Heima er bezt - 01.02.1957, Page 29

Heima er bezt - 01.02.1957, Page 29
einn í hólinn. Þegar inn kom, fann hann Guðrúnu liggjandi meðvitundarlausa á gólfinu. Urðu þar miklir fagnaðarfundir, er hún raknaði við. Sagði hvort öðru það, sem á dagana hafði drifið. Guðrún fór nú með leitarmönnum til byggða, og urðu allir henni fegnir. Litlu síðar giftist hún þessum æskuvini sínum, og reistu þau sér bæ við hólinn, sem í 12 ár hafði verið heimkynni Guðrúnar. Síðar fluttust þangað fleiri vinir og vandamenn, og þannig byggðust Hólsfjöll. Þetta er ágrip sögunnar um landnám Hólsfjalla. Það er saga um sorg og þung örlög, en á hinn bóginn fagurt ævintýr og dýrðaróður íslenzkra fjallabyggða.---- Enn vil ég minna á íslandskortið og beina augum að Fossvöllum við Jökulsá, neðst á Jökuldal, en frá þeim bæ lagði Fjalla-Guðrún upp í sína öræfagöngu og land- námsför. Við skulum líka leggja leið okkar frá Foss- völlum til Hólsfjalla, þótt við förum ekki alveg sömu slóðir og landnámskonan. Frá Fossvöllum liggur þjóð- leið upp eftir Jökuldal að Skjöldólfsstöðum, og þaðan um heiðar, öræfi og eyðisanda til Hólsfjalla. Lagt er upp frá Skjöldólfsstöðum á Jökuldalsheiðina. Þar voru áður allmörk heiðarbýli, en nú eru þau öll í eyði og sjást rústir sumra þeirra skammt frá þjóðveginum. Þegar ég kom fyrst á þessar slóðir árið 1942, voru þrjú heiðarbýlin í byggð og sum nýlega komin í eyði, svo sem Rangalón, rétt við þjóðveginn. Hin þrjú býlin voru Ármótasel og Sænautasel, nálægt þjóðveginum, og Heiðarsel, allmiklu vestar. Þarna eru sauðfjárlönd góð og fagurt á sumrum, en vetrarríki mikið. Er lengra dregur norðvestur á öræfin, eru víða gróðurlausar sand- auðnir, grjóturðir og lágir fjallgarðar. — Þegar við höf- um ekið 40—50 km frá Fossvöllum, komum við að Möðrudal. Skammt frá Möðrudal er bærinn Víðidalur. Báðir þessir bæir tilheyra Jökuldalshreppi, þótt þeir liggi nær Hólsfjallabyggðinni. — Möðrudalur hefur ætíð verið stórbýh og höfðingjasetur, og þar var áður klerkur og kirkja, og er til mögnuð þjóðsaga um klerk- inn í Möðrudal, en út af þeirri þjóðsögu hefur Stefán skáld frá Hvítadal ort dulmagnað kvæði. Nú er ný- byggð lítil kirkja í Möðfudal, en hana hefur gera látið bóndinn í Möðrudal, Jón Stefánsson. — Þessa fjölförnu þjóðleið um Möðrudalsöræfi hef ég nokkrum sinnum farið og eitt sinn á sólheitum júlídegi, er hvergi sást skýhnoðri á lofti. Var þá útsýn fögur suðvestur á jökla, en lengi blasti við sýn drottning íslenzkra fjalla, Herðu- breið á Mývatnsöræfum. Þegar við höfum ekið um 30 km leið frá Möðrudal, er komið að Fornu-Grímsstöðum. Þar stóð áður bærinn Grímsstaðir, en uppblástur herjaði á landið, bæði tún og engi, og var því bærinn fluttur aldamótaárið 1900 og endurbyggður í landi Nýjabæjar, sem þá var í eyði. Er um klukkutímagangur (5 km) frá Fornu-Gríms- stöðum að bænum, sem nú heitir Grímsstaðir, og er þá komið í Hólsfjallabyggð. Þessi sveit er sérstæð um margt og ólík öllum öðrum sveitum á íslandi. Þetta er eina sveitin á íslandi, sem segja mætti