sem Dísa ætlaði að sofa. Sennilega hef ég verið búinn að festa svefn, þegar hinn vaktmaðurinn kom og bað mig í guðanna bænum að koma upp, því það berðist eitthvað svo hastarlega í bóginn á skipinu, en þeir gætu ekkert séð fyrir myrkri, byl og sjódrifi, og þeir geti heldur ekki gert sér grein fyrir, hvað það sé. Ég hentist upp og heyrði umrædd högg í bóg skipsins, en sá ekki frekar en hinir orsökina til þeirra. Ég spurði þá, hvort skipið hefði fengið á sig sjó. Þeir sögðu, að það hefði „difið“ sér í aftur að frammastri, en komið fljótt upp úr. Þá vissi ég, hvað hafði skeð: klýfisbóman hefur auðvitað brotnað við fasta spruðið, þegar skipið reif sig upp úr öldunni, og harðist nú við bóg þess, þar sem hún hékk í bardúnunum, ldýfisleiðaranum, pertunum ásamt fleiru. Hér var úr vöndu að ráða og ekki nema um tvær leiðir að ræða, og báðar hættulegar. Önnur var sú að láta 60 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.