Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1978, Qupperneq 22

Heima er bezt - 01.04.1978, Qupperneq 22
íslensku fararstjórarnir Agnar Guðnason ogJón Bjarnason í Laxelfdalen í Nordkjosbotn. bóndi á Adamsklæðum einum og nýtur árdegissólar í draumum ungs manns (hann ber nafn eins af köppunum í Fomaldarsögum Norðurlanda). Árdegisverðar er svo neytt og vel veitt og hér hafa menn unað af ámiðnum undir skógarhlíð. Héðan frá Moen eru aðeins 35 kílómetrar til Finnes, en þar höfðum við við- komu á norðurleið. Land er hér lægra, fjöllin komin niður í 5—600 m. Og til Rossfjorden við Malangen eru rúmir 40 km! Á öllu þessu landsvæði, allt til næstu sveitar Bardu, virðist blómleg byggð, bændabýli mörg og gróðursæld. Á hægri hönd, vötn og vatnasvæði Más-árinnar, víðir dalir til austurs og byggð þétt, en umgerð um gróðurlandið háir, snjóþaktir tindar, sem óteljandi dalir liggja um, flestir þröngir og djúpir. Landið hækkar fljótt er í Bardu dalinn er komið, með Bardu-á á vinstri höndog fjallatinda á báðar hendur allt uppí 1490 m hæð (ístindur), og dal- urinn er næstum 20 km langur, en lækkar snögglega er við nálgumst all stóran bæ. Bílarnir aka þar að samkomuhúsi, þar sem ráðunautur Bardu sveitar, Roy Furuhovde, fræðir gesti. fbúar Bardu (Kommune) sveitar eða héraðs eru 4000, fyrir utan hermenn í stórri herstöð, sem er í héraðinu. Landsstærð 2.676 km2 og af því er 132 km2 vötn, en 35 km!ó ís og snjór. Hæsti fjalltoppur 1649 m. Þetta er ung sveit, í rauninni ekki fullmótuð fyrr en 1941. Fyrst hófst hér föst búseta árið 1791, er tvær fjölskyldur fluttu frá Röros til Bardu. Fólk fór svo að flytja hingað frá Suður-Noregi, /Josterdalen og Guðbrandsdal. Áður voru hér aðeins Samar með hreinhjarðir, en nú er aðeins ein Sama-fjölskylda eftir hér upp í fjöllunum. Héraðið hefur 115 km landamæralínu með Svíþjóð, og báðum megin hennar er þjóðgarður á stóru svæði; öll rándýr eru friðuð. Af þeim sökum er ákaflega erfitt með sauðfjárrækt hér, þó landið sé vel til þess fallið, og fjárskaðar miklir af þeirra völdum, eða um 10%. Helstu skaðvaldamir eru, jarfi, gaupa og refur. Þetta á stóran þátt í að búskapur er á hraðri niðurleið, 1959 voru hér 1.004 mjólkurkýr, nú 1977, aðeins 544. Sauðfjáreign var 1959 1.190 kindur, nú 843. Við Bardu- foss er stórt raforkuver. Fyrst voru sauðnaut flutt til Bardu, en þegar byggðin stækkaði og ferðamanna- straumur óx, voru þau flutt í Tromsö-hérað, en áður höfðu þau orðið mannsbani. Inni var þeim gefið á vetrum en rekin til fjalls á sumrin og smalað á haustin. Var það auðvelt, smalinn hafði mélfötu meðferðis, og er barið var í fötuna og kallað, komu þau og eltu mennina heim. Einn smalinn lét þó lífið af þeirra völdum. Hér skal staðar numið og haldið til Bardu Bygdetún, bændabýlisins Lundmo. Húsin eru byggð á árunum 1790 til 1810 og var búið í þeim til 1868. Álengdar stendur lítið bjálkahús, það er fyrsti barnaskólinn, sem reistur var í sveit í Noregi, af bændum þessa héraðs og sá einn bónd- inn um kennsluna. Húsið er lítið með anddyri, gæti hafa rúmað 20—30 nemendur, aðeins ein hæð með ryftu risi. Byggðasafnið er í byggingu, sem lýkur á þessu sumri. Þetta er fallegur bær, sem gefur glögga innsýn í líf og störf genginna feðra. Áður en enn lengra er haldið má geta þess, að Bardu hérað (kommune) er talið hjarta Tromsfylkis og eina hérað Norður-Noregs, sem ekki á land að sjó. Höfuð atvinnuvegír hafa verið jarðrækt, eða landbúnaður, og skógarnytjar. Stærsta veiðivatn Norður-Noregs, Alte-vatn, 80.9 m2 að stærð, ásamt þrem laxveiðiám: Sal- angs-ánni, Bardu-á og Skóg-á, liggja í héraðinu. Um veiðisæld er ekki vitað af þeim sem þetta ritar, en í Más— ánni, þótti gott að fá þrjá laxa á stöng á dag og veiði- dagur kostaði 200 krónur norskar. Frá Setermoen liggja vegir til fjögurra dala, Nerdalen, Sterdalen, Sordalen og Salangsdalen, sem allir eru skógivaxnir með bænda- býlum og smá þorpum beggja vegna dalsins. Skammt neðan Foss-bakken, smá þorps á vinstri hönd í mynni Spansdalen, sem liggur til versurs, er Lapphaugen við enda Salangsdalsins. Hér er dalurinn þröngur, aðeins fjallaskarð. Vestan skarðsins rís Spanstind 1456 m hár, ásamt fleiri fjöllum. En austan skarðsins rís Meklefiell, 390 m hátt, og og fleiri stór fjöll. Og hér í þessu fjallaskarði var orusta háð 12. apríl 1940. Á Lapphaugen er fagurt minnismerki um látinn herforingja Norðmanna, Karl C. Fleischer. (1883—1942) Við þetta minnismerki er dvalið, og það er norskur liðsforingi, Hrafn að nafni, sem segir í erindi frá aðdragandanum að orustunni hér, rekur síðan gang hennar. Hann var þá 23 ára gamall og var einn þeirra, sem börðust hér. Af þessu háa fjallaskarði er útsýn mjög fögur vestur Gratangen og allt til Bjerkvík, þar sem Þjóðverjar tóku land og lögðu á brattann hér upp í skarðið. Þá voru vegir hér lakir, samanborið við það sem nú er, aðeins malarbrautir huldar 2 metra snjólagi. Hrafn segir: „Fólk í hinum dreifðu byggðum Norður- Noregs var skelfingu lostið, eftir 139 ára frið. Urðu mæður að kveðja syni sína, sem lögðu af stað til að verja land sitt óvinaher og fóma lífi sínu fyrir föðurland sitt. Er Þjóð- verjar réðust á Noreg 9. apríl 1940, og að mestu óvænt, 130 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.