Heima er bezt - 01.12.1975, Page 33

Heima er bezt - 01.12.1975, Page 33
hann aldrei beðið xnn þann rétt. En hvað hafði hann gert til að eignast hug hennar allan? Ekkert. Þó hafði hann haft ótal tækifæri til þess. Og hvað ætlaði hann að láta þetta reka á reiðanum lengi? Hann vissi, að allir, sem kynntust Sigríði, vildu ólmir ná hug hennar, og hann vissi vel, að Björn var þar engin undantekning. Þessar hugs- anir voru áleitnar við Hermann þetta kvöld, er hann var einn orðinn á herbergi sínu, og héldu fyrir honum vöku langt fram á nótt. Loks þegar hann sofnaði, dreymdi hann, að Sigríður kæmi brosandi á móti honum. Hann hugðist taka hana í faðm sér, en vaknaði þá með útréttar hendur og engin Sigríður. Hermann var árla á fótum morguninn eftir, sem var sunnudagsmorgunn. Hann fór að huga að hestunum, því að hann ætlaði að efna loforð sitt að fara fram að Lækja- móti með Sigríði. Sigríður er óvenjulega létt í sinni þenn- an morgun. Hún hlakkar til að koma á hestbak, og svo er eitthvað í hug hennar, sem dreifir burt öllum áhyggjum. Hún veit eiginlega ekki, hvað það er. Nú er Hermann kominn með hestana, og Sigríður getur ekki stillt sig um að fara út til þeirra og klappa þeim. Hann hefur komið með Grána og Rauð og er búinn að leggja á þann rauða handa Sigríði. Hann segir Sigríði, að hesturinn kunni að verða dálítið órólegur, meðan hún fari á bak, en hann skuh bara halda í hann, meðan hún stígi í hnakkinn. „Ekki hef ég nú þurft að láta hjálpa mér á bak,“ segir Sigríður og brosir til Hermanns. Hún hefur tekið með sér böggul, sem hún ætlar að færa Jóhönnu. Hún ætlar að festa hann fyrir aftan hjá sér. En Hermann segist skulu hafa hann við sinn hnakk. Og nú eru þau tilbúin að leggja af stað. Sigríður gengur að Rauð, leggur taumana upp á makkann og ætlar að stíga í ístaðið. En nú vill Rauður af stað. Sigríður stöðvar hann, klappar honum og talar við hann. Og allt í einu sveiflar hún sér í hnakkinn, rétt í því að Hermann kemur til að halda í Rauð. Hermann hlær og segir: „Þú ert ekki búin að gleyma því að stökkva á bak. Þetta var alveg eins og þegar þú varst að stökkva á bak á Brúnku, en hún var nú oftast hnakklaus." Sigríður er nú búin að laga sig í hnakknum og komin af stað. Rauður er iðandi af fjöri með hausinn uppi í fang- inu á Sigríði, og töltið glymur í götunni líkt og hamars- slög. Þegar Hermann nær henni, segir hann: „Þú kannt lagið á honum, þótt þú hafir ekki komið honum oft á bak.“ Sigríður brosir og segir: „Ég held hann sé ennþá skemmtilegri en mamma hans. Hún var alltaf nokkuð stíf og stundum erfitt að ná henni upp á töltið.“ Þegar þau koma að Lækjamóti, er enginn úti. Hermann stekkur af baki og ætlar að grípa í Rauð til að stöðva hann, en Sigríður er jafnsnör af baki sem á bak. Hermann dáist af fimi hennar. Hún er sem stálfjöður eða gormur, enda hefur hún oft sýnt snarræði sitt við ýmis tækifæri. Meðan þau spretta af hestunum, hefur Jónas komið út og sér, hverjir komnir eru. Hann verður gláður við og segir: „Verið þið velkomin. Það er gleðileg heimsókn að fá ykkur. Nú skal ég taka hestana, en þið gangið í bæinn. Jóhanna verður hrifin af að fá ykkur í heimsókn.“ Dagurinn líður fljótt á Lækjamóti. Sigríður er svo eðli- lega kát og létt og leikur við hvern sinn fingur. Senn er kominn tími til heimferðar, en Sigríður verður að lofa Jóhönnu því að koma bráðum aftur, þegar hún sé komin á fætur, og auðvitað hafa Hermann með. Á heimleiðinni njóta þau Hermann veðurblíðunnar og þeirrar ánægju að sitja á góðhestum. Þeir leika við tauminn eins og hugur- inn býður. Þegar þau koma heim undir Stóra-Fell, segir Sigríður við Hermann: „Eigum við ekki að reyna klárana? Það er alltaf gaman að vita, hvor er fljótari.“ Það þarf ekki lengi að hvetja gæðingana, og sprettur- inn er tekinn. Þeir eru alveg jafnir. En allt í einu hreyfir Hermann svipuna, og nú þeytist sá grái áfram og kemst örlítið fram úr. En nú er spretturinn líka búinn og komið í hlað. Hermann sprettur af baki, því að hann veit, að Rauður vill stundum ógjarnan stoppa eftir svona sprett. Hann er fljótur að ná í tauminn á Rauð og getur snúið hann að Grána. Sigríður rennir sér fimlega af baki og í fangið á Hermanni. Hann heldur annarri hendi í Rauð, en hinni sveiflar hann utan um Sigríði. Hún styður hönd- um á axlir Hermanns, um leið og hún segir: „Þakka þér kærlega fyrir daginn.“ Hún kyssir hann á kinnina, en snarast um leið úr fangi hans og hleypur heim að dyrum. Þar snýr hún sér við og veifar til hans bros- andi. Allt hefur þetta gerst í svo skjótri svipan, að Her- mann hefur ekki áttað sig. Hann finnur ennþá heitan koss Sigríðar á kinn sér. Hann er hissa á sjálfum sér að hafa sleppt henni úr faðmi sér, fyrst hún var þar komin. Nú hafði hún brotið ísinn og tjáð honum sitt innræti, því að þetta hafði hún við engan annan gert, það var hann viss um. Og nú hugsar hann sér að tala við hana í kvöld, nú sé rétta tækifærið, því að svona létta og glaða hefur hann ekki séð Sigríði, síðan móðir hennar dó. Hann sprettir af hestunixm og kemur þéim í haga. Síðan gengur hann létt- stígur heim. Þegar inn kemur, er fólkið sest að borðum. Hermann lítur yfir matsalinn, en sér ekki Sigríði. Nú kemur hún inn. Hermann lítur brosandi til hennar, en hann verður undrandi. Þarna var komin allt önnur manneskja en hann átti von á. Nú hafði hún klæðst sínum fyrra búningi. Öll gleði og kátína er horfin, en í staðinn kominn alvöru- þrunginn svipur. Þannig hafði hún verið, síðan móðir hennar andaðist. Það er sem kuldastraumur fari um Her- mann, þegar hann sér þessa breytingu. Og hann var mjög vonsvikinn þetta kvöld. ÓVÆNT BRÉF Meðan Hermann var í burtu þennan dag, hafa komið nokkur bréf til hans, þar á meðal bréf frá Noregi með kvenmannshendi. Hermanni er forvitni að sjá það bréf, því að hann á ekki von á bréfi frá Noregi. Hann opnar það og sér, að það er frá Elsu Nilsen. Honum verður að orði: „Hún er ekki af baki dottin ennþá.“ Bréfið er fullt af ástarjátningum og loforðum, sem hann á að hafa gefið henni. Og nú segir hún, að pabbi sinn ætli að senda sig til þess að sækja hann. Hann þarfnast svo mikillar hjálpar við búskapinn. Hann hefur svo mikið álit á þér, segir hún, enda mælir skólastjórinn eindregið með þér. Hermann er alveg undrandi yfir þessu. Hann hélt, að hann væri nú laus við þessa frekjudós, sem lét hann aldrei í friði, meðan hann dvaldist í skólanum. En hún var vön því, að fá allt, sem hún óskaði sér og lét víst fátt Heima er bezt 431

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.