Heima er bezt - 01.02.1957, Síða 31

Heima er bezt - 01.02.1957, Síða 31
Höfundur: TOP NAEFF . Þýðandi STEFÁN JÓNSSON, námsstjóri ejxhjj SKOLASAGA FRA HOLLANDI OG VINSTÚLKUR HENNAR En hún vissi allt, sem hún var spurð um, og svaraði öllu viðstöðulaust. — Kennslukonan hneigði sig stöðugt og sagði: „Ágætt, ágætt, Jóhanna litla. Farðu aftur í sætið.“ — Öðru hveru leit kennslukonan á „nýju stúlk- una“. — Maud sat álút yfir bókinni. — „Taktu eftir, Maud,“ byrsti kennslukonan sig. — Maud lyfti léttilega hnjánum og bókin hvarf hljóðlaust inn í borðið og í sama bili kom forstöðukona skólans skyndilega inn í stofuna. Ungfrú Prior var grönn og smávaxin og erfitt að gizka á aldur hennar. Andlit hennar var ávalt og slétt og klæðnaður hennar tildurslegur. Augu hennar voru kolsvört og stingandi, og tillitið eins og hjá ránfugli. — Hún var ákaflega ströng við nemendur og engum þótti vænt um hana. Hún taldi skólann sinn bezta skóla í heimi og hún taldi sig líka réttláta og stjórnsama for- stöðukonu. — Af þessum ástæðum datt henni aldrei í hug að sér gæti skjátlast, þótt slíkt geti vitanlega hent, jafnvel ágætar forstöðukonur — og aldrei myndi hún viðurkenna yfirsjón sína. Kennsla hennar var skýr og fjörleg. — Það gátu jafn- vel Jenný og Nanna ekki annað en viðurkennt, — þótt segja mætti að þær hötuðu forstöðukonuna, ef það orð er notað um óánægju í skóla. — Flestar stúlkurnar voru beinlínis hræddar við hana, svo að námið fór út um þúfur hjá þeim af þeim sökum. — Hún var alltaf í æs- ingi, og talaði fljótt og skipandi. Hún myndi hafa litið mjög snyrtilega út, ef hún hefði ekki haft þann leiða vana, að vera alltaf að strjúka sig virðulega um mjaðmir og brjóst, en venjulega voru þá hendur hennar ataðar í krít, og sá þess merki á kjólnum. í þetta sinn kom hún þjótandi inn í stofuna, opnaði í skyndi glugga og tautaði eitthvað um „vont loft“, reif upp skáphurð og sneri sér að ungfrú Veroniku og sagði: „Ég er laus núna eina kennslustund, og ætla að nota tímann til að líta á heimareikning stúlknanna. Viljið þér gjöra svo vel, ungfrú Veronika, og afhenda mér reikn- ingshefti stúlknanna.“ Það sló felmtri yfir hópinn. — Allar stúlkurnar sáu eins og í draumsýn blekklessur, „grínmyndir“ og alls konar krot, sem ekki átti að sjást í reikningsheftum. Ungfrú Veronika skalf eins og trjálauf í vindi. Henni varð hugsað til heimadæmanna í síðustu viku, sem bróð- ir hennar hafði leiðrétt fyrir hana. Vel gat hann hafa gert eitthvað rangt af fljótfærni. — Hún reyndi þó að sýnast róleg og sagði: „Lilja, náðu í bækumar.“ Um leið og Lilja náði í bækurnar, fann hún til þess með duldri ánægju, að nú hlyti að komast upp um Jennýju, þar sem hún skrifaði dæmið upp eftir Jó- hönnu. „Hertu upp hugann „Kredit“,“ hvíslaði Lilja að Jó- hönnu. Vesalings Jóhanna. — Helzt hefði hún viljað að jörð- in gleypti skólastofuna með þeim öllum. — Hún leit augum, fullum örvæntingar, til Jennýjar. — Nanna sparkaði svo fast í Jennýju undir borðinu, að hún þaut upp og sagði: „Ertu alveg frá þér, barn? Hvað stendur til?“ En nýja stúlkan brosti. Forstöðukonan þeyttist út með bækurnar. „En sú fart,“ skauzt upp úr Jennýju. Ungfrú Veronika heyrði þetta, og henni rann í skap. Angistin yfir illa leiðréttum heimadæmum snerist nú öll upp í heift gegn Jennýju. — En í því var „hringt út“ og enginn tími varð til að setja fyrir og athuga efnið undir næstu kennslustund. Jóhanna þaut til Jennýjar. „Æ, þetta er alveg hræði- legt,“ hálf snökkti hún. „Hvað er að?“ sagði Jenný. Hún var strax farin að hugsa um annað. „Reikningsdæmið,“ sagði Jóhanna. — „Hún hlýtur að taka eftir því.“ „Já, auðvitað. Hún kemst að öllu,“ sagði Jenný ró- lega, eins óg þetta snerti hana ekki. Jóhönnu lá við gráti, og barðist við tárin, en Jenný reyndi að herða hana upp. — Hún klappaði á bakið á henni og sagði, að hún skyldi ekki taka þetta svona nærri sér. — Á meðan þetta gerðist hafði Maud gengið út að glugganum. — Allt í einu stökk hún upp í gluggakistuna og gægðist út um efstu rúðurnar, sem voru gagnsæjar. „Þetta máttu ekki. Komdu strax niður,“ skipaði Heima er bezt 75

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.