Heima er bezt - 01.02.1957, Side 26
HVAÐ UNGUR NEMUR - ÞÁTTUR
RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR
STEFÁN JÓNSSON----------------------------------
NÁMSTJÓRI
HÓLSFJÖLL
EÍ f við lítum á íslandskortið og athugum norð-
austur hluta landsins, milli Jökulsár í Axarfirði
j og Jökulsár á Dal, þá sjáum við það, að með-
"" fram ströndinni eru þessar byggðir: Axarfjörð-
ur, Melrakkaslétta, Þistilfjörður, Langanes, Langanes-
strendur, Bakkafjörður, Vopnafjörður og Jökulsárhlíð.
Að baki þessara byggðarlaga liggja víðlendar heiðar, ör-
æfasandar og fjallgarðar, alla leið suður og vestur að
Vatnajökli.
Ef við athugum kortið nánar, þá sést á öllum kortum
bæjarnafnið Grímsstaðir og fleiri bæjanöfn og örnefni
uppi á hásléttunni. Er bæjarnafnið Grímsstaðir á Fjöll-
um, ásamt Möðrudal, landskunnugt og víðfrægt í veður-
fregnum útvarpsins, því að þar er frostið oftast mest og
hitastig yfirleitt lægst á landinu. Þarna á hásléttunni er
byggðarlag, sem almennt er nefnt Hólsfjöll. Það er sér-
stakt sveitarfélag og heitir Fjallahreppur. Verður þess-
ari merku fjallabyggð lýst nokkuð í þessum þætti.
Flest byggðarlög á íslandi eiga sína landnámssögu, en
í Landnámabók eru Hólsfjöll hvergi nefnd. Ekki er
heldur minnzt á bæi á Hólsfjöllum í íslendingasögun-
um, og hvergi minnist ég þess, að þeirra sé getið í Sturl-
ungu.
En þarna hafa þjóðsögurnar fyllt upp í autt rúm, og
um upphaf byggðar á HólsfjöIIum er til merkileg og
fögur þjóðsaga, sem heitir Sagan af Fjalla-Guðrúnu.*)
Gríma I, bls. 59. — Endursögð með leyfi útgefanda.
/0 Heima er bezt