Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1933, Síða 6

Æskan - 01.05.1933, Síða 6
38 ÆSKAN Þá klöppuðu allir englarnir saman lófunum og sögðu: »BIómið lítur út alveg eins og ofurlitill himinn. Við skulum kalla það Gleym mér ei, því þá er eins og það kalli til mannanna. Og þegar þeir líta á það, þá minnir litla stjörnublómið á himininn. En þegar þeir horfa til himins, þá hljóta þeir að hugsa með sér: »Þarna uppi er góður Guð. Sjáðu til, himnafaðir, þannig minnir litla blómið stöðugt á þig.« Góður Guð gróðursetti aftur litla blómið á marg- lita enginu, og þar getur þú fundið það enn þann dag í dag. Vilborg Auðunavdóltir pýddi úr þýzku. Mahmud og kalífinn. MAHMUD ®®®®®®®®®®®® Hinn mikli kalífi, Harun-al-Raschid, var oft vanur að fara út í borgina að næturlagi. Hann var þá i dularbúningi, klæddur eins og venjulegur borgari. Gerði hann þetta til þess að rannsaka, hvort lögregluliðið gerði skyldu sina og héldi uppi góðri reglu í borginni. Kvöld eitt var hann sem oftar á gangi um göt- urnar, dulbúinn sem kaupmaður. Gíafar, stórvesír- inn hans trúlyndi, var í fylgd með honum. Kalif- inn staðnæmdist við skíðgarð nokkurn. Sá hann þá í gegnum rimla á girðingunni, að maður einn sat þar inni fyrir í ró og næði og snæddi »farech« sinn og drakk »raki« (austurlenzkur matur og drykkur). Eitt kerti stóð á borðinu og varpaði kertaljósið daufri birtu yfir manninn, og leit hann út fyrir að vera vel ánægður með tilveruna. »Eg ætla að ganga inn«, sagði kalífinn og spyrja mann þenna, hvernig honum geðjist stjórn kalíf- ans. Það ber oft við, að maður fær góð ráð og á- gætar bendingar frá ólærðum alþýðumönnum. Kalífinn steig þessu næst inn yfir skiðgarðinn. »Vertu velkominn«, sagði sá, er að snæðingi sat, og um leið stóð hann á fætur og bauð komu- manni sæti, hæversklega«. »Gerðu svo vel og fáðu þér matarbita með mér, ef þér þóknast«, mælti hann. Kalífinn þá boðið með þökkum. Að máltíðinni lokinni, sneri hann sér að gest- gjafa sínum og mælti: »Hver ert þú, og hvert er starf þitt?« »Eg heiti Mahmud«, svaraði hinn. Faðir minn var rennismiður, og eg er ýngstur af þrem bræðr- um. Nú sem stendur vinn eg bjá skráasmið ein-

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.