Heima er bezt - 01.03.1982, Side 8

Heima er bezt - 01.03.1982, Side 8
Hafnarstræti23. Heimili tengdaforeldra Sigríðar á Akureyri. annað um að ræða en að fara í vist. Ég var lengi á báðum áttum um hvort ég ætti að gera það, en góð vinkona mín sagði þá við mig: „Blessuð vertu, þú skalt bara drífa þig, maður lærir svo margt í góðum húsum, það er alveg eins og vera á skóla.“ Ég fór svo og var í vist hjá Schiöth-fólkinu í Hafnarstræti 23. Þá var ekki margt fólk í heimili og ég átti öll kvöld frí og gat því verið í báðum kórunum eins og áður sagði. Ég lærði þarna heilmargt til húshalds og matargerð- ar, sem sumt var mjög frábrugðið því sem þá tíðkaðist í sveitum.“ „Nú þekkist það ekki lengur að vinnukonur starfi á heimilum, ekki að neinu ráði að minnsta kosti. Getur þú ekki sagt mér eitthvað meira af starfi þínu?“ „Venjulegast voru heimilin mannfleiri en nú tíðkast og því meira að gera. Það var rafmagn, en fá rafmagnstæki, aðallega var rafmagnið notað til ljósa. í Schiöths-húsinu var kolavél sem var kveikt upp í á morgnana og svo var látið deyja í henni eftir hádegið. Þegar ég byrjaði að vinna þarna spurði ég hvenær ég ætti að fara á fætur og mér þótti það nokkuð snemmt þegar mér var sagt, að ég ætti að vera komin á fætur um sjöleytið. Á þessu heimili var gömul kona sem vann ákaflega mikið að ýmsum heimilisstörfum. Hún var dóttir fyrsta barna- skólastjórans á Akureyri, Jóhannesar Halldórssonar, hann var guðfræðingur en tók aldrei vígslu. Konan var nefnd Margrét Halldórssen, hún var vel menntuð, hafði verið í lýðháskólanum í Askov í Danmörku. En síðan geðbilaðist hún, það var allt saman mjög sorglegt. Hún var á þremur sjúkrahúsum úti í Danmörku og kom síðast heim í fylgd hjúkrunarkonu. Þessi sjúkrahúsvist varð ákaflega dýr og varð að selja hálfa jörð sem hún átti vestur í Skagafirði fyrir kostnaðinum. Margrét var í vist hjá nokkrum heimilum eftir að hún kom heim og um það leyti sem Helgi, maður- inn minn, var nýfæddur voru Axel og Margrét, tengdafor- eldrar mínir, beðin fyrir hana sem þau og gerðu. Konan var mjög elsk að barninu og vildi helst hvergi vera nema hjá því. Húsið, Hafnarstræti 23, er stórt hús og mikið að hirða, en Margrét sá algjörlega um allar hreingerningar, einnig um saumaskap og viðgerðir á fötum. Ég var aftur á móti nær eingöngu við eldhúsverkin, sá um alla matseld og matargerð, því móðir Helga var alla daga við vinnu upp í Lystigarði þegar voraði og öll sumur. Helgi var á svipuðum aldri og ég og felldum við hugi saman. Giftum við okkur árið 1941. Áður hafði ég farið á kvennaskóla á ísafirði, kom svo til baka og var á Akureyri í um eitt ár, þar á eftir var ég aðstoðarráðskona í Kristnesi. Þá fór ég suður til Reykjavíkur, þar var Róbert vinur minn og kennari og hann dreif mig í að syngja tvisvar í útvarpið. Þá var ekki um það að ræða að syngja inn á segulband, heldur varð að útvarpa því beint. Þetta var að sjálfsögðu mikil stund. Páll ísólfsson var þá alls ráðandi i tónlistarmálum útvarpsins og hann þurfti að prófa mig áður. Þetta stúss var allt mjög skemmtilegt. Dálítið gerði ég að því, að syngja á skemmt- unum í Reykjavík þennan vetrarpart og fékk svolitla aura fyrir. Þegar Reykjavíkurdvölinni var lokið dreif ég mig aftur norður og við Helgi giftum okkur 9. apríl 1941. Fyrst í stað vorum við hjá tengdaforeldrum mínum í Hafnarstræti 23, 80 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.