Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1990, Qupperneq 5

Heima er bezt - 01.09.1990, Qupperneq 5
að örmagnast á Vestfjarðamiðum. Það er rétt að töluvert veiddist, - en bara í örfáar vikur. Svo byrjaði harkið aftur. Engar fréttir hafa birst um það að sjómenn væru að ör- magnast úr leiðindum vegna aðgerðaleysis. En svona er nú sjómennskan. Ætt, uppruni, skólaganga Ég spyr Kristján um ættir og uppruna. Hann hrósar happi yfir því að ættarmót var haldið á liðnu sumri, þar sem hann fékk gleggri upplýsingar um ættir sínar en hann hafði aflað sér fram að því. Ég er fæddur 17. ágúst 1955 í Reykjavík. Ættir á ég þó ekki þar, hvorki móður- né föðurætt. Faðir minn heitir Helgi Veturliðason. Hann ólst upp á Hesteyri við Isa- fjarðardjúp. Þegar hann var tólf ára gamall missti hann föður sinn. Eftir það þurfti hann að sjá um sig sjálfur, mikið til. Svona var þetta oft áður fyrr. Veruleg hnignunarmerki voru þá komin á byggðina í Jökulfjörðum og þess ekki langt að bíða að hún legðist af. Þarna veit ég þó að bjó kjarngott fólk, sem vildi þrauka í sinni heimasveit. Pabbi hefur sagt mér ýmsar sögur af því. Hann þurfti að hafa mikið fyrir lífinu í þá daga. Þó sá hann ekkert eftir því síðar og ég held að hann hafi viljað láta mann hafa nokk- uð fyrir lífinu. Það myndi herða á unglingsárunum að verða að standa á eigin fótum og taka ákvarðanir. Það getur líka verið að það erfist, að vilja vinna mikið. Ég byrjaði snemma að vinna og verð alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Mér leiðist ef ekkert er að gera. Móðir mín heitir Anna Kristjánsdóttir. Hún er fædd í Ólafsfirði og ólst þar upp þar sem faðir hennar var bak- ari. Hann hafði búið hér í Skagafirði í nokkur ár þar Kristján ásamt foreldrum sínum, Ónnu Kristjánsdóttur og Helga Veturliðasyni. Kristján í brúnni, einn á skipstjóravakt. sem hann lærði bakaraiðnina hjá Snæbirni bakara á Sauð- árkróki. Lengra aftur á ég ættir hér í Skagafirði. Langa- langafi minn hét Jón Guðmundsson, öðru nafni ,,Jón brennir". því að hann bjó í Brennigerði. Hann var lengi hreppstjóri hér, bóndi og útgerðarmaður. Hann lét mikið að sér kveða á fleiri sviðum, t.d. í verslun en hann var m.a. einn af stofnendum Kaupfélags Skagfirðinga. Það er skrýtin tilviljun að ég skyldi setjast að á slóðum þessa forföður míns hér á Sauðárkróki. Skólagangan var eins og hjá öðrum, stundum lært og stundum ekki. Fótbolti og handbolti voru miklu meira spennandi heldur en ferkantaðar námsbækurnar, enda þótt einkunnir væru fyrst og fremst gefnar fyrir bóklegu fögin. Fyrst eftir að ég tók til við handboltann var það eftir nær vetrarlanga þjálfun að þjálfarinn tók sig til og hundskammaði okkur. Aðeins einn maður hefði tekið framförum allan veturinn, en það hefði verið ég vegna þess að ég hefði lært að grípa boltann. Það var semsagt ekki úr háum söðli að detta. Það vantaði þó ekki áhugann og metnaðinn og mér var farið að ganga sæmilega í hand- boltanum þegar ég hætti vegna sjómennskunnar. Það var hins vegar ekki fyrr en í Stýrimannaskólanum sem ég hafði virkilegan áhuga fyrir náminu. Sveitadvöl í Eyjafirði Á sumrin var ég í sveit norður í Eyjafirði, nánar tiltekið á Kambi í Öngulsstaðahreppi. Þangað fór ég fyrst á sjö- unda árinu og var fram yfir fermingu. Á Kambi bjó ákaf- lega gott fólk, Guðmundur Jóhannsson og Helga Sigurð- ardóttir ásamt fósturdótturinni Sólveigu. Þau voru fjöl- skylda mín á sumrin. Sérstakt við aðstæðurnar var það, að á Kambi var búið í torfbæ. Eftir á finnst mér mikið til um að hafa átt heima í slíkum bústað, þótt ég kynntist því ekki yfir veturinn. í gamla bænum var alltaf hlýlegt og snyrtilegt þótt auðvitað væri miklu erfiðara að halda Heimaerbezt 273

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.