Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 9
/ ,,Lénharði fógeta“ 1945. Mótleikari Sigríðar er Jón Norðfjörð. en fluttum síðan upp í Litlu-Hlíð sem er fyrir ofan Akur- eyri. Helgi hafði fengið þá bakteríu í vöggugjöf að hafa áhuga á búskap, vildi eiga og umgangast skepnur. Hann keypti Litlu-Hlíð af pabba sínum, túnið og þær skepnur sem þar voru. Tengdapabbi hafði haft þarna heilmikinn búskap, bæði með kýr, hesta og hænsni. Hann rak bak- arí og notaði afurðir þessa bús í brauðgerðina. Þarna upp- frá settumst við sem sagt að en þar hafði ég ekkert hljóðfæri og því fór mér aftur um tíma. í Litlu-Hlíð bjuggum við í þrjú eða fjögur ár og á þeim árum fór ég að leika með Leikfélagi Akureyrar; í Gullna hliðinu, Skálholti og Lén- harði fógeta. Frá Litlu-Hlíð fluttum við okkur niður í Búðargilið, áttum efsta húsið í gilinu, en seldum helming- inn af túninu. Þar vorum við í um tvö ár, eða þangað til við fluttum fram í Hólshús í Hrafnagilshreppi. Helgi vann í lögreglunni á Akureyri, líkaði illa og vildi komast burtu. Hann var alltaf að tala um það, að við skildum fara að búa út í sveit. Ég var heldur á móti því, hélt að þá yrði ég út úr allri leiklist og tónlistarlífi. Þegar Hólshús voru auglýst slógum við til, ég hélt nú reyndar að hann myndi guggna á þessu, en hann var þaulsætinn.... Þú heyrir þetta Helgi minn,“ kallar Sigríður til manns síns. Jú, Helgi heyrir. „Eftir að ég kom fram í Eyjafjörð fékk ég hljóðfæri og yarð organisti í þremur kirkjum og fór að æfa kóra og fleira sem ég hafði áhuga á. Þarna eins og víðar vantaði organista og núna er þetta orðið enn alvarlegra. Unga fólkið í sveit- unum virðist ekki hafa neina rænu á því að læra að spila svo hægt sé að hafa einhverja tónlist í kirkjunum. Þarna fremra var ég líka í leiklist, þannig að þú sérð að það var við nóg að vera. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að leika og hef enn í dag. Þegar okkar eini sonur, Reynir, komst upp, giftist hann Þuríði Thorlacius, flutti til Akureyrar og vann þar í verslun. Helgi vildi að hann flytti frameftir og kæmi til liðs við I ,,Skrúðsbóndanum“ 1966. búskapinn og buðum við honum því hálfa jörðina ef hann vildi koma og búa með okkur. Það varð úr og býr hann nú á Hólshúsum. Yngsta dóttir okkar, Valgerður, býr einnig í Eyjafirði, á Rifkelsstöðum, gift Gunnari Jónassyni. Þegar hún var í Menntaskólanum flutti ég til Akureyrar og vann fyrir henni, mér fannst ónauðsynlegt að ég og tengdadóttir mín þyrftum báðar að vera í sama eldhúsinu á Hólshúsum. Þriðja barn okkar, Margrét Anna, býr hér á Húsavík, gift Árna Sigurðssyni. Eftir þetta var ég í Reykjavík við kennslu, kenndi börnum tónmennt í fjóra vetur, kom heim á sumrin og um hátíðir. Á hverju ári, nú hin síðari ár, hef ég farið á námskeið á vegum kirkjunnar í kirkjutónlist, en þessi námskeið hafa oftast verið haldin í Skálholti og einu sinni á Akureyri.“ „Hvers vegna þessi áhugi á kirkjutónlist, fremur annarri tónlist?" „Jú, sjáðu til. Þegar ég kom í Eyjafjörðinn var svo mikil þörf og það hefur sennilega orðið til þess að ég einbeitti mér að þessu. Til þess að vera góður kirkjuorganisti er ekki nóg að geta spilað skammlaust á orgel, maður þarf að vera klár á messuforminu og mörgum reglum, sem kirkjugestir verða aldrei varir við, þeir halda flestir að þetta komi af sjálfu sér. En þarna má engu skeika ef ekki á illa að fara.“ „Hvað kom til, að þú fórst til Húsavíkur?“ „Það var auglýst eftir organista þar og fyrst í stað fannst mér fráleitt að huga að þessu. Síðan kom svolítið upp á, sem varð til þess að ég fór inn á Akureyri og hringdi í Ingvar bóksala og spurði hann hvort búið væri að ráða í starfið. „Það á að gera það klukkan sex í dag,“ sagði Ingvar. „Ef þú ert að hugsa um að sækja um, þá skalt þú senda símskeyti núna strax.“ Ég gerði það og fékk starfið. Fyrsta veturinn minn á Húsavík var ég ein, en Helgi kom annað slagið og var hjá mér. Það varð síðan úr, að við seldum Reyni syni okkar Hólshús, nema hvað við eigum þar enn Heima er bezl 81

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.