Æskan - 01.05.1932, Síða 1
Mynd þessi er af börnum á Eskifirði. Þau léku í
vetur opinberlega leikritið »Ása«, er »Æskan« flutti
lesendum sínum um jólin. Myndin er tekin af
börnunum í leikbúningunum, og eru þeir fallegir
og börnin efnileg, eins og myndin ber með sér. í
sambandi við leiksýningu þessa var »Æskunni«
skrifað frá Eskifirði það, sem hér fer á eftir:
»Barnaskólinn efndi til skemmtunar í vetur, í
því sliyni að koma á fót bókasafni í skólanum, til
afnota fyrir börnin, og er til þess ætlast, að börnin
afli safninu tekna, á þann hátt að halda opinbera
skemmtun á hverjum vetri, sem þau annast sjálf.
— Þessi fyrsta skemmtun tókst vel. Það var sungið
og dansaðir víkivakar, en leikurinn var þó bezta
»númerið« á skemmtiskránni. Álfarnir voru prýði'ega
búnir, og var þó ekki miklu til kostað. Leikendur
eru einum færri en leikurinn segir til, vegna þess,
að stúlkan, sem lék húsfreyju, lék einnig eina
álfameyna. — Við þyrftum að eiga fleiri slíka leiki,
til þess að sýna við svipuð tækifæri. —
»Æskan« vill bæta því við, að hún hefir fengið
fregnir af þvi, að leikur þessi hefir víðar verið
leikinn af börnum opinberlega, við góðan orðstir,
t. d. i Hafnarfirði, og er gott til þess að vita.
»Æskan« vildi geta flutt sem mest af lesefni, sem
getur verið börnunum bæði til gagns og gleði.