Heima er bezt - 01.04.1978, Page 25

Heima er bezt - 01.04.1978, Page 25
Kveð ég mér til hugarhœgðar Gunnar Sigmar Sigurjónsson er fæddur 27. febrúar 1912 að Hólakoti á Reykjaströnd. Ólst upp hjá foreldrum sínum, þar og á Skefilsstöðum fram um tvítugsaldur. Stund- aði næstu árin byggingavinnu á ýmsum stöð- um. Flutti 1940 til Akureyrar og lauk námi 1 húsasmíði, og hefir starfað við þá iðn að mestu leyti síðan. í ORÐASTAÐ HALLANDS-MÖNGU. Motlo: Lét mig hanga Hallands-Manga herðadrangann viður sinn, fold réð banga flegðan langa fram á stranga húsganginn. Hjálmar Jónsson. Neinn ei ræður náttstað sínum nokkurs ganga beggja, er verð. Sinnt hafa fáir málstað mínum menn er ræða okkar ferð. Síðar þú mér sendir kveðju, sveið mér oft þitt húsgangsspjall við þinni hljóms og háttasveðju hlífðir engum, kvæðasnjall. Þröngur bænda þá var hagur þrotlaust strit hjá vinnulýð. Það var enginn búgarðsbragur á bænum Hallands í þann tíð. Úti á hjami ýmsir deyja. —Áþján dönsk og veður svöl.— Reyndi hver að þrauka og þreyja það var fárra kosta völ. Ég var hjú á bóndans búi bauðst mér fátt sem gladdi hug. Þótt nú enginn þessu trúi þá var helst að sýna dug. Bóndans orð á bænum gilda brást þér húsfreyjunnar stoð. Það var hefð og hjúaskylda húsbóndans að virða boð. Mér var skipað burt að bera af bænum hvítavoðunginn. Og hvað átti ég að gera annað: Kæri Hjálmar minn. Úr engu hafði eg voð að vefa að vefja um litla kroppinn þinn, og ekkert átti eg að gefa utan bara skrokkinn minn. Við hans hlýju und herðadranga hlaustu blund í friði og ró, meðan að eg mátti spranga millum bæja í hríð og snjó. Að Dálksstöðum leið nam leggja, ljúft var fagnað okkur tveim; það var happ og blessun beggja að barði ég að ranni þeim. Langa hefi eg götu gengið, glöp og sigra við ei tef. Og skeytið kalda frá þér fengið, fyrirgefið líka hef. STADDUR í BRATTAHLÍÐ Á GRÆNLANDI. Gleðja gests auga gull og perlur, dregnar á band blárrar ránar. Stiklar góðfiski grunn og elfur. Sindra í sólskini sögustaðir. Skrýðast skrautgrýtt fjöll skrúða grænum þars víðir og björk blíðmál hjala, en eyrarrós hylur holt og aura og bláklukka blessuð í bolla hverjum. Skyrpir upplandsís jökuljöxlum um kalda kverk Korok fjarðar. En Eiríksáll ylríkur bræðir breðafley í bláum faðmi. Heima er bezt 133

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.