að byggð sé á hásléttu. Byggðin öll er 300—400 metra yfir sjávarmál, og hún er þannig sett á öræfunum, að allt í kringum sveitina eru gróðurlitlir sandar og heiðalönd og langt til bæja í hvaða átt, sem farið er. Ef haldið er niður í Axarfjörð- inn, hina gömlu þjóðleið, eru um 40 km að efstu bæjum í Axarfirði. Ef haldið er í norðaustur, er komið í Þistil- fjörð, og er álíka langt þangað að efstu bæjum. Ef hald- ið er í suðaustur, er komið í Vopnafjörð. Er þangað svipuð vegalengd. Má segja, að um 8—10 tíma gangur sé til byggða í hvaða átt, sem haldið er, en skemmst er leiðin til Mývatnssveitar, enda greiðfærust nú, síðan brú var byggð á Jökulsá, rétt hjá Grímsstöðum. í þessari sérkennilegu háfjallasveit eru nú í byggð sex jarðir, og heimilisfastir íbúar Hólsfjalla eru nú 41 tals- ins. Árið 1893, þegar Hólsfjöll eða Hólsfjallabyggð var gerð sérstakt sveitarfélag, voru í sveitinni 76 manns, en um 1880 voru taldir þar um 90 manns. Nokkur eyðibýli eru á Hólsfjöllum, en eitt nýbýli hefur byggzt þar á síðustu árum, og ber það nafnið Grímstunga. Þríbýli er nú á Grímsstöðum. En nú gæti verið að einhver, sem les þessar línur, hugsi sem svo: Á hverju geta menn lifað í þessari af- skekktu öræfabyggð? Jú, þarna Hfa menn aðallega á sauðfjárrækt. Vitanlega hafa menn líka kýr til heimilis- þarfa, og oft hef ég fengið ágætt 'skyr og rjóma á Grímsstöðum, en sauðfjárrækt er þarna aðalatvinnu- vegurinn. — Á Hólsfjöllum er sauðfé mjög vænt, og kjötið þykir sérstaklega bragðgott. Það er mest af því, að kindurnar lifa á svo kjarnmiklum og ilmandi gróðri. Fyrir 12—15 árum mátti oft heyra í útvarpstilkynn- ingum auglýst Hólsfjalla-hangikjöt. Allar kjötverzlanir í Reykjavík kepptust um að hafa það á boðstólum. Nú heyrast þessar auglýsingar aldrei. — Á þeim tímum, sem Hólsfjallahangikjöt var auglýst mest, sagði fyndinn ná- ungi, að ef allt kjöt, sem auglýst væri sem Hólsfjalla- hangikjöt, ætti að vera af Hólsfjallafé, þá dygði ekki fjárstofninn, þótt honum væri öllum lógað á hverju hausti, og jafnvel þyrfti þá að lóga honum oft á ári! En slík kraftaverk er víst aðeins hægt að gera í auglýs- ingum.. Margt fleira mætti segja um þessa fögru fjallabyggð, en rúmið leyfir ekki langa ritgerð. Bæirnir sex, sem nú eru í byggð, heita: Hólssel, Ný- hóll, Víðihóll, Grundarhóll, Grímsstaðir og Gríms- tunga. En Grímstunga er nýbýli, eins og áður er sagt. Ekki vita menn fyrir víst, hvenær fyrst hófst byggð á Hólsfjöllum, en líklegt er, að Möðrudalur hafi byggzt á undan Hólsfjallabæjum. Af gömlum skjölum (Vilkins- máldaga) sést, að kirkja er í Möðrudal árið 1397, og getur vel verið, að hún hafi verið þar á miðri 14. öld. Um þann tíma eða nokkru síðar er líklegt að Hólsfjöll hafi byggzt. Lengi voru bæirnir á Hólsfjöllum í sveit með Axar- firði, og hét þá hreppurinn Skinnastaðahreppur. Árið 1893 voru Hólsfjallabæir gerðir að sérstöku sveitarfé- lagi og sveitin nefnd Fjallahreppur. Skinnastaðahreppur Heima er bezt 73-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.