Heima er bezt - 01.04.1978, Page 8

Heima er bezt - 01.04.1978, Page 8
Eltn Sigurðardóttir. Jóhannes Torfason. Torfalœk 2. Torfalœk 2. Ýmsum öðrum trúnaðarstörfum hefur Torfi gegnt fyrir sveit sína og skulu þau ekki upptalin hér. Hann er og framkvæmdastjóri fyrir byggingu Húnavalla- skóla sem sex og hálft sveitarfélög sýslunnar standa að. Auðheyrt er á Torfa að honum er þetta starf mjög hugleikið, þótt erilsamt og ábyrgðarmikið sé, þar sem hann sér um allar fjárreiður byggingafram- kvæmdanna sem staðið hafa svo að segja látlaust yfir frá árinu 1964, en mestar núna, og lokið verður við innan skamms ef allt fer að vonum. Árið 1944 (27. mai) kvæntist Torfi Ástríði Jó- hannesdóttur sem fæddist 23. maí árið 1921 að Gauksstöðum, Garði. Foreldrar hennar eru Jó- hannes Jónsson, útvegsbóndi að Melbæ í Leiru, sem þar var fæddur og uppalinn, og kona hans, Helga Þorsteinsdóttir, sem fæddist að Melbæ í Leiru en var alin upp á Meiðarstöðum í Garði. Þau eignuðust 14 böm og komust 12 þeirra upp. Ástríður er því sunn- lendingur og af ætt Snorra prests á Húsafelli sem margir rekja ætt sína til. Ástríður er hin myndarlegasta og glaðværasta kona. Hún er ein þeirra mörgu aðkomukvenna sem fór á Kvennaskólann á Blönduósi á sínum tíma og ílentist í Húnavatnssýslu. Hún segir mér að tvær aðrar systur hennar, sem einnig fóru á Kvennaskól- ann, hafi gifst húnvetningum. Ég skýt því að þeim hjónum að það gegni furðu að þeir húnvetningar skuli ekki geta fundið þessum ágæta skóla samastað í tilverunni, jafn þarfur og hann hafi reynst þeim á allan hátt. Torfi brosir bara að þessu og auðfundið er að Húnavallaskólinn á allan hug hans. Torfi og Ástríður eiga tvo syni, svo sem fram hefur komið. Hinn eldri er Jóhannes, háskólagenginn búfræð- ingur sem fann hvöt hjá sér að erja feðrajörð. Hann er fæddur 11. apríl 1945 og er kvæntur Elínu Sig- urðardóttur frá Isafirði. Þau eiga fjögur börn: Sig- urð, Torfa, Ástríði og Gunnar Þór. Ástríður fræðir mig á því að stúlka hafi ekki fæðst á Torfalæk í 80 ár fyrr en nafna hennar fæddist. Yngri sonurinn er Jón, hann er háskólagenginn eins og bróðir hans en býr nú með foreldrum sínum, eins og áður var sagt. Hann er fæddur 27. mars 1949. Engum ætti að blandast hugur um að húnvetnskri bændastétt er mikill styrkur að hafa háskólamennt- aða menn í sínum röðum. Torfi Jónsson er hinn vörpulegasti maður og hinn skörulegasti. Mér kom hann fyrir sjónir sem dæmi- gerður fulltrúi hins bjargálna, sjálfstæða bónda. Hann hefur ákveðnar skoðanir á mannlífsmálum og lætur þær óhikað í ljós. Að sjálfsögðu ræddum við landbúnaðarmálin og stöðu bóndans í nútíma þjóð- Jón Torfason, Torfalæk 1. Börn Jóhannesar og Elínar. F.v. Torfi, Sigurður, Gunnar Þór og Á striður. 116 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.