Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 11
verið þannig, að það sem ég hef tekið að mér, hef ég gert eftir bestu samvisku. Ég gæti varla risið undir því að gera alvarlega skyssu í guðshúsi, ég ber það mikla virðingu fyrir athöfninni.“ „Þú hefur mikinn metnað....“ „Metnað hef ég, já. Ég vil ekki leggja nafn mitt við neitt annað en það sem vel er gert. Það er nokkuð ríkt í okkur systkinunum að vera trú yfir því sem okkur er falið og gera það vel.“ „Nú er svo komið að varla sést nokkur kirkjugestur syngja í messu, aðeins kórinn syngur. Er þetta ekki miður?“ „Það eru rök bæði með og móti þessu. Það er mikið um þetta rætt og alltaf verið að reyna að fá fólkið til að syngja. Sum lög eru ágætlega til þess fallin, þau sem eru á milli- tónum, en stór hluti af kirkjutónlistinni er þannig að það er ekki viðlit að almenningur geti sungið hana alla. Það er ekki nema fyrir afbragðs góða söngvara að syngja slík lög. Ég hef prófað stundum að láta kórinn syngja einraddað, og það hefur þau áhrif að kirkjugestir taka frekar undir.“ Afskipti Sigríðar af tónlistarmálum hafa skilið víða eftir sig spor, bæði i Eyjafirði og Húsavík. Eitt sinn starfaði hún einnig að sérstöku verkefni í Húnavatnssýslum. „Árið 1974, þjóðhátíðarárið, voru öll héruð með sínar sérhátíðir eins og mönnum er kunnugt. Um veturinn var haft samband við mig úr Húnavatnssýslum og ég beðin að æfa kóra, sem áttu að syngja um sumarið. Ég þeyttist um Fjölskyldan. F. v. Reynir, Helgi, Valgerður, Sigríður og Margrét. tvær sýslur, þverar og endilangar, til að æfa kirkjukórana, sömu lögin hjá öllum kórunum. Að lokum var æfing, þar sem allir kórarnir komu saman á Blönduósi í páskavikunni. Einnig tók ég að mér að æfa þjóðdansa og því varð þetta heilmikil vinna, sem fór hálf illa með mig, því ég fékk snert af astma. Um sumarið, vikuna fyrir þjóðhátíðina, var ég orðin svo aum, að ég lá fyrir alla daga, en hafði æfingar á kvöldin. 8. júlí þegar þjóðhátíð Húnvetninga var lokið, fór ég aftur heim í Eyjafjörð aðframkomin. Morguninn eftir var ég lögð inn á sjúkrahúsið á Akureyri, en mér tókst þó að ljúka mínu verkefni, ég stóð mína plikt. Mér hefur fallið vel við fólkið hér á Húsavík og til gam- ans ætla ég að segja eina skemmtisögu frá mínum fyrstu dögum hér. Þegar fyrsta söngæfingin hófst hér í kirkjunni, er ég var nýkomin, var ég búin að heilsa söngfólkinu og eitthvað var búið að syngja. Þá kemur vasklegur maður inn á söng- loftið, heilsar mér og hélt ég að þar væri einn síðbúinn söngmaður, spyr hann því, hvort hann syngi tenor eða bassa. Svarar hann að bragði, að hann sé nú aðalein- söngvarinn í þessu húsi. Rak þá fólkið allt upp skellihlátur, því þetta var þá blessaður sóknarpresturinn, sr. Björn H. Jónsson, sem ég þekkti ekki í sjón. Hefur okkar samstarf verið með ágætum þessi ár, sem ég hef verið hér. Fólkið í Eyjafirðinum var mér líka mjög gott, hélt mér heiðurssamsæti á sextugsafmæli mínu og gaf mér dýrar og Myndin er tekin rétt fyrir 1960.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.