Heima er bezt - 01.02.1957, Page 18

Heima er bezt - 01.02.1957, Page 18
inn úr 10 potta brennivínskútnum, sem hann hafði með frá Hafnarfirði. Ég varð svo reiður af þessu, að ég hljóp strax niður í káetu til skipstjórans, tók kassann og ætlaði upp með hann og kasta honum fyrir borð til þess að fyrirbyggja, að slíkt endurtæki sig, en skip- stjóri bað mig svo vel að gera það ekki og lofaði jafn- framt, að hann skyldi ekki gefa þeim dropa oftar, svo ég hætti við að taka kassann. Loforð sitt um þetta atriði efndi skipstjóri vel. Á driftinni höfðum við þre- menningarnir ekkert að gera annað en að halda skip- inu þurru, enda var það æði mikið verk. Er svo ekki að orðlengja það, að okkur var að reka í 21 dægur, en eftir það fór veður og sjó að lægja, og var þá farið að taka til hinna rifnu segla og gera við þau, en það tók, að mig minnir, tvo eða þrjá daga, sem von var, þar sem ég var aðeins einn við það starf. Að viðgerðinni á seglunum lokinni, var komið gott veður og vindur hagstæður, svo nú voru öll segl sett til, nema klýfir, en hann var ekki hægt að nota, vegna þess að við höfðum engin tök á því að koma klýfis- bómunni á sinn stað. Nú vandaðist málið, engin sjó- kort voru til né önnur áhöld, sem notuð eru til að ákveða með stað skipsins, og heldur enginn, sem kunni að nota þau, þó til hefðu verið, nema skipstjórinn, en hans naut ekki við. Hvar var ísland? í hvaða átt átti að halda til að finna það? Vindurinn lá vel á með því að stýra í norðaustur, skipið hafði rekið í. suðvestur, og því var ekki ósennilegt, að land væri fyrir stafni í gagnstæðri átt. Ákvað ég því að taka stefnuna í norð- austur. Á uppsiglingunni bar ekki neitt sérstakt við, nema að alltaf varð ég að minnka skammtinn, en vind- urinn var hæfilega sterkur til að sigla með þeim seglum, er uppi voru og áður er greint. 27. febrúar sáum við Hjörleifshöfða og urðum mjög glaðir við. Þá var vindur norðvestlægur, en um nótt- ina gekk hann til í suður, hægur þó og sjólaus. Um hádegisbil var farið fram hjá Vestmannaeyjum á milli lands og Eyja, í þeirri von, að til Stokkseyrar næðist þá um kvöldið. Þá var ekkert til nema nokkrir kola- molar í fötu, þrátt fyrir það þó skammtað hefði verið ein brauðsneið og XA peli af vatni á mann síðustu 6 dag- ana og eldur tekinn upp einu sinni á dag til þess að búa -til kaffi úr skammtaða vatninu. Til Stokkseyrar var komið um kvöldið og skipið dregið inn á legu af róðrarbátum, en þetta var nú líka fyrsta dagurinn, sem við höfðum farið úr olíufötum, frá því við fórum í þau í Faxabugt, eins og áður er sagt. En það var líka annar dagur skipstjórans á dekki, frá því að við lögð- um til undan Reykjanesi. Þegar búið var að koma skipinu í lægi, komu menn um borð með mat, vatn, kol og brennivín, en allir höfðu þeir sömu sögu að segja, þá, að engum hefði dottið í hug, að „Ingólfur“ kæmi nokkru sinni fram, eftir að hafa hreppt svo geysilega sterkt og langt veð- ur. Meðan við lágum á Stokkseyri, en það mun hafa verið í tvo eða þrjá daga, var klýfisbómunni komið fyrir á sinn stað, og það, sem eftir var af vörum, var flutt í land, þó hún að vísu væri öll ónýt vegna sjó- bleytu, nema það af henni, sem var járnvara og tóg. Áð þessu loknu var tekin seglfesta og haldið af stað seinni part laugardags, að mig minnir, í hæglætis suð- austan kalda. „Ingólfur“ seig nú loks í áttina heim, en skipstjórinn og hásetarnir settust að í káetunni og hresstu sig eftir volkið á brennivíninu, sem kaupmaður- inn gaf þeim eða seldi, en svo vel féll þeim drykkur- inn, að ég náði þeim ekki upp til dekks fyrr en klukk- an 8 á sunnudagsmorguninn. Við Garðskaga mættum við fiskiskipum, sem voru að leggja út í sinn fyrsta túr, þar á meðal var skipið, sem ég var ráðinn á. Á mánudag, sem mun hafa verið 4. eða 5. marz, sigldum við inn í Skerjafjörð og steyttum á boðanum „Jörundi“, en losnuðum fljótt við báru, sem undir gekk og lyfti okkur af. Lagzt var á Seiluna, þar sem við tókum „Ingólf“ úr vetrarlæginu. En þaðan var hann aldrei hreyfður meira til siglinga, svo gjörsamlega var hann sligaður og brotinn, að ekki þóttu nokkur tiltök að kosta upp á viðgerð á honum. Þessi saga er skrifuð með það eitt fyrir augum að vekja uppvaxandi kynslóð til umhugsunar um það, hvað harðri lífsbaráttu afar hennar og íeður urðu að berjast sér og sínum til framdráttar á þeim tíma, er hér um ræðir. Þá á hún einnig að sýna, hvað hættulegt það er á öllum tímum að hafa Bakkus um of um hönd, en ekki er það hvað minnst hættulegt að láta hann sitja í fyrirrúmi á slíkum ferðum sem þessari. Mér er það fyllilega ljóst, að hefði hann ekki verið með í ferð- inn, þá hefði aldrei þurft að segja þessa sögu. Að síðustu vil ég taka það fram, að skipstjóri N. N. var ómagamaður mikill og bláfátækur. Af því var það, að hann miðaði vistir til skipsins ávallt við fljótustu ferð á milli þeirra staða, er hann þurfti að sigla. N. N. var dugnaðarmaður í hvívetna og drengur hinn bezti. En Bakkus hemlaði hann helzt til oft eins og svo marga góða drengi. L JÓÐ Viltu lesa kvæði í kvöld? Þetta kvæði, sem við höfum ort? Viltu lesa kvæði um koss? Það er kossinn, sem breyttist í ljóð? Viltu lesa fyrir mig Ijóð? Þetta Ijóð, sem var ort í gær. Viltu lesa ljóðið um þig? Það er Ijóðið um sól og dag. Svalinn. 62 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.