Heima er bezt - 01.02.1957, Page 24

Heima er bezt - 01.02.1957, Page 24
Séð yfir Cornell-háskóla. Bókasafnsturninn á miðri mynd. hvergi vera betra að fá yfirlit um stúdentahópinn en þarna. Eitt meðal annars, sem þegar vakti athygli mína meðal amerískra stúdenta, var daglegur ldæðaburður þeirra. Langflestir gengu í vinnubuxum, og í peysu eða blússu. Er búningur sá í senn léttur, hreinlegur og ódýr. Gæti námsfólk hér heima tekið sér það til fyrirmyndar. Gistiherbergin í Straight Hall eru ekki mörg, en hin vistlegustu. Þótti mér sem ég væri kominn heim til mín, jafnskjótt og ég hafði búið um mig í herbergi mínu. Var ekki einungis að herbergið sjálft væri hið þægilegasta, heldur var útsýni þaðan hið fegursta, yfir háskólahverfið, og út um vötn og velli. Naumast hafði ég þvegið af mér ferðarykið, þegar leiðbeinandi minn, Mr. Bruska, aðstoðarmaður háskólaforsetans, hringdi í mig. Hafði hann ekið út á járnbrautarstöð, en gripið í tómt, því að ég náði í bíl þar jafnskjótt og ég kom út úr lestinni. Sagði mr. Bruska, að enginn, sem hann hitti þar, hefði veitt mér athygli, og var hann í öngum sínum yfir, að eitthvert óhapp hefði hent mig. En nú var sú sorg sefuð. Bað hann mig að hitta sig á skrif- stofu sinni svo fljótt sem ég gæti. Cornell-háskóli liggur rétt utan við smábæinn Ithaca. Stúdentar eru þar um 10 þúsund. Háskólasvæðið sjálft er hið fegursta, sem ég sá í Ameríku, og eru þó mörg þeirra falleg. Campusinn liggur í hálendri tungu milli tveggja gljúfra, en í þeim falla ár með háum fossum, en í giljunum er fjölbreytilegur gróður trjáa og jurta, og ýmsar merkilegar jarðmyndanir, sem ég átti kost á að skoða seinna í hópi náttúrufræðistúdenta. Það þarf þannig ekki að ganga nema snertispöl út frá miðju háskólahverfinu, til þess að vera úti í ósnortinni nátt- úrunni. Útsýni er hið fegursta, einkum út yfir Cayuga- vatnið, en í fjarlægð eru skógi vaxnar hæðir og ásar, og milli skógargeiranna blómleg bændabýli með ökr- um og engjum. Allt umhverfis blasti við blómleg sveita- sæla, en inni í campusnum eru stúdentar hvarvetna að starfi og leik. Sumir lágu á grasflötunum og lásu, aðrir sátu við málaragrindur og æfðu sig í teikningu og mál- aralist, sumir spjölluðu saman, og sumstaðar leiddust piltur og stúlka og létu sér fátt finnast um annað en sig sjálf. Allt þetta bar fyrir augu mér, þegar fyrsta morg- uninn á leiðinni yfir til Mr. Bruska. 1 musteri íslenzkra fræða. Mr. Bruska fagnaði mér vel, og sagðist þegar hafa gert dagskrá fyrir mig, meðan á dveldi í Cornell. I dag ætlaði hann að afhenda mig í umsjá vinar míns, Jóhanns Hannessonar, og á morgun langaði prófessor Lawrence mjög til að sjá mig, því að ég hefði gert honum mikinn greiða fyrir mörgum árum. Ég rak upp stór augu, því að satt að segja var dr. Lawrence mér löngu gleymdur, en síðar kom það í ljós, að ég hafði sent honum eftir beiðni heilmikið af íslenzkum geldingahnappi fyrir ein- um 15—20 árum. Ekki hafði ég rætt lengi við mr. Bruska, þegar Jóhann Hannesson vatt sér inn úr dyrunum. Varð þar fagna- fundur, og brátt lögðum við leið okkar yfir í ríki hans í Fiske-safni. Margt hafði ég heyrt um Cornell-háskóla, áður en ég kom til Ameríku, enda hefur hróður hans borizt víða sem eins hins ágætasta háskóla í Ameríku, en ekki var það þó fyrir þær sakir, sem ég Jagði leið rnína þangað. En þar er Fiske-safnið, eitt af því þrennu, sem mig fýsti mest að sjá í allri Ameríku. Eins og kunnugt er, var prófessor Willard Fiske einn hinn ötulasti safnandi íslenzkra bóka, sem uppi hefur verið. Fór í því starfi saman góð efni, óvanaleg þekking á bókum og bókfræði, og ást á viðfangsefninu. Náði nú tilfinning ekki einungis til bókanna sjálfra, heldur og til þjóðarinnar, sem þær hafði gert, og lands- ins, sem þær voru frá. Vinsemd hans og drengskapur gagnvart íslandi og íslendingum kom fram á fjölda- margan hátt, sem ekki verður rakið hér. Við andlát sitt arfleiddi hann Cornell háskóla, þar sem hann hafði starfað lengi sem prófessor, að hinu íslenzka bókasafni sínu, sem vafalaust var þá hið mesta og bezta safn íslenzkra bóka, sem til var, nema ef til vill Landsbóka- safnið, en þó er Fiskesafn sennilega auðugra að erlend- um bókum og bæklingum, er snerta ísland og íslenzk efni. En Fiske lagði ekki síður stund á að safna slíku efni, en sjálfum íslenzku bókunum. Safninu lét hann fylgja sjóði allgildra, en af tekjum þeirra skyldi launa bókavörð, auka safnið og halda því við og gefa út rit um íslenzk fræði, en mest var þó um vert að Fiske ákvað, að bókavörðurinn skyldi ætíð vera borinn og barnfæddur íslendingur, og hafði hann þegar ráðið Halldór Hermannsson til þess starfa. Stjórnaði Halldór Fiskesafni um tugi ára og gaf jafnframt út ritið Islandica. Vann hann þar íslenzkri bókfræði og menn- ingu slíkt nytjastarf, að fáir hafa betur gert. Hann hefur nú látið af störfum fyrir allmörgum árum, en dvelst í Cornell, og er heilsu hans tekið mjög að hnigna. Fáar bækur hef ég handleikið oftar en bókaskrár þær hinar miklu, sem Halldór Hermannsson hefur samið um Fiske-safn. Eru þær hið mesta bókfræðirit, sem til er um íslenzkar bækur og um margt, hið eina, sem kostur er á. Smám saman hafði mér því fundizt ég vera heimamaður í Fiske-safni, en ég hafði hugsað mér það í háreistum húsakynnum, og áberandi að ytri sýn, en lengi hafði mig fýst að sjá og skoða dýr- ■68 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.