Heima er bezt - 01.03.1982, Page 4

Heima er bezt - 01.03.1982, Page 4
„ Metnað hef ég, já. Ég vö ekki leggja nafn mitt við neitt annað en það sem vel er gert“ Forsíðu viðtalið Sigríður G. Schiöth organisti á Húsavík Ég stóð mina plikt GUÐBRANDUR MAGNÚSSON skráði „Ég veit ekki hvernig hefði farið fyrir mér, ef ég hefði ekki haft tónlistina við að glíma allt mitt líf, því hún er helm- ingurinn af mér, ef ekki meira.“ Sigríður Guðmundsdóttir heitir hún, sem þessi orð segir. Hún varð Schiöth þegar hún giftist Helga Schiöth frá Akureyri. Hún er fædd 3. febrúar 1914 að Lómatjörn í Höfðahverfi við Eyjafjörð, tíunda barn foreldra sinna, þeirra Valgerðar Jóhannesdóttur og Guðmundar Sæ- mundssonar. „Ég fæddist og ólst upp í baðstofu, eins og títt var á þeim árum, til tólf ára aldurs. Foreldrar mínir fluttust í Lóma- tjörn vorið 1903, höfðu áður átt heima á Grenivík, þar sem faðir minn hafði byggt hús, fengið hluta úr landi Greni- víkur og nefnt það „Hlaði“. Þar bjuggu þau í átta ár og eignuðust fjögur börn. Á Grenivík hafði afkoman mest byggst á sjósókn, en faðir minn átti um tíma tvo stóra árabáta, sem róið var til fiskjar. Um það leyti voru vél- bátarnir að koma til sögunnar og faðir minn treystist ekki til að leggja í þann kostnað, að kaupa vélbát, svo hann seldi Hlaði og flutti í Lómatjörn. Mun það hafa verið mikið vegna móður minnar, sem alltaf var hrædd um pabba á sjónum og einnig var hún hrædd um litlu börnin sín fyrir sjónum. Þó fór hann einstöku sinnum í róður með mönnum á Grenivík, til að fá fisk til heimilisins. Á Lómatjörn eignuðust foreldrar mínir sjö börn til við- bótar, svo mannmargt var alla tíð heima. Þau höfðu alltaf 7 6 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.