Heima er bezt - 01.02.1957, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.02.1957, Qupperneq 23
með um 1500 áhorfendasætum, svo að eitthvað sé nefnt. Öll hugsanleg tæki og þægindi fyrir íþróttamennina voru þarna fyrir hendi. í öllum æfingasölum voru menn að íþróttum og leikjum, enda er stofnunin sótt að stað- aldri af um 4000 stúdentum auk margra annara. Uppi á efstu hæð í turninum er salur einn mikill, þar sem geymdir eru verðlaunagripir þeir, sem Yale-menn hafa unnið í íþróttum fyrr og síðar. Fánar og veifur hanga þar úr lofti og á veggjum, en í skápum og hillum eru bikarar, skálar, líkneskjur, minnispeningar og hvað eina af slíkum gripum, og var margt af því forkunnarfag- urt, en margir fánarnir voru rykfallnir og að því komnir að detta sundur fyrir elli sakir. Fylgdarmaður sá, sem Mr. Holden hafði fengið mér til leiðsagnar um allt háskólahverfið, var stoltur mjög af safni þessu fyrir hönd háskóla síns. Eru Yale-menn yfirleitt stoltir af skóla sínum, og það ekki að raunalausu. „Það er raunar óþarfi fyrir þig að skoða fleiri háskóla hér í landi, fyrst þú ert búinn að skoða Yale,“ sagði mr. Holden við mig, er við kvöddumst. Að vísu var það í gamni mælt, en öllu gamni fylgir nokkur alvara, og þarna kynntist ég einum þætti, sem ríkur er í amerískum há- skólamönnum, og það er stolt þeirra og ást á háskóla þeim, er þeir hafa stundað nám í. Endist þeim það flest- um alla ævi, og hefur það átt eigi lítinn þátt í þeim gjöfum, sem háskólarnir hafa hlotið. Síðasti dagur minn í New-Haven var sunnudagur. En á ferðalagi reynast sunnudagar oftast leiðinlegustu dagarnir, að minnsta kosti þangað til maður er orðinn heimavanur. En einn stað átti ég eftir að skoða þar, og það var náttúrugripasafn Yale-háskóla, Peabody-safnið, kennt við gefandann, eins og títt er. Það stendur spöl- korn utan við sjálft háskólahverfið. Safnið er ekki geysi- stórt, en mjög létt er að átta sig þar á hlutunum, eins og raunar alls staðar í amerískum söfnum, en um þau mun ég ræða síðar í sérstökum þætti. Einna merkileg- asti hluti þessa safns er steingervingasafnið. Meðal ann- ars eru þar margar beinagrindur af hinum útdauðu skrýmslum miðaldar. Þar er t. d. heil Þórseðla (Brontó- saurus), þ. e. a. s. beinagrind hennar, og hefur ekkeit þurft í hana að steypa. Brontósaurus er stærsta land- dýr, sem lifað hefur á jörðinni, er beinagrind þessi um 30 m á lengd með haus og hala, en áætluð skrokkþyngd dýrsins 35—40 smálestir. Hinsvegar mun gáfnafar þess ekki hafa verið stórkostlegt, því að heilinn hefur varla verið yfir 2—3 kg. Steinasafnið var geysifagurt, glitruðu þar steinarnir í óteljandi litbrigðum og geislaskrauti. Meðal annars var þar líkan af gullmola miklum frá Californíu, sem gaf góða hugmynd um hvernig stærsti gullmoli, sem fundizt hefur í Ameríku, leit út. A heimleiðinni frá safninu lá leið mín um Græna- völl. Þegar þangað kom, var stungið auglýsingamiða í hönd mér, um það að einhver heiðursmaður, nafninu gleymdi ég og týndi miðanum, ætlaði að flytja fyrir- lestur þar á vellinum um annað líf og samband við framliðna rnenn, og átti ræðan að hefjast eftir örfáar mínútur. Eg svipaðist um, og drjúgan spöl frá sá ég ræðustól og bekki. Þar sem ég hafði heitið sjálfum mér því, að láta ekkert færi ónotað, til þess að æfa skilning minn í enskri tungu, taldi ég rétt að hlýða á þenna náunga. Tók ég mér sæti þar á bekksenda, og var fólk nú að tínast þangað. Raunar varð söfnuðurinn aldrei stór, eitthvað 80—100 manns og mest af því voru negrar og kynblendingar, og brá mér við, því að fátt hafði ég annars séð af þeim í New-Haven. Brátt kom ræðu- maður, og hóf að tala. Rakti hann skoðanir manna á öðru lífi á ýmsum tímum og í ýmsum trúarbrögðum, og varð honum einkum tíðrætt um kenningar spíritista. Var sá hluti ræðu hans allur hinn skilmerkilegasti. Síðan tók hann að þýða texta sinn. Kvað hann fásinnu og heimsku að afneita fyrirbrigðunum, eins og sumir menn gerðu. Þau væru hvorki klekking né skynvilla, heldur fullkomlega raunveruleg. Einungis væri þess að gæta, að þau væru ekki komin frá framliðnum mönnum, heldur væri þar djöfullinn sjálfur að verki, ljóslifandi og áþreifanlegur. Tók hann síðan að rökstyðja þessa fullyrðingu sína með ritningargreinum, og hlýddi söfn- uðurinn á hann með fjálgleik. Þótti mérþá nóg komið af svo góðu og hélt heim á hótel mitt og tók að búa mig til brottferðar. Cornell háskóli. Næsti áfangi var Cornell-háskóli í bænum lthaca. Kom ég þangað snemma næsta morguns, með nætur- lest frá New-York. Var mér fengin þar vist í gisti- heimili háskólastúdenta, William Straight Hall, en þar er jafnframt miðstöð alls félagslífs stúdenta í Cornell. Salakynni eru þar mikil og fögur, einkum var ég hrif- inn af samkomusalnum, sem jafnframt var notaður sem setustofa á daginn. Bókasafn er þar mikið og gott, allskonar leiksalir með knattborðum, borðtennis og hverskonar leikföngum, matsalir eru þar miklir og víðir, og borða þar þúsundir manna daglega. Þá eru þar skrif- stofur stúdentafélaga, ritstjórn háskólablaðsins, en í öll- um háskólum gefa stúdentarnir út dagblað, málverka- salir o. s. frv. Mestöll vinna er unnin af stúdentum, og allan daginn er þar stöðugur straumur út og inn. Mun Stúdentaheimilið William Straight Hall. Heima er bezt 67

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.