Heima er bezt - 01.09.1990, Qupperneq 14
Tvö ungmennafélög voru þá í
hreppnum, ,,Bifröst“, sem náði yfir
Grenivík, Kljáströnd og Höfðann,
en í þá daga bjó fjöldi fólks á
Kljáströnd, þar sem nú er allt í eyði.
Hitt félagið var ,,Dagsbrún“, sem
var bindindisfélag og voru meðlimir
þess einkum í syðri hluta hreppsins.
Leikritin voru ,,Grái frakkinn“,
sem var þýtt úr erlendu máli og voru
leikendur þar úr ,,Bifröst“, hitt leik-
ritið var ,,Happið“, eftir Pál Árdal
sem var leikið af meðlimum ,,Dags-
brúnar“.
Mikið var talað um þetta í sveitinni
og voru leikendur og aðstoðarfólk
frá flestum bæjum. Sigfús Hallgríms-
son frá Varðgjá var þá á Grýtubakka
og var hann fenginn til að leiðbeina
þeim, sem léku í Happinu, en Pétur
Einarsson kennari mun hafa leið-
beint þeim, sem léku í Gráa frakkan-
um. Margt ungt fólk var þá í Höfða-
hverfi, heimilin stór og nægilegt úr-
val af Ieikendum. Sigurður Ringsted,
útvegsbóndi á Kljáströnd, var feng-
inn til að leika Hall bónda í Happinu.
Gerði hann það afburða vel, var
hann af öllum í sveitinni talinn fædd-
ur leikari. Frá Jarlsstöðum voru þeir
bræður Sigurbjörn og Sigurður
Benediktssynir, frá Grýtubakka voru
Sigfús Hallgrímsson frá Varðgjá, leið-
beinandi í ,,Happinu“.
Sigurður Ringsted, útvegsbóndi Sigtún-
um, Kljáströnd.
þær systur Helga og Margrét Bjarna-
dætur, frá Miðgerði var Soffía Kristj-
ánsdóttir og frá Lómatjörn var Jó-
hanna Guðmundsdóttir. Þetta voru
leikarar í Happinu.
Fleiri leikendur voru í Gráa frakk-
anum. Þar var aðalstjarnan Gunn-
hildur Árnadóttir, prests í Grenivík,
sem lék unga ekkju. Hún var mjög
fínt klædd, bráðfalleg og flykktust
biðlarnir utan um hana. Eg var gjör-
samlega heilluð af að hlusta og horfa
á hana, hún lék og söng áreiðanlega
mjög vel. Matthildur Stefánsdóttir
frá Miðgörðum og Ingibjörg Jóns-
dóttir frá Hóli léku stofuþernur
ljómandi fallega og Hermann Stef-
ánsson, fallegur maður frá Miðgörð-
um, síðar íþróttakennari, lék fátæka
unga manninn, sem var svo ástfang-
inn af fallegu ekkjunni. Kristinn
Jónsson frá Hjalla lék ,,skurkinn“.
Man eg nú ekki Iengur nöfn á öðrum
leikendum, en þeir voru mikið fleiri.
Þessi tvö leikrit voru sett upp í
stóru fiskihúsi á Kljáströnd, en þá
var þar mikil útgerð og fjöldi fólks
búsett, eins og áður var frá sagt.
Leiksvið var sett upp í öðrum enda
hússins og þótti þetta hið ákjósanleg-
asta leikhús. Á þessum árum sat
læknir héraðsins á Kljáströnd, Árni
Helgason að nafni. Kona hans,
Hrefna, átti forláta píanó. Var það
borið út í leikhúsið og lék hún undir
söngvana, sem voru í þessum tveim
leikritum, en þeir voru býsna margir.
Fólkið lærði þessa skemmtilegu
söngva og voru þeir óspart sungnir
Gunnhildur Árnadóttir, prests í Grenivík.
Stjarnan í,,Gráa frakkanum“.
á heimilunum. Man eg enn nokkur
brot úr Gráa frakkanum, en þýðing-
ar munu hafa þótt lélegar, að dómi
margra, en fallega ekkjan söng: -
- Aðeins eg hræðist, að ástin
hún læðist
í alla karlmenn, vari þeir sig.
Allir þeir lifna og ætla að rifna
ef að þeir bara líta á mig.
Kristinn frá Hjalla, sem lék vonda
manninn í Gráa frakkanum söng:
Þótt sérhver kelling slúðri
og sögur beri um mig.
Þótt gjalli í lygalúðri,
eg labba sama stig.
Þær mega hrekja og hrjá mig,
en hvernig þá eg spyr:
Þær bæta engu á mig,
sem ei menn vissu fyr.
282 Heima er bezt