Heima er bezt - 01.02.1957, Síða 32

Heima er bezt - 01.02.1957, Síða 32
kennslukonan, sem þóttist nú fullviss um, að þessi nýja stúlka væri enn verri en hinar. „Ég hélt að hér bæri að tala frönsku,“ kallaði Maud þaðan, sem hún stóð. Kennslukonan fokreiddist, en stillti sig og svaraði háðslega: „Ég vona samt að þú skiljir hollenzku?11 „Ég hélt líka,“ hélt Maud hiklaust áfram, „að við mættum gera hvað sem við vildum í stundahléunum, þessar 5 mínútur milli kennslustunda. Ég var að gæta að pabba.. Hann ætlaði að fara hér fram hjá kl. 10. — Æ, — hérna er hann. — Góðan daginn pabbi.“ — Glugginn var opinn og pabbi hennar veifaði hlýlega til hennar. — Hún var einkadóttir hans. — Maud stökk fimlega yfir skólaborðið og náði á gólf. „Þetta máttu aldrei gera aftur,“ sagði ungfrú Veronika ásakandi. „Nei, ég ætla heldur ekki að gera það oftar,“ sagði Maud kæruleysislega. Hún tók bókina, sem hún hafði verið að lesa, ófeim- in, undan borðinu og settist út í horn á stofunni og fór að lesa, og virtist ekki veita neina athygli forvitnum augum, sem beindust að henni. „Hvernig finnst ykkur hún,“ byrjaði Lilja. „Ósvífin er hún.“ „Hún er skemmtileg,11 svaraði Jenný hrifin. „Hún er gáfuleg á svipinn,11 sagði Nanna. „En hvað hún er með fallegt armband,11 sagði Jó- hanna í hrifningu. Allar horfðu þær á ókunnu stúlkuna, eins og hún væri einhver undra gripur. Allt í einu opnuðust dyrnar og forstöðukonan stóð á stofugólfinu. — Hún hélt á bókunum með heimadæm- unum og svipur hennar spáði engu góðu. — Jóhanna fölnaði. „Þar fellur sprengjan,11 sagði Jenný. „Stúlkur,11 byrjaði forstöðukonan fljótmælt. — „Hér eru reikningsdæmin ykkar. — Yfirleitt eru þau góð og sæmileg, (stúlkurnar drógu andann léttar) en þó er frágangurinn dálítið misjafn. — Þar er Nanna meðal annara, sem ekki vandar skriftina. — Þið verðið að leið- rétta dæmin fyrir morgundaginn. — Ég hef líka athug- að heimadæmin frá fyrri viku, og mér þykir vænt um að yfirleitt er framför hjá ykkur.11 Ungfrú Veronika varpaði öndinni léttara. — Nú varð augnabliks þögn. Svo dimmdi yfir svip forstöðukon- unnar, og rödd hennar hljómaði eins og dómsorð í eyr- um Jóhönnu. „Mér þykir það mjög sárt að skýra ykkur frá því, að ég hef gert mjög leiðinlega uppgötvun, — svo ljóta, að ég hefði aldrei haldið, að slíkt gæti komið fyrir í mín- um skóla.11 Og nú kom það, sem Jóhanna kveið mest. „Jenný van Marle og Jóhanna van Laer! Ég býst við ykkur til viðtals á skrifstofu minni eftir kennslutíma í dag-“ Um leið og forstöðukonan strunzaði út, leit hún heiftaraugum til sökudólganna. Nú var hringt og kennslustundin hófst. — Allir störðu á Jóhönnu, sem var alveg utan við sig, og reif vasa- klútinn sinn í smátætlur, án þess að vita af því. — Seinna sá hún eftir því. — Jenný hafði alveg náð sér aftur, en henni hafði þó brugðið illa, er forstöðukonan leit á hana. — Stúlkurnar stungu saman nefjum og ræddu um, hvað þær Jenný og Jóhanna hefðu brotið af sér. — Ein- hver þeirra áræddi að beina spurningu til þeirra, og Jó- hana var rétt að hefja langa frásögn, og ætlaði að skýra frá öllu, en Jenný greip fram í og sagði: „Þetta kemur ykkur ekkert við. — Segðu ekkert, Jóhanna.11 Sú forvitna dró sig þá í hlé. í næstu kennslustund var óvenjulega mildl kyrrð. — Það var eins og eitthvert farg hvíldi yfir þessum lífs- glöðu stúlkum. — Jóhanna gat ekki um annað hugsað en afbrot sitt. — Að nokkru leyti fannst henni að hún væri saklaus. Líklega slyppi hún þó ekki við áminningu. Það hryggði hana mest, hve sorgmæddir foreldrar hennar yrðu. — Hún, sem ætíð hafði státað af því, að aldrei hefði hún rangt við eða bryti reglur skólans. — Pabbi hennar myndi segja: „Sá sem felur, er ekki betri en sá sem stelur.11 — Og það var líka í raun og veru rétt. — Forstöðukonan væri vís til að spyíja af meinfýsi, hvort Jóhanna hefði skrifað upp dæmið eftir Jennýju eða Jenný eftir Jóhönnu, en ætíð myndi hún telja þær sam- sekar. Ofurlítill vonarneisti leyndi sér þó hjá Jóhönnu um það, að forstöðukonan spyrði, ef til vill, um mála- vexti, og þá værijenný áreiðanlega svo heiðarleg að við- urkenna allt og taka sökina á sig. — Það var ekki eins ljótt að fela og stela fannst henni. — Langt frá Jóhönnu sat Jenný í sínu sæti og hugsaði um málið frá allt öðru sjónarmiði. Strax og kennslustundinni lauk, þaut Jenný til Jó- hönnu og sagði: „Heyrðu, vina. Þú ert eiginlega alveg saldaus. Þú hjálpaðir mér og það var ég ein, sem græddi á því, þess vegna er það ekki réttlátt að þú leynir skömminni. — Eg hef komið þér í vandann, og því ber mér að leysa hann. — Ég hef verið að hugsa um þetta allan tímann, og ég hef fundið ráðið. Taktu nú vel eftir. Ég svara öllum spurningum forstöðukonunnar, og ég skal útskýra allt á minn hátt. — Þú mátt aldrei blanda þér í málið. Aðeins þegar hún spyr, hvort allt sé eins og ég segi, þá verður þú að samþykkja það.“ „Þú ætlast þó ekki til, að ég fari að skrökva og neita að vera nokkuð við þetta riðin?11 greip Jóhanna fram í dauðskelkuð, en þó með duldri gleði yfir því, að ef til vill gæti hún alveg sloppið við refsingu. „Nei, nei — langt frá því,“ svaraði Jenný ákveðin. Hún hélt svo þannig áfram eftir örstutta umhugsun: „Sjáðu nú til. — Fyrst byrja ég á að játa það, að ég hafi skrifað allt upp eftir þínu dæmi, bæði útkomu og skýr- ingar. Svo bý ég til sögu um þetta — reglulega snjalla, — eftir minni venju. — Það er mitt einkamál. — Þú verður aðeins að staðfesta allt, sem ég segi. Annars verður allt ennþá verra en áður. Þú lofar þessu. Er það ekki? “ „Jú,“ svaraði Jóhanna dauflega. Hún gerði sér engar grillur út af því, hvernig Jenný ætlaði að bjarga málinu, 76 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.