Heima er bezt - 01.04.1978, Page 24

Heima er bezt - 01.04.1978, Page 24
ÞORSTEINN BJÖRNSSON FRÁ MIKLABÆ „Mér eru fomu minnin kær, meir en sumt hið nýrra“ Eitt sinn þegar Magnús Gíslason fyrrverandi hreppstjóri á Frostastöðum kom í heimsókn til mín fyrir mörgum árum, rifjuðust upp fyrir mér gamlar minningar um fyrstu komu mina að Frostastöðum. Þetta er nú orðin 77 ára gömul endurminning eða u.þ.b. Um haustið 1899 í októbermánuði síðla, vorum við, Guðbrandur bróðir minn og ég látnir reka prestslömbin svokölluðu út í Flugumýrarsókn. Ég var 10 ára en hann 15 ára. Eg hugði víst gott til glóðarinnar að fá að reka fóðralömbin út í Flugumýrarsókn. Við lögðum á stað með lömbin úr málaverkum eða þegar við vorum búnir að borða morgunmatinn. Vorum vel útbúnir með nýja skó, nesti þurftum við ekki. En það man ég að síðast voru mér bundnar nýjar fótólar sem faðir minn átti. Ekki man ég alveg með vissu hvað lömbin voru mörg. Eitthvað á milli 10 og 20. Nær 20 höfðum við farið með lömbin í Akratorfubæina, sem mig minnir, en það var svo alvanalegt að koma í Torfuna að það er ekki eins fast í hugann bundið eins og hitt ferðalagið. Allt voru þetta fjallalömb, hvítar gimbrar homóttar. Allar sumargengnar af Krókárdal í Silfrastaðaafrétt. Þangað voru lömbin ætíð rekin eftir fráfærumar, því þar eru hagar miklir og kjamgóðir. Þótti þeim þar vel borgið sumarlangt. Sú ferðaáætlun var okkur gefin að við skyldum stansa í Réttarholti og hvergi á öðrum bæjum en gista á Frostastöðum. Ekki man ég annað en að okkur gengi sæmilega að reka lömbin yfir Dalsána, sem er þó nokkurt vatnsfall en það var ekki neitt farið að frjósa að henni því tíð var góð. Mig minnir að þennan dag væri sunnanátt hæg, aðeins andvari. Þegar við komum út á Dalsáreyrarnar kom maður á móti okkur. Þekktum við hann gjörla, var það Óli frá Djúpadal, bróðir Jóns á Þorleifsstöðum, einsýnum með svarta bót fyrir öðru auganu. Fór til Ameríku vorið næst a á eftir. Kom hingað upp snögga ferð 1930, og þekktum við þá aftur hvom annan eftir þrjátíu ár. Fór hann að athuga lömbin og ráðleggja okkur að láta ekki velja úr hjá okkur heldur vera ákveðnir á hvaða bæ hvert lamb skyldi fara, annars yrðu lélegustu lömbin eftir síðast. Fyrsta lambið sem við afhentum í fóður var á Syðstu-Grund. Annað varð eftir á Mið-Grund hjá Gunnlaugi bónda er þar bjó. Frá Mið-Grund héldum við út að Réttarholti. Varð ég mjög feginn að komast þangað af því að okkur var leyft að stansa þar. Hef líklega verið farinn að þreytast eftir gönguna. Þar afhentum við eitt lambið, en hin lömbin voru rekin á beit á bakkana fyrir ofan lækinn, og litið eftir þeim á meðan við stoppuðum. Þá bjó í Réttarholti, Rögnvaldur Björnsson sýslunefndarmaður. Hann leiddi okkur í baðstofu til Freyju konu sinnar. Fengum við þar hinar hlýlegustu og beztu viðtökur sem frekast orðið gat, því þetta var eitthvert almesta rausnarheimili sveitarinnar og áreiðanlega hvergi betra að koma. Var mér boðið sæti þar í svo mjúkum stól með fjaðrasetu, að í slíkt sæti hafði ég aldrei sezt fyrr. Atti víst hálf bágt með að sitja kyrr í honum. Þurfti að smá hreyfa mig til að finna sem bezt mýktina í fjöðrunum. Húsfreyja sýndi mér tvær dætur sínar, sem voru svo að segja á sama aldri og ég, Filipíu og Margréti. önnur, Filipía hálfu ári eldri, en Margrét hálfu ári yngri. Filipía dó vorið eftir. Atti augun svo engilhrein og skýr, hefir systir hennar sagt mér, að með fádæmum var. Hin dóttirin varð konan mín eftir tólf ár. Höfum við nú búið saman í ástúðlegu hjónabandi í 65 ár. Þama sá ég hana í fyrsta sinni. Eftir þessa ágætu hvíld og hlýlegu viðtökur í Réttarholti héldum við áfram ferð okkar með lömbin. Hafði Jón sonur þeirra hjóna í Réttarholti gætt þeirra á meðan við stönsuðum. Hann varð síðar bóndi í Réttarholti, dó ungur. Fórum við upp Hvammsáreyrar upp að Flugumýrarhvammi. Þar bjó Albert Jónsson. Skildum við þar eftir þrjú lömb, eitt að Hvammi, annað að Torfmýri, það þriðja sem átti að fara fram í Djúpadal. Frá Flugumýrarhvammi héldum við að Bjamastöðum, þar var tvíbýli. Á öðru búinu bjó Stefán Sigurgeirssson, fór til Ameríku þar skömmu á eftir. Vildi hann vera alveg Framhald á bls. 136 132 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.