Heima er bezt - 01.03.1982, Page 10

Heima er bezt - 01.03.1982, Page 10
íbúðarhús og Helgi flutti einnig til Húsavíkur og fór að starfa hjá Kaupfélagi Þingeyinga. Hér á Húsavik er margt gott söngfólk og gömul sönghefð, fólkið er einstaklega jákvætt og duglegt. Strax og ég var komin var farið að æfa fyrir aðventukvöld og mér þótti þetta alveg stórkostlega gaman, nú var ég loksins komin á rétta hillu. Síðan hefur þetta gengið mjög vel og kórinn hefur fengið lofsamleg ummæli. Samhliða kórnum kenndi ég við Tónlistarskólann, var reyndar fyrst og fremst ráðin til þess. Nú í haust hætti ég kennslunni og hef bara kórinn. Mér þykir lítið við að vera þessa dagana, en það er þó gott að geta tekið lífinu í ró og næði þegar ég er orðin svona fullorðin. Eitt sinn á héraðsfundi Eyjafjarðarprófastsdæmis, átti að byrja á messu og ég var búin að undirbúa mig mjög vel, bæta við kórinn og æfa hann betur en venja var til. Nokkrum mínútum áður en messan átti að byrja birtist Róbert Abraham, minn gamli góði vinur og kennari, en þá var hann orðinn söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar. Ég varð dauðskelkuð, að þurfa að bera á borð fyrir hann mína tónlist, sem ég áleit ekki nógu góða og var með hálfgerða minnimáttarkennd. Eftir messuna kom hann til mín og sagði við mig: „Mér datt ekki í hug að þetta væri svona gott hjá þér.“ Það var mér nokkur uppreisn. Það hefur alltaf Sigríður Guðmundsdóttir, Robert Abraham Viðfangsefni: 1. Haendel (1685—1759) .... Aria úr ,yiessias“ 2. Gluck (1714—1787) ......... Aria úr „Orpheus“ 3. Mozart (1756—1791) ..... Canzona úr „Brúðkaup Figaros“ 4. Mozart .................... Fantasia c-moll 5. Tvö þýzk þjóðlög ......... Raddsett af Brahms 6. Páll ísólfsson ........... „í dag skein sól“ 7. Árni Thorsteinsson ....... „Þess bera menn sár“ 8. Mendelssohn (1809—1847) .. Sorgargöngulag 9. Brahms (1833—1897) ....... Staendchen, Féldeinsarrikeit. 10. Wolf (1860—1903) ....... Der Tambour, Das verlassene Maegdlein. 11. Schubert (1797—1828) .... Fischerweise, Die Post, Wandrers Nachtlied. Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar. 1940. Prógrammið. Það varðveitir Sigríður sem dýrgripur vceri. í hlutverki Þórdísar í Hlíð. Maður og kona var sýnt í Laugarborg 1959. 82 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.