Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1933, Síða 4

Æskan - 01.06.1933, Síða 4
44 ÆSRAN V Æ R T Æsknmnðar! Hver verður framtíð þín? Liggur leið þin fram til hins góða og fagra lífs, fram til vaxandi lífsham- ingju og sæmdar? Eða liggur hún til vansæmdarog vesældar? Myndin sýnir þér tvær leiðir, sem báðar geta staðiö þér opnar, en önnur leiðir að því marki, sem allir vilja ná, en hin vísar á þann veginn, sem allir vilja forðast. Og af því að eg veit, að þú vilt verða góður maður og göfugur, þú vilt ganga hina réttu leið, þá sendi eg þér þessa mynd, svo að þú munir nokkur atriði, sem þú skalt varast, og einnig nokkur, sem þú skalt ástunda. Eitt meða) þess, sem þú skalt varast, er tóbaksnautn og peningaspil. Ef þú því byrjar á þessu tvennu, þá hefir þú breytt heimskulega, sligið rangt spor. Mundu því þetta: Byrjaðu aldrei að reykja. Byrjaðu aldrei að spila peningaspil. Ef þú skoðar hægri helming myndar- innar, þá sérðu það, sem oft og tíðum siglir i kjölfar reyk- inganna, það er áfengisnautn, og með henni sundrung, heim- ilisólán og loks aumkunarverð elli. Mundu því að bragða aldrei áfengi. En ef þú allur á móti lítur á vinstri helming myndarinnar, þá sérðu prúða unglinga, sem stunda nám sitt af kappi. Pú sérð myndarlegan mann, sem á gott heimili, og loks sérðu gráhærðan öldung, sem allir virða. Vertu þess vegna prúður og samvizkusamur við öll þín störf, bæði heima og i skóla. Segðu ætíð sannleikann, og gerðu allt, sem þú gerir, eins vel og þú getur. — Reyndu, vinur minn, að ganga réttu Ieiðina, og hjálpaðu öðrum til þess. Ef tíl vill getur þú það bezt með þvi að starfa i félögum eins og t. d. barnastúkum, og ef þig iangar til að vita eitthvað um þær, þá skrifaðu »Æskunni«, og hún mun svara og gefa allar upplýsingar. — Eg bið svo Guð að blessa þig. Einn af vinnm pínum.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.