Alþýðublaðið - 26.03.1923, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 26.03.1923, Blaðsíða 1
IQ23 Mánudaginn 26. marz. 69. tölubia?. Hép með tilkynnist vinum og vandamðnnum, að Aðaílieiðnp Ragna Karlsdóttir, Lindargótu 21, and- aðist 15. þ. m- á Landakotsspítala. Jajrðarförin fér fram 27. þ. m. kl. 11 f. h. frá spítalanum. Aðstandendur. © Fuiltrúaráðsfundnr í kvðM. Fyrir Alþingi liggur nú 3>frum- varp til laga um heimild íyrir íandsstjórnina tií að ve'ta ýms hlunnindi fyrirhuguðum nýjum banka í Reykjavíkí. Er þetta norski bankinn svo kailaði, sem áður befir verið minst á hér í blaðinu. Flutningsmenn eru úr ýmsum flokkuiu, þar á meðal þingmsð.ur Reykvíkingá, Jakob Möller. Frumvaip þetta er svo varhugavert, að brýn þörf er á að ræð » opinberlega um,, hvað hér er að gerast. Farið er fram á, að ráðuneyt- inu heimilist að veita fyrirhug- uðu hlutafélagi, sem þeir Eggert bóndi í Laugardælum, Gunnar konsúll Olafsson í Ve'stmanna- eyjum, Morten kaupmaður Otte- sen í Reykjavík, Sigurður hæsta- réttarmálaflutoingsmaðurSigurðs- son í Reykjavík og Þórður kaupmaður Sveinsson í Reykja- vík eru nú í framkvæmdarnefnd fyrir, hlunnindi handa banka, er télagið ætlar að stofna í Reykj.- vík. Er það þegar athugavert, að hlutafélag þetta er alls eklci til, heldur að e;ns fyrirhugað, og mennirnir, sem skípa framkvæmd- arnefndina nú, er gert ráð fyrir að muni má ske ekki skipa hana framvegis. Er hér bein leið opin fyrir þe&sa menn tii að verzla með hlunnindi þau, sem þeir fara fram á að landið veiti þeim, og selja hæstbjóðauda, — sams konar fyrirbrigði í íslenzku fjár- málalífi og þingsögunni eins og saltvinslusérleyfi Páls Toi fasonar og járnsaudsvinslusérleyfi Þ har- ins Guðmundssonar, sem boðin hafa verið út um öll lönd til lít- ils sóma fyiir íslendinga. í grein- argerð frumvarpsins er reyndar getið um, að unnið hafi verið að undirbúngi hlutaíjársöfnunar og undirtektir reynst svo góðar, >að fuil ástæða er til að ætla, að nægiiegt fó fáist«, en ekkert er þar getið um nein ákveðin hluta- Ioforð, og bendir þetta á, að verzla eigi með sérleyfið sjálft til hagsmuna fyrir þá, sem útvegá það. Menn skyldu nú halda, aðhluta- bankar einstaklinga eins og sá, sem hér er ráðgerður, gætu verið starfræktir hér á landi eins og erlendis án sérstakra hlunn- inda fram yfir önnur tyrirtæki einstaklinga. Banki er eins gróða- vænlegt fyiirtæki eins og hvað annað og gagnið, sem af honum flýtur fyrir landsmenn, er ekki meira en af hverju framleiðslu- fyrirtæki einstaklinga með sama höfuðstól, t. d. togarafélagi. Framkvæmdarnefnd þessa fyrír- hugaða banka álftur þó, áð íslendingar muni vilja kaupa stofnun hans ekki litlu verði, og ter því fram á víðtæk og márg- vísleg hlunnindi. Hin helztu og varhugaverðustu eru þessi: 1. Réttur bankanum til hánda til að relca sparisjóðsti'órf gegn því að hafa ætfð í auðseldum verðbréfum senf svarar 10°/Q af sparisjóðsfénu til tryggingar. Samkvæmt núgildandi lögum mega engir að undánskildum spárisjóðum reka sparisjóðsstörf, neina sérstök iög komi til. ís- landsbanki hefir jafnvel engan formlegan rétt til sparisjóðsrekst- urs, heldur að eins til að hafa Munlán<. Landsbankinn hefir rétt Málverkasjning Ásgríans Jónssonar er daglega opin fná kl. 11 — 5. Yerkakvennafélagið „Framsákn:1 Fundur á venjulegum stað (Iðnó uppi) þriðjud. 27. þ. m. — Mjög ádðandi mál á dagskrá. — Konur beðnar að fjölmenna. — Stjórniw. Pantið Kvenhatarann í síma 200 eða 1269. (Nýútkomið). til að reka sparisjóðsviðskifti, en gegn því að hafa sem tryggingu 20 °/0 af sparisjóðsfénu í ríkis- skuldabréfum eða því um UJcu, og þó verður að sJcoðast svo, sem rilcissjóður ábyrgist Landsbankann og sparisjóðsfé Jians. Þessi nýi útlendi banki ætti eftir frum- varptnu að fá réttindi til spari- sjóðsfjárvörz’.u, sem hver þjóð ter mjög varlega í að veita inn- lendum bönkum, með margfalt minni tryggingu á bak við fyrir sparisjóðsfjáreigendur Jieldur en sjálfur þjóðbankinn verður að hafa. (Frh.) Héðinn Yáldmamon.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.