Heima er bezt - 01.02.1957, Blaðsíða 21
PÆTTIR ÚR VESTURVEGI
eftir Steindór Steindórsson frá Hlöhum
HEIMSÓTTIR HÁSKÓLABÆIR.
a merískir háskólar eru sérkennilegar stofnanir, og
/\ að ýmsu frábrugðnir því, sem vér eigum að
/ venjast hérna megin hafsins, að minnsta kosti
á Norðurlöndum. í fyrsta lagi eru þeir furðu-
lega fjölmennir. Stúdentafjöldi hinna stærstu þeirra er
milli 20 og 30 þúsund, og í þeim er unnt að leggja stund
á nær því hvað, sem hugsazt getur milli himins og jarðar
af þeim störfum og fræðum, er ætla má, að geti að gagni
komið í þjóðfélaginu. Inntökukröfur eru og með öðrum
hætti en hér gerist, og reynir þar mest á getu nemenda
sjálfra um hvort við þeim er tekið eða ekki, en minna
litið á prófskírteini. Eins og nærri má geta, þá er húsa-
kostur slíkra stofnana mikill, cnda eru háskólahverfin
eins og heilar borgir. Kallast hverfi þessi „campus“.
Auk kennslustofnana, tilraunastofa, safna og stúdenta-
garða, eru þar að jafnaði víðir vellír, skreyttir trjám og
blómum. Þar eru íþróttasvæði, sem hver bær gæti verið
fullsæmdur af, oftast nær gististaðir, þar sem gestir há-
skólans búa. Sölubúðir eru þar, sem stúdentar kaupa í
allar nauðsynjar sínar, póststofur, matsölustaðir, auk
fjölmargra staða, þar sem stúdentar geta iðkað ýmis-
konar tómstundavinnu sér til gagns og skemmtunar.
Virtist mér við fljóta yfirsýn, að séð væri þar fyrir
öllum þörfum stúdenta, og væri þeim aldrei nauðsyn á
að fara út fyrir „campusinn“ til nokkurra þeirra erinda,
sem daglegar þarfir krefjast. Og furðu einkennilegt var
þar sumstaðar, að koma inn í háskólahverfin beint úr
ys og þys borganna, og finna þar kyrrð og ró, enda
þótt þótt allt væri þar iðandi af lífi. Því að í raun réttri
er þar alls staðar starfað. Hvert hverfi er með sínu
sniði, um byggingarlist og fyrirkomulag. Sum eru til-
tölulega einleit í þeim efnum, en önnur svo sundur-
leit, að naumast eru nokkur tvö hús í sama stíl. Mjög
mörg stórhýsi og stofnanir eru þar gefnar af einstakl-
ingúm, og bera nöfn þeirra; er þá ýmist að þeir eða
þeirra nánustu hafa gefið stofnanir þessar, eða þær eru
reistar með almennum samskotum til minningar um ein-
hvern merkismann, helzt þá, sem starfað hafa við há-
skólann. Og margir einkaháskólarnir eru stofnaðir af
gjafafé einstakra manna. Enda þótt margt sé misjafnt
sagt um ameríska auðkýfinga, verður sá heiður ekki
tekinn af mörgum þeirra, að þeir hafa gefið ævintýra-
legar fjárupphæðir til menningar- og mannúðarmála,
og hafa háskólarnir ekki sízt notið þeirra gjafa. Vera
má að nokkur fordild fylgi sumum slíkum gjöfum, en
aðalatriðið er þó, að þarna er dollurunum'breytt í verð-
mæti, sem mölur og ryð fá ekki grandað, og kynslóð
eftir kynslóð nýtur góðs af. Ánægjulegt væri, að sjá
stefnt að hinu sama í voru landi í hlutfalli við getu
vora. Ef sami hugur ríkti til. menningarmála, þá mundi
oss margt ganga greiðlegar um verndun og aukningu
menningar vorrar en nú er.
í ferðalagi mínu heimsótti ég allmarga háskóla, enda
var meginþáttur áætlunar minnar, að kynna mér grasa-
fræðistofnanir og hitta sérfræðinga í þeim fræðum. Af
þeirn sökum urðu oft almenn kynni mín af háskólun-
um minni en skyldi, þar sem skammvinn hehnsókn var
einkum tengd við eina deild. Verður víða getið hinna
einstöku skóla, en um ytri svip eru þeir ólíkir inn-
byrðis, þótt gera megi ráð fyrir, að starfshættir séu um
margt líkir.
Skyggnst inn í Yale.
Fyrsti áfangastaður minn frá Washington var Yale-
háskólinn. Hann stendur í borginni Ncw-Haven í
Co7inectitut-xi\ú á austurströndinni, nokkni norðar en
New-York. Yale-háskóli er einn af elztu háskólum
Séð yfir Yale-háskóla.
Heima er bezt 65