Æskan

Årgang

Æskan - 01.05.1932, Side 1

Æskan - 01.05.1932, Side 1
Mynd þessi er af börnum á Eskifirði. Þau léku í vetur opinberlega leikritið »Ása«, er »Æskan« flutti lesendum sínum um jólin. Myndin er tekin af börnunum í leikbúningunum, og eru þeir fallegir og börnin efnileg, eins og myndin ber með sér. í sambandi við leiksýningu þessa var »Æskunni« skrifað frá Eskifirði það, sem hér fer á eftir: »Barnaskólinn efndi til skemmtunar í vetur, í því sliyni að koma á fót bókasafni í skólanum, til afnota fyrir börnin, og er til þess ætlast, að börnin afli safninu tekna, á þann hátt að halda opinbera skemmtun á hverjum vetri, sem þau annast sjálf. — Þessi fyrsta skemmtun tókst vel. Það var sungið og dansaðir víkivakar, en leikurinn var þó bezta »númerið« á skemmtiskránni. Álfarnir voru prýði'ega búnir, og var þó ekki miklu til kostað. Leikendur eru einum færri en leikurinn segir til, vegna þess, að stúlkan, sem lék húsfreyju, lék einnig eina álfameyna. — Við þyrftum að eiga fleiri slíka leiki, til þess að sýna við svipuð tækifæri. — »Æskan« vill bæta því við, að hún hefir fengið fregnir af þvi, að leikur þessi hefir víðar verið leikinn af börnum opinberlega, við góðan orðstir, t. d. i Hafnarfirði, og er gott til þess að vita. »Æskan« vildi geta flutt sem mest af lesefni, sem getur verið börnunum bæði til gagns og gleði.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